Feykir - 15.05.2002, Blaðsíða 8
15. maí 2002, 17. tölublað, 20. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
Framsókn
r Skagafjörð
xB
Frá undirritun viljayfirlýsingarinnar á Hólum: Skúli Skúlason skólamcistari og fulltrúar
Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Snorri Styrkársson og Stefán Guðmundsson. Vottar að
undirritun voru þau Elín R. Líndal formaður skólanefndar Hólaskóla og Guðni Agústsson
landbúnaðarráðherra.
Ritað undir samstarf sveitar-
félagsins og Hólastaðar
Viðburðarik vika hjá Hniúkunum
Salamonsdómur
hjá héraðsdómi
Að lokinni brautskráningu
hestafræðinga frá Bændaskól-
anum á Hólum sl. laugardag
var við athööi í skólahúsinu rit-
að undir viljayfirlýsingu um
samstarf Sveitarfélagsins
Skagafjarðar og Hólaskóla. Því
næst var gengið til kaffiveislu á
Hólum, en þessi dagur, 11. maí
markaði upphaf afmælisárs á
Hólurn, en í ár eru 120 frá upp-
hfi Bændaskólans á Hólum.
í viljayfirlýsingunni segir að
Sveitarfélagið Skagafjörður og
Hólaskóli sameinist um að efla
Hóla í Hjaltadal annars vegar
sem þekkingarsetur og miðstöð
háskólamenntunnar í héraðinu
og hins vegar sem einn af
byggðakjömum svæðisins.
Þetta verði gert með eftirfarandi
hætti:
Efla enn frekar tengsl starf-
seminnar á Hólastað við stofn-
anir sveitarfélagsins og fyrir-
tæki á svæðinu. Unnið verði
sameiginlega að því að beina
verkefhum er varða menntun,
rannsóknir og þróunarstörf til
Hóla, eftir því sem við á, sem
og að stuðla að fjármögnun
slíkra verkefna.
Þá verði stofhaður sameigin-
legur vinnuhópur sem geri til-
lögur um fyrirkomulag þjón-
ustu og ffamkvæmda er lúti að
rekstri byggðarinnar að Hólum.
Markmið þessa er að Hólaskóli
og Sveitafélagið Skagafjörður
vinni saman að ffekari þróun
skipulags fyrir staðinn, hús-
næðismálum, gatnagerð, veitu-
málum og allri almennri þjón-
ustu við íbúa og starfsemi stað-
arins.
Árið 2002 verði sérstök á-
hersla lögð á þróun umhverfis-
mála á Hólum i samræmi við
Staðardagskrá 21 og stefnu
Sveitarfélagsins Skagaíjarðar í
þessum málaflokki. Lagt er til
að sveitarfélagið og Hólaskóli
sameini krafta sína við eflingu
umhverfismála í Skagafirði,
segir í viljayfirlýsingunni.
Það verður ekki annað sagt
en síðasta vika hafi verið við-
burðarík fyrir fólkið í bæjar-
málafélaginu Hnjúkum á
Blönduósi. Allt byijaði þetta á
kosningaskrifstofunni að morgni
sunnudags. Það var nýbúið að
opna skrifstofuna og einhverra
hluta vegna gleymdi fólk sér, og
hafði ekki hugann við mikilvæg-
asta verkefni dagsins, að skila
framboðslistanum áður en
klukkan væri tólf og ffamboðs-
ffesturinn úti.
Þeir voru margir sem slóu
því föstu að þetta væri búið mál
fyrir Hnjúkana, en Valdimar í
Bakkakoti og hans fólk var ekki
á því að leggja upp laupana.
Strax á mánudag var haldið til
Reykjavíkur, þar sem jarðvegur-
inn var kannaður hjá félagsmála-
ráðuneytinu. Ráðuneytið vísaði
síðan málinu ffá á þriðjudag. Þá
var strax farin dómstólaleiðin og
óskað effir flýtimeðferð. Halldór
Halldórsson héraðsdómari
Norðurlands vestra brást skjótt
við og var ekki lengi að fella
„Salómonsdóm” í málinu.
Hnjúkar fengju að leggja fram
listann, þrátt fyrir að mæta of
seint, „lýðræðið væri mikilvæg-
ara en glataðar 11 minútur” var
ein af forsendunum fyrir niður-
stöðu héraðsdóms, sem beindi
því til yfirkjörstjómar á Blöndu-
ósi að taka lista Hjúka til úr-
skurðar eins og hann heföi borist
á réttum tíma.
Gunnar Sigurðsson formaður
yfirkjörstjórnar segir að ekki
hafi verið annað ráð en taka
ffamboðið gilt, ekki hafi komið
til greina að áffýja niðurstöðu
héraðsdóms til Hæstaréttar.
Hinsvegar hafi yfirkjörstjóm
fyrst og ffemst verið að vinna
eftír gildandi lögum um kosn-
ingar til sveitarstjóma, þar sem
skýrt sé kveðið á um ffamboðs-
ffest.
Það verða því þrjú ffamboð
til sveitarstjómarkosninga á
Blöndósi og í Engihlíðarhreppi í
vor, auk Á-lista Hnjúka, D-listi
Sjálfstæðisflokksins og H-listi
Vinstrimanna og óháðra.
Góð veiði í þorskanetin í vor
Ágæt veiði var í þorskanet á
Skagafirði ffaman af vori, en
ffá veiðibanni um miðjan apr-
íl, hefur það verið frekar rýrt
að sögn Sævars Steingríms-
sonar á Hafborg, sex tonna
trillu sem var á netum í vor á-
samt dekkbátnum Þóri. Þeir á
Hafborg, Sævar og Atli Kára-
son, em hættir veiðum en Þór-
ismenn þráast enn við. Þegar
best lét var Þórir að fá urn 12
tonn í róðri, en mest var Haf-
borgin að fá átta tonn yfir dag-
inn.
Að sögn Sævars hefur fisk-
urinn úr Skagafirðinum verið
vænn, en netasvæðin vom allt
upp undir Borgarsand skammt
neðan flugvallarins. Sævar
segir að þó hafi komið einn og
einn fiskur sem var varla meira
en hausinn, ákaflega rýr, en
þessi mjósleigni fiskur hafi
ekki verið í neinu magni mið-
að við lýsingar frá Húnaflóa-
svæðinu.
Það mun vera talsvert á
annað hundrað tonn sem þessi
tveir bátar hafa veitt hvor um
sig í netin frá byijun kvótaárs,
en um aðra veiði hefur ekki
verið að ræða. Ekki er gott út-
lit með rækjuveiðina á firðin-
um á næstunni og í haust vom
tveir bátanna seldir, Sandvíkin
og Jökull. Bolfiskkvóti Sand-
víkur var seldur burtu með
bátnum, tæplega 90 tonn, en
kvóta Jökuls haldið cftir og
skipt milli eigendanna, en Haf-
borg var m.a. keypt frá Kefla-
vík fyrir rúmum tveim árum
vegna kvótans sem á þeim bát
var. Sævar Steingrímsson seg-
ir að það verði síðan að koma í
ljós hvort rækjan sýni sig í
veiðanlegu magni og þá verði
kannski keyptur bátur til að
stunda þær veiðar.
SVEITARSTJÓRNAKOSNINGARNAR 25. MAl 2002
Skagafjörður - leiðandi sveitarfélag
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
xD
Flísar, flotgólf
múrviðgerðarefni
Aðalsteinn J.
Maríusson
Sími: 453 5591
853 0391 893 0391