Feykir - 03.10.2001, Side 3
33/2001 FEYKIR 3
Mikill mannfjöldi
á stóðréttarhelgi
- sem fór einstaklega vel fram
Eins og jafhan áður reyndist
Laufskálaréttarhelgin í Skaga-
firði, mesta ferðamannahelgi
sumarsins í héraðinu. Glöggum
mönnum telst til að á þriðja
þúsund manns hafi komið í rétt-
ina og nánast húsfyllir var í
reiðhöllinni Svaðastöðum á
föstudagskvöld þegar 54 hross
voru sýnd á velheppnaðri sölu-
sýningu, þar sem ýmislegt var
til skemmtunar. Mikill fjöldi tók
þátt í skemmtanalífinu um
helgina, en allt fór það vel fram,
lögreglan þurfti nánast engin af-
skipti að hafa, enginn gisti
fangaklefa og enginn var tekinn
fyrir ölvun við akstur þrátt fyr-
ir að rnikið hafi verið „tékkað”
að sögn lögreglu.
Ströng austan átt á laugardag
var kannski örlítið angrandi við
réttina, en réttargestir létu það
samt almennt ekki á sig fá. Eins
og mörg undanfarin ár þurftu
þeir sem seinna komu til réttar
að leggja bílum sínum langt ffá
réttinni, hinum megin þjóðveg-
arins fram dalinn til að eiga það
ekki á hættu að lokast inni.
Það var greinilegt þegar
gengið var inn rennuna að rétt-
inni með langar bílaraðir til
beggja handa að stóðréttarhelg-
in er býsna ströng hjá mörgum,
enda byrjar hún á fostudag og
Já það er vissara að skoða markið.
Það er ekki síst „maður er manns gaman“ í réttunum.
Fjárleitum lokið
Umfangsmiklum leitum er lokið á afféttum Húnvetninga með
aðstoð flugtækninnar og var það Magnús Ólafsson á Sveinsstöð-
urn sem flaug á vél sinni eins og mörg undanfarin ár. Grímur
Gíslason á Blönduósi, sem fylgist enn mjög vel með gangi niála
á heiðunum á haustin, þótt kominn sé fast að níræðu, segir að
rnenn telji að vel hafi til tekist og varla sé þess að vænta að fé hafi
orðið eftir á afréttinni. I effirleitum þurfti að ná í fé allt fram til
jökla, sem urðu eftir í fyrstu leit, en þoka gerði mönnum erfitt um
vik á tímabili í göngunum.
Þarna er Ásgeirsbrekkugengið búið að ná traustu taki á einum og hann er hið snar- asta
leiddur í dilkinn.
stendur fram á sunnudag. Ekki
var komist hjá því að veita eftir-
tekt að í mögum bílum var fólk
í hvíld ffá réttarstörfúm, sumir
höfðu lagt sætin aftur og lygnt
aftur augum, enda dagurinn
langur og réttarböllin og gleðin
á veitingahúsunum í Varmahlíð,
Fjallakrá og Hofsósi, fram á
morgun.
Það er vissulega ansi merki-
legt fyrirbæri að slíkur mann-
fjöldi komi í héraðið vegna
stóðréttanna og á svæðum í
grenndinni sé gistirými
upppantað á stóðréttarhelginni,
með rúmra ellefú mánaða fyrir-
vara. Einn viðmælanda blaðs-
ins taldi það ekki síður rann-
sóknarefni en margt annað
hvaða markaðslögmál lægju
þarna að baki. Þrátt íyrir ágæti
skagfirska hestsins og frægð
hrossakyna er það eitt væntan-
lega ekki sem togar fólk í hérað-
ið. Kannski er það söngurinn
sem fylgir réttunum og þessi
villta sveita-kamivalstemming,
og ef til vill ekki síst það að
þarna sjái fólk kjörið tækifæri
til þess að „slútta“ sumrinu,
njóta síðustu dreggja sumars-
og hauststemningar með því að
slá virkilega úr klaufúnum eina
helgi áður en veturinn gangur í
garð.
effesi
O. 60°- 95
MASim
vm
kaup í búðinnif
Buitoni pastaskrufur 42,-
Knorr pastasósur 109,-
Appelsínusafi 2ltr. 169,-
Toblerone 400 gr. 339,-
Sirius súkkulaöi 200gr. 229,-
Food Line plastfilma 55,-
Food Line örbylgjupopp. 169,-
Effect þvottaduft 3kg. 298,-
Effect mýkingarefni 1ltr.. 298,-
Sorppokar 10 stk. 79,- v
»
slátursalan
er ekki opin
á mánudögum!
Helgartilboo a
Frosiö lambalæri 798,- ^
Frosin lambahryggur 898,-
Saltkjöt llfl. 399,-
Saltaöar hálsasneiðar 299,-
Ferskir lambaskrokkar
á góðu verði!
Food Line flogur 119,-
Tartalettur 79,-