Feykir


Feykir - 03.10.2001, Blaðsíða 5

Feykir - 03.10.2001, Blaðsíða 5
33/2001 FEYKIR 5 Búist við margmenni í Víðidalstungurétt Búist er við fjölmenni í stóð- réttir í Víðidal nk. laugardag, en réttargestum þar hefúr farið mjög fjölgandi á undanfömum árum. Sigrún Valdimarsdóttir í ferðaþjónustunni Dæli sagðist taka á móti fyrstu gestunum í réttimar á miðvikudag, hóp frá Þýskalandi, sem er búinn að taka veiðihúsið á leigu. Sigrún segir að það verði upppantað hjá ferðaþjónustubændum fyrir helgina, mikið sé um símhring- ingar og pantanir vegna réttanna. Búið er að skipuleggja ferð fram á Víðidalstunguheiði á laugardag þegar stóðið verður sótt. Verður þá grillað við gangnahúsið Fosshól og er reiknað með á annað hundrað manns á hestum í smalamennsk- unni og grillinu. Þegar búið verður að smala stóðinu, 7-800 fúllorðnum hestum ásamt folöldum, niður að Víði- dalstunguréttinni, stendur smala- fólki til boða sviðaveisla hjá Jón- ínu húsffeyju á Kolugili, en á síðustu árum hefúr verið brydd- að upp á ýmsu í tengslum við Víðidalstunguréttina, sem er síð- asta stóðréttin á þessu hausti. Gospellhelgi á Ströndiimi Segja má að mikil gospellhelgi hafi verið á Skagaströnd unt helgina. Utn 30 manns í kirkjukórnum voru í æfingabúðum á laugardag undir leiðsögn Óskars Einarssonar tónlistarstjóra Fíla- delfiu og Páll Rósinskrans söng með kómum. Á laugardagskvöld vom þeir félagamir síðan með tónleika í kirkjunni, og var aðsókn- in mjög góð. Á sunnudag var svo mikil gospellmessa í kirkjunni. Mikill áhugi er fyrir gospellsöng á Skagaströnd, enda hafa gospellmessumar á tveim síðustu kántríhátíðum heppnast mjög vel. Tónlistarlífi á Skagaströnd hefúr einnig bæst góður liðsauki sem er nýr organisti við kirkjuna og tónlistarkennari við Tónlist- arskóla A.-Hún., Michail Jón Clarke, sem hefur starfað um áraraðir á Akureyri og þykir mjög góður og skemmtilegur tónlist- ar- og söngmaður. K-lykill í þágu geðsjúkra Kiwanismenn á Norðurlandi vestra safna þessa dagana fé til stuðnings geðsjúkum með sölu á K-lyklinum. Landssöfnun Kiwanishreyfingarinnar hófst 1. október en nær hámarki á laugardaginn 6. október. Þá verður gengið í hús og selt við verslanir og samkomustaði á Sauðárkróki, Siglufirði og víð- ar. Verðbólga er engin í Kiwan- is og því er K-lykillinn enn seldur á 500 krónur líkt og í síð- ustu söfnun. K-lykillinn er seld- ur í tíunda sinn í ár en Kiwan- ismenn standa fyrir söfnun sinni þriðja hvert ár. K-lykillinn var fyrst seldur árið 1974 og hefúr ágóði af sölunni ávallt mnnið til geðverndarmála. Á liðnum ámm hafa ýmiss mál- efni notið góðs af sölu K-lykils- ins, þ.á m. Geðhjálp, unglinga- geðdeild við Dalbraut, og Bjarg á Akureyri svo dæmi séu tekin. Sú nýbreytni verður í söfn- uninni í ár að hægt verður að leggja henni lið með því að hringja í sérstök símanúmer og láta tilteknar upphæðir af hendi rakna. Með því að hringja í sima 907 2500 gefa rnenn 500 kr. en hringi rnenn í síma 907 2100 gefa menn 1.000 kr. Að þessu sinni mun and- virði söfnunarinnar renna að stærstum hluta til Klúbbsins Geysis. Að auki rennur hluti til Hringsjár, starfsþjálfúnar fatl- aðra og áfangaheimilis geðfatl- aðra á Akureyri. Klúbburinn Geysir hyggst nota sinn hluta söfnunarfjárins til húsnæðis- kaupa, Hringsjá til tækjakaupa, og áfangaheimilið á Akureyri til endurbóta og uppbyggingar. Klúbburinn Geysir er vett- vangur fyrir fólk sem á við eða hefúr átt við geðræn veikindi að etja. Geysir er hvorki meðferð- arstofnun né endurhæfingar- stofnun heldur brú milli stofn- unar og samfélags. Hringsjá er miðstöð starfsþjálfúnar fyrir fatlaða. Þar er einstaklingum veitt aðstoð við endurhæfingu til starfs eða náms. Áfanga- heimili geðfatlaðra í Álfabyggð á Akureyri hefúr verið starfrækt frá 1989. Markmið áfanga- heimilisins er að þjálfa einstak- linga út í lífið - að styðja þá til náms eða vinnu. (Tilkynning frá Kiwanis- klúbbum á Norðurlandi vestra; Drangey á Sauðárkróki og Skildi á Siglufirði). Ábyrgð sveitarstjómarmanna Ég varð glaður er ég las í síðasta blaði Feykis grein eft- ir Stefaníu Jónasdóttur, að það eru fleiri Króksarar en Hilmir og ég sem hafa áhyggjur af málefnum RafVeitu Sauðár- króks. Þar þykist ég vita að Stef- aníu renni blóðið til skyldunn- ar eins og sagt er, þar sem ætt- faður hennar Sölvi vélgæslu- maður var einn af frumkvöðl- um rafVeitumála á Króknum á fyrrihluta síðustu aldar. Og það eru fleiri en ég sem efast um stjómmálahæfileika Snorra Sfyrkárssonar og þeirra sveitarstjómarmanna sem sjá þann kostinn helstan að selja eða farga þeim póst- um í sveitarfélaginu sem em hvað traustastir. Það eru ekki mörg fyrirtæki sem skila 30- 40% arði eins og mér skilst að Rafveita Sauðárkróks geri. Búkolla verður ekki endur- heimt effir að hún verður af- hent. Það er einmitt á þessum dögum sem við Króksarar verðum að standa saman um að óhæfúverkin verði ekki unnin. Það verður of seint í kosningunum í vor. Ég sem innfluttur Króksari fyrir lið- lega 40 árum hef eins og fleiri áhyggjur af málefnum sveitar- félagsins og held að þau þyrftu að vera í traustari hönd- um en nú er. Eyjólfur Sveinsson. fSTELPlJR ^ á öllum aldri „yíCtu Cáta tíCpín taka?” JéCagsmáCanámske íð fyrír konur Komdu þá og vertu með á 25 kennslustunda námskeiði sem hefur það að markmiði að efla konur til þátttöku í sveitastjórnarkosningum. Þátttaka er öllum konum heimil án endurgjalds. Dagskrá: 11. oízt. kC 19:00 JafnréttísfrœðsCa 16. okt. ki 19:00 éAð safna iippCýsíngum/CeimiCcCum 20. okt. kC. 11:00 SjáCfsefCí: „éAðpora að taka tíCmáCs” 23. okt. kC. 19:00 SCeCstu nefncfír og líCutverkpeírra 25. okt. kC. 19:00Xynníng stjórnmáCafCokka Staóur: BóknámsCiús JjöC6rautaskóCa JCorðurCancCs vestra Skráning og nánari upplýsingar í síma 453-6800 hjá FSNV Skagafjörður

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.