Feykir - 18.09.2002, Blaðsíða 7
31/2002 FEYKIR 7
Guðrún Kristjánsdóttir 4.
Starrastöðum
Guðrún Kristjánsdóttir, fyrr-
um húsfreyja á Starrastöðum,
lést 17. júlí s.l. á Sjúkrahúsi
Skagfirðinga, og fór útför
hennar ffam frá Mælifelli 27.
júlí að viðstöddu fjölmenni.
Guðrún var af skagfirsku
bændafólki komin, elst 9 bama
hjónanna, Kristjáns Ámasonar
og Ingibjargar Jóhannsdóttur, er
bjuggu á Krithóli, Stapa og víð-
ar í Lýtingsstaðahreppi. Af
þeim em nú 3 systur á lífi, all-
ar búsettar á Sauðárkróki. Um
fermingaraldur var Guðrún tek-
in í fóstur af hjónunum Sigurði
Þórðarsyni, síðar kaupfélags-
stjóra og alþm. á Nautabúi, og
konu hans, Ingibjörgu Sigfus-
dóttur, ffændkonu sinni, og hjá
þeim dvaldi hún til fullorðins-
ára. Árið 1937 gekk Guðrún að
eiga Pál Gísla Ólafsson ffá
Starrastöðum, og hófu þau bú-
skap á föðurleifð hans hið sama
ár og bjuggu þar farsælu búi allt
til ársins 1982, eða í hálfan 5.
tug ára, er þau fluttust til Sauð-
árkróks. Þau eignuðust synina,
Ólaf, Sigurð, Reyni, Ingimar og
Eyjólf. Eyjólfur lést 25. jan.
2000 eftir þungbær veikindi,
drengur góður og syrgður af
öllum, er honum kynntust. Eff-
irlifandi eiginkona hans er Mar-
ía Reykdal og eignuðust þau 4
böm.
Við ffáfall Guðrúnar frá
Starrastöðum koma upp í hug-
ann margar góðar minningar ffá
viðkynningu um nærri 2ja ára-
tuga skeið. Er ég og fjölskylda
mín komum í Mælifell haustið
1983, höfðu þau Guðrún og
Páll nýlega flust niður á Sauð-
árkrók í litla íbúð á Freyjugötu
26, en látið búið í hendur
Eyjólfi syni sínum og fjöl-
skyldu hans. Hugurinn var þó
áffam á Starrastöðum, þangað
komu þau hvenær sem tækifæri
gáfiist. Þar áttu þau sterkar ræt-
ur, sem aldrei slitnuðu. Heilsu
Páls var tekið að hraka nokkuð
um þetta leyti. Síðustu árin
dvaldi hann á Dvalarheimili
aldraðra á Sauðárkróki. Hann
lést 12.jan. 1990. Pállvarheil-
steyptur, drengskaparmaður,
sem gott er að minnast.
Margar minningar mínar um
Guðrúnu á Starrastöðum em
tengdar kirkju og safhaðarstarfi
á Mælifelli. Hún og hennar fólk
voru tíðir gestir í Mælifells-
kirkju. Guðrún var virk í safn-
aðarstarfinu, söng lengi í
kirkjukór prestakallsins og
sýndi kirkjunni sinni á Mæli-
felli mikla ræktarsemi í hví-
vetna. Hún færði kirkjunni stór-
gjafir, saumaði ásamt fleiri
sóknarkonum klæði það, sem
er á altari, gaf messuklæði og
nú síðast fyrir ári gaf hún ný
ljós í kirkjuhúsið í minningu
eiginmanns og sonar.
Guðrún var gjafmild kona,
en hún vildi ekki gefa, svo á því
bæri, en hún vildi koma því í
verk, sem hún hafði ætlað sér.
Það var hennar lífsmáti. Hún
var trúuð manneskja og hug-
leiddi mikið andlegu málin og
sótti þangað styrk í mótlæti og
sorg. Hún var sannfærð um að
lífið héldi áffam handan grafar
og dauða og þar myndi hún
hitta ástvini sína á ný. Fráfall
Eyjólfs varð henni þungbær
sorg, en trúarvissan og vissan
um líf og endurfundi gaf henni
mikinn styrk í þeirri raun. Það
var henni líka gleðiefni, að
Maria og bömin skyldu halda
áffam búskap á Starrastöðum.
Guðrún var mikil fjöl-
skyldumanneskja og ættmóðir,
hún átti stóra fjölskyldu, sem
var henni allt, ekki síst vom það
litlu ömmubömin, sem áttu hug
hennar og hjarta, þau elskuðu
hana öll. Hún unni sveitinni
sinni og héraði og var áhuga-
söm um hvað eina, er til heilla
horfði í samfélaginu. Guðrún
var ein af stofhendum Kvenfé-
lags Lýtingsstaðahrepps og var
virk félagsmanneskja þar allt til
dauðadags. Það munaði um
hana, hvar sem hún tók til
hendi.
Guðrún á Starrastöðum
verður okkur minnisstæð fyrir
marga hluta sakir. Hún var góð-
ur nágranni og traustur vinur.
Ætíð fylgdi henni glaðværð og
góð nærvera, því hún var glað-
lynd að eðlisfari. Hún var
greind kona og hafði af rniklu
að miðla, var sterkur persónu-
leiki og ákveðin, ef því var að
skipta, sagði meiningu sína
hispurslaust, hver sem í hlut
átti. Það fylgdi henni ætíð
hressilegur blær og ákveðin
reisn, hvar sem hún fór.
Við á Mælifelli þökkum
langa samfylgd og biðjum
henni blessunar og fararheilla.
Aðalfundur
skíðadeildar Tindastóls
verður haldinn á skrifstofu félagsins miðviku-
daginn 25. september kl. 20.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Minningin lifir um einstaka
heiðurskonu, sem gott og gef-
andi var að kynnast. Eg trúi því,
að þau þijú, sem dauðinn hafði
aðskilið, séu nú aftur sameinuð
í ríki Guðs, þar sem allt er orð-
ið nýtt. Öllum aðstandendum
skal blessunar beðið um ókom-
in ár.
í helgri bók segir: Sælir eru
þeir, sem í Drottni deyja, þeir
hvílast ffá erfiði sínu, því verk
þeirrafylgja þeim”. (OP. 14)
Ólafur Þ. Hallgrimsson.
Vaskurinn
ekki endur-
greiddur
Sveitarfélagið Skagafjörður
fær ekki endurgreiddan virðis-
aukaskatt af störfum Jóns Gauta
Jónssonar fyrrverandi sveitar-
stjóra, en þar sem hann var ráðinn
í gegnum ráðgjafafyrirtækið Price
Water house Cooper, taldi þáver-
andi meirihluti Skagafjarðarlistans
og Framsóknarflokks að virðis-
aukinn yrði endurgreiddur og
kostnaður af störfum Jóns Gauta
því ekki eins mikill og sýndist.
Útvarp Norðurlands gerði
nýlega úttekt á kostnaði vegna
starfa Jóns Gauta, en hann starfaði
tæpt ár, í lok síðasta kjörtímabils.
Heildarkostnaður vegna starfa
hans var 15,9 milljónir króna, eða
um ein og hálf milljón króna á
mánuði, en hann var einnig ráðinn
upp á það að vera einungis fjóra
daga í viku við störf á Sauðár-
króki.
Ástæðurnar sem „skatturinn“
veitir fyrir því að greiða vaskinn
ekki til baka, er sú að í lögum segi
ekkert um það að sveitarstjóri
þurfi að vera sérfræðingur.
Smáauglýsingar
Ýmislegt!
Til sölu tóner í prentara, HP
4 L og HP 4P. Selst á hálfvirði.
Upplýsingar í síma 453 6750.
Til sölu „Krossari“ RM-
125, hjól í toppstandi og nýlegt
dekk fýlgir. Vel hirt og að ‘87
árgerð. Verð 150.000. Upplýs-
ingar í síma 848 7524 eða 899
8245 kl. 17-23.
Til sölu Galooper disel
turbo árg. 2000. Upplýsingar í
síma695 1616.
Til sölu GEO Tracker árg.
1995, ekinn 34.000 km, sjálf-
skiptur í góðu standi. Verð
390.000 kr. Upplýsingar gefur
Bjami í síma 453 5124.
Taxi
Ragnar Guðmundsson
Gilstúni 24
Heimasími 453 5785.
GSM 897 4085.
Á sama stað til sölu Isisu
Trooper árg. ‘92,
nýskoðaður og í góðu lagi.
Tek að mér múrviðgerðir.
fiessi myndarlegi borgarísjaki hefur veri> a> lóna út á Húnaflóanum sí>ustu dagana, en
er reyndar a> brá>na ni>ur. Sigunur Kr. Jónsson á Blönduósi tók flessa mynd af
jakanum fyrir helgina flegar hann var á reki rétt nor>an vi> Kálfshamarsvíkina.
R
Skagafjörður
GEYMSLAIU
kaffi og menningarhús ungs fólks
Starfskraft vantar til að hafa umsjón með Geymslunni
frá 1. okt. nk. - 31. des. 2002
Starfið felst í að vinna með ungu fólki ma. að skipulagningu starf-
sins og eftirliti.
Vinnan er aðallega seinni part dags og á kvöldin og um helgar.
Starfshlutfall er ca. 25%
Viðkomandi skal hafa reynslu af því að vinna með ungu fólki, vera
skipulagður, framtakssamur, hugmyndaríkur og vera lipur í sam-
skiptum.
Umsóknarfrestur er til 25. sept. nk. og skal skila á skrifstofu
Sveitarfélagsins ( merkt Geymslan )
Frekari upplýsingar veitir Omar Bragi Stefánsson
á skrifstofu sveitarfélagsins.