Feykir - 31.07.2002, Qupperneq 2
2 FEYKIR 26/2002
Fornleifafræðingar vinna að uppgreftri gamla Hóla-
prentsins.
Sjávarleður nær til
stærstu tískuhúsanna
Það er mikið að gerast hjá
fyrirtækinu Sjávarleðri á Sauðár-
króki um þessar mundir, en þaó
framleiðir fiskroð sem notað er í
tiskuvörur, fatnað, töskur og skó.
Salan hefur aukist mikið síðustu
mánuðina og hefur afgreiðslu-
frestur verið tveir mánuðir.
Stærstu viðskiptavinimir síðasta
árið hafa verið nokkur af fræg-
ustu tískuhúsum heims, Christi-
an Dior, Prada og John Gallino.
Um þessar mundir er verið að
undirbúa þátttöku Sjávarleðurs í
vörusýningu í Frakklandi í sept-
embermánuði, sem vonast er til
að muni skila talsverðu í aukinni
markaðssókn.
Um síðustu helgi birtist í
Morgunblaðinu ítarleg frétt urn
Sjávarleður og þar segir Friðrik
Jónsson framkvæmdastjóri að
mikið hafi verið fjallað um fyr-
irtækið og framleiðslu þess í
frönskum fjölmiðlum að undan-
fömu. Friðrik segir að ýmislegt
bendi til þess að markaðurinn
muni vaxa og taka enn betur við
þessu efni. Fiskroð sé í tísku og
fyrst fyrirtækið náði inn í ffæg-
ustu tískuhúsin megi búast við
að fleiri fari á sömu braut, en
undanfarin tvö ár hafi tísku-
heimurinn hneygst að náttúru-
legum efnum. „Við höfum svo-
lítið flotið á þeirri bylgju”, segir
Friðrik.
Sjávarleður var stofnað 1995
og hefúr verið að þróa sína ffam-
leiðslu síðan, en Skagfirðingam-
ir byrjuðu að súta fiskroð um
1990. Friðrik Jónsson segir að
ætíð hafi verið einblínt á tísku-
markaðinn og sú vinna hafi skil-
að sér fyrir alvöru í fyrra, en þá
tók salan kipp. Þetta er þriðja
árið sem fyrirtækiö tvöfaldar
veltuna og er reiknað með að
hún verði um 30 milljónir í ár.
Nú er hugað að því að stækka
fyrirtækiö og Ijárfesta í nýjum
ffamleiðslutækjum,jafhvel kem-
ur til greina að flytja í stærra hús
og fjölga starfsmönnum, en auk
Friðriks starfa þrír við fram-
leiðsluna í Sjávarleðri, auk þess
sem Sigrún Ulfarsdóttir hönnuð-
ur í París er í hlutastarfi, en hún
er ráðgjafi fyrirtækisins í mark-
aðsmálum.
Sjávarleður vinnur orðið
mest úr innfluttu hráefhi. Nílark-
arfaroð kemur ffá Afriku, en
þaðan eru flutt 15-17 tonn af
roði til framleiðslunnar á þessu
ári. Laxaroð kemur ffá Færeyj-
um, en einnig er unnið talsvert
úr hlýraroði. Stærstu eigendur
Sjávarleðurs eru Nýsköpunar-
sjóður og Sveitarfélagið Skaga-
fjörður, sem eiga um 90% og
10% em í eigu Friðriks Jónsson-
ar ffamkvæmdastjóra og Eggerts
Jóhannssonar feldskera.
Fornleifadagur á Hólum
Allmargir gestir komu í Hóla
sl. sunnudag á fomleifadag, sem
haldinn var á nokkrum stöðum
út um landið, en verkefnisstjórar
Kristnihátíðarrannsóknanna
2002 tóku á móti almenningi og
kynntu rannsóknir sínar og upp-
gröftrarsvæðin. Á Hólum var
það Ragnheiður Traustadóttir
verkefnisstjóri sem skýrði frá
Hólarannsóknunum, sem eru á
vegum Hólaskóla, Byggðasafns
Skagfirðinga og Þjóðminjasafhs
íslands. Á Hólum er nú verið að
grafa á nokkrum stöðum og
spennandi hlutir að gerast. Með-
al annars telja menns sig vera
komnir ofan á húsarústir síðustu
prentsmiðjunnar á Hólum, sem
lögð var niður í kringum 1780.
Vísindamennirnir voru að
byrja að grafa niður í gólf prent-
smiðjunnar á sunnudaginn og
verður því verki haldið áíram nú
í vikunni. Við rannsóknimar á
l lólum hafa margir merkilegir
gripir fúndist, og alls eru gripim-
ir hátt í sex hundmð, misgamlir.
Meðal þess er steinleir frá
Þýskalandi og Skandinavíu og
leirker ffá 16. öld. Þá hafa fúnd-
ist krítarpípur frá Hollandi og
Englandi, snældusnúður, brýni
og perlur, þar af ein úr klébergi,
sem er norskur steinn, líklega frá
miðöldum. Einnig hefúr fúndist
vel unninn kola- eða steinlampi
og ýmsir hlutir úr málmi.
Að uppgreftrinum verður
unnið fram í miðjan ágústmán-
uð, en við hann starfa 20 manns.
Neðan dómkirkjunnar voru að
störfum tvær ungar vísindakon-
ur, Rúna Tetzckne, íslensk af
tékkneskum ættum í 19 ættlið og
hin sænska Helena Fenno frá
Byggðasafninu í Stokkhólmi. Á
þessum stað er áætlað að megi
finna rústir gamals skólahúss á
Hólum eða jafnvel eldri dóm-
kirkju staðarins. Rúna sagði það
alveg „drauin” að fá að vinna að
þessum rannsóknum á gamla
biskupsstólnum. Þama væru
spennandi hlutir að gerast, viða-
mikið verkefni sem nær til næstu
fimm ára, og sjálfsagt yrði það
of skammur tími fyrir svo yfir-
gripsmikið svæði. Á Hólum eru
nú vísindamenn frá mörgum
lönduin og Rúna sagði að þau
hefðu verið að telja það saman á
dögunum, að það væru ein 14
tungumál í gangi.
Rúna Tetzckne og Hclena Fenno vinna að uppgreftri neðan dómkirkjunnar.
Þeir feðgar Jón E. Ragnarsson og Baldur Jónsson sigruðu með glæisbrag í Skagafjarðar-
rallinu sem fram fór sl. laugardag, voru hálfri mínútu á undan þeim Sigurði Braga og
ísak. Þrettán bílar luku keppni af fjórtán. Jón sagði eftir keppnina að þetta væri með
skemmtilegustu rallleiðum á landinu, sérstaklega Mælifellsdalurinn, en fjölbreytnin hefði
minnkað til muna eftir að „draumaleið rallímannsins“ Þverárfjallið datt út.
L ó íáð fréttablað á Norðurlt indi vestra Kemur út á miðvikudögum. Utgefandi Feykir hf. Hemiannsson, Siguiður Ágústsson og Stefán Ámason. Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box4, Áskriftarverð 190 krónur hvert tölublað með vsk. 550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703. Lausasöluverð: 200 krónur nteð vsk. Setning og Farsími 854 6207. Netfang: feykir @ krokur. is. umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf. Feykir á Ritstjóri: Þóihallur Ásmundsson. Blaðstjórn: Jón F. aðild að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða. Hjartarson, Guöbrandur Þ. Guðbrandsson, Sæmundur