Feykir - 18.06.2003, Side 6
6 FEYKIR 22/2003
Könguló - Könguló
uss
molar..
Það er kannski ekki í frásög-
ur færandi að ég fór í göngu-
ferð upp í fjall um hvítasunn-
una. Reglulega hnýti ég á mig
gönguskóna og held af stað.
Það er gaman að fylgjast með
vori og sumri. Fuglamir
makast, gera sér hreiður og
sinna ungunum. Með þessu hef
ég fylgst náið mér til óbland-
innar ánægju. Ég hef líka fylgst
með hvemig ný og ný tegund
plantna tekur að blómgast eftir
því sem á líður. Um hvítasunn-
una sá ég til dæmis fyrstu út-
spmngnu iyfjagrösin. I þessari
göngu vom það þó einkum
pöddur sem vöktu athygli.
Fiðrildi flugu upp í flokkum í
gróðurdældunum og köngulær
vom hreinlega um allt.
Mig langar að segja ykkur
svolítið frá köngulóm. Þær em
heillandi! Rétt er samt að
benda á í upphafi að almennt
gætir þess misskilnings að
langleggur, sem er ein algeng-
asta padda landsins, sé köngu-
ló. Báðar em með átta fætur en
köngulær em með tvískiptan
bol en bolur langleggs er ekki
skiptur. Einfalt!
Aðalsmerki köngulóa er
einstakur hæfileiki þeirra til að
spinna. Við þekkjum hinn
dæmigerða hjólvef eins og við
myndum sjá í teiknimyndun-
um en til em mun fleiri vef-
gerðir. Flér á landi spinna ekki
nema þijár nokkuð algengar
köngulær hjólvefi. Vefir flestra
annarra tegunda hérlendis líkj-
ast láréttum þéttofiium teppum.
Þræðimir em ekki límkenndir.
Teppið minnir á öryggisnet í
sirkus utan þess að þeirra bíður
dauðinn sem i því lenda!
Köngulóm er oft skipt með til-
liti til lifnaðarhátta í vef-
köngulær og föruköngulær.
Vefköngulær spinna vefi til að
afla matar. Fömköngulær
spinna ekki vefi í fæðuöflunar-
skyni, en spinna þá engu að
síður til ýmissa annarra nota.
Stundum sjáum við
köngulær með ljósleita kúlu
fasta við sig. Þetta er
kvenkönguló á ferð með eggin
sín vel pökkuð. Hugum nánar
að lífsferli köngulóa.
Fullvaxið karldýr spinnur
lítinn vef sem það setur sæði í
og sýgur það því næst upp í
fálmarana. Að því loknu hefst
makaleit. Aðalvandinn er síðan
að fullvissa kvendýrið um að
það sé ekki bráð heldur boðleg-
urmaki!
Karldýrið fer að vef kven-
dýrs og um leið fer það að huga
að gestinum sem væntanlegri
bráð. Karlinn forðar sér með
því að síga niður í öryggislínu.
Hann endurtekur leik sinn og
hættir ekki fyrr en kvendýrið
kemur einnig sígandi í línunni
á eftir honum. Karlinn gefur
merki með því að kippa í vef-
inn á vissan hátt. Þegar kven-
dýrið gefur merki á móti getur
rnökun átt sér stað.
Fömköngulær hafa þokka-
lega sjón og nteðal þeirra
tíðkast biðilsleikir sem em í ætt
við dans. Karlamir fylla sér á tá
og veifa þreifurunum á ákveð-
inn hátt. Kvendýrin velja svo á
milli karlanna eftir því hvemig
þeim líkar dansinn.
Sumir karlar em mjög á
varðbergi gagnvart því að vera
étnir við mökunina sem kemur
reyndar fyrir hjá sumum teg-
undum. Ymsar leiðir hafa þró-
ast sem andsvar við þessari
hættu. Hjá sumum tegundum
tíðkast það að karldýrin gefa
kvendýrunum flugu sem er
pökkuð inn í silki. Mökun á sér
þá stað meðan kvendýrið er í
óðaönn að éta. Aðrir karlar
festa kvendýrið með silki á
meðan mökun fer ffarn.
Kvenköngulóin býr til skál
úr silki þar sem hún verpir
eggjunum um leið og hún
fijóvgar þau með sæðisvökv-
anum sem hún hefur tekið við
frá karlinum. Köngulóin spinn-
ur meira og býr til silkilok á
skálina. Minnstu köngulæmar
verpa fáum eggjum en þær
stærri allt upp í þúsund! Sumar
köngulær ferðast með skálina
en aðrar koma henni fyrir ná-
lægt bæli sínu. Eftir 2-4 vikur
opnar móðirin skálina og ung-
amir skriða út. Egg, sem verpt
er mjög seint að sumri, klekjast
ekki fyrr en að vori.
Afkvæmin em heldur hjálp-
arvana í fyrstu. Hjá sumurn
tegundum sjá mæðumar þeim
fyrir fæðu um sinn. Fljótlega
verða afkvæmin þó að standa á
eigin fótum og spinna sinn vef.
Systkinahópurinn sundrast
fljótt því nokkur hætta er á að
systkini éti hvert annað. Þegar
afkvæmi köngulóa yfirgefa
æskustöðvamar ganga þau eða
fljúga. Það kann að koma á ó-
vart að köngulær fljúgi en það
gera þær svo sannarlega. Þær
einfaldlega spinna þráð sem
tekur á sig vind og þannig
feykjast þær af stað. Hvar þær
lenda er seinni tíma vandamál.
Gefið gaum að köngulón-
um. Ef þið skoðið þær ineð
stækkunargleri komist þið ef-
laust að raun um að þær em að-
laðandi á sinn hátt. Það er
aldrei að vita nema þið upplifið
litið ævintýri á gönguför. Ég
lifi í þeirri vona að sjá einhvem
tíma köngulóarkall tylla sér á
tá!
Sólrún Harðardóttir.
(Höfundur er í stjóm Um-
hverfissamtaka Skagafjarðar.
Texti þessi er byggður á náms-
efni um köngulær eftir hana
sjálfa.)
Kristín
Sölvadóttir
— kveðja
Vornóttin blíðláta bjó henni værð,
og blærinn hann vill okkur sýna.
Að hljóðlega skuli sú fregn okkar færð.
„Hún var farin í morgun hún Stína.”
Hendi er veifað frá hásætis stól.
þá hrukku þau, jarðnesku böndin.
í sólguðsins vagni með hringmyrkvuð hjól,
hún hélt inn í ódáinslöndin.
Kristján Árnason.
Kynntar tillögur verkefnis
ungs fólks í Húnaþingi vestra
Verkefninu „Ungt fólk og atvinna “ var
hmndið af stað með fundi þann 30 desember
árið 2002. Það vom Elín R Líndal og Bjöm
Traustason sem boðuðu með bréfi allt fólk á
aldrinum 20 - 30 ára í Húnaþingi vestra til
þessa fundar. Tilgangur þess var að skapa um-
ræðugmndvöll fyrir ungt fólk sem hefur á-
huga á að setjast að í Húnaþingi vestra, um at-
vinnumál og önnur mál sem tengjast búsetu
fólks á svæðinu. Markmið verkefhisins er að
auka möguleika ungs fólka á að lifa og starfa
í Húnaþingi vestra.
Verkefnisstjóm var skipuð á fyrsta fundi
og vom þau Elín Jóna Rósinberg, Margrét
Sigurðardóttir og Erling Viðar Eggertsson til-
nefhd af fundinum. Auk þeirra vom Elín R
Líndal, Bjöm Traustason, Skúli Þórðarson,
Karl Sigurgeirsson, Gudmn Kloes og Andri
Þorleifsson í verkefhisstjóm tilnefnd af stuðn-
ingsaðilum verkefnisins. Leitað var til fyrir-
tækja um að styrkja verkefnið með ýmsum
hætti; með ráðgjöf, aðgangi að starfsmönnum,
með beinum fjárframlögum og fl. Stuðnings-
aðilar verkefhisins vom Sparisjóður Húna-
þings og Stranda, Kaupfélag Vestur Húnvetn-
inga, Húnaþing vestra, Forsvar ehf, Hagfé-
lagið ehf og Sjónaukinn. Haldnir voru 6 opn-
ir fundir auk funda verkefhisstjómar. Einnig
var boðið uppá námskeið í gerð viðskipta-
áætlana og námskeið um fjármál.
Þátttaka á fundunum hefur verið rnjög góð.
Að meðaltali hafa mætt milli 15-20manns og
hafa umræður verið líflegar og frjóar.
Fimmtudaginn 12 júní var skýrsla og til-
lögur verkefhisstjómarinnar kynnt í Félags-
heimilunu á Hvammstanga. Fmmmælandi
var Elín Jóna Rósinberg og fór hún yfir það
hvers vegna verkefninu var hmndið af stað,
þ.e. að auka möguleika ungs fólka á að lifa og
starfa i Húnaþingi vestra. Einnig fór hún í er-
indi sinu yfir starfssemi Fmmkvöðlaseturs
ungs fólks í Húnaþingi vestra. Margrét Sig-
urðardóttir fjallaði um ferðamál og þær hug-
myndir sem ffarn komu á opnum fundum
verkefnisins. Einnig fjallaði hún um gerð við-
skiptaáætlana og fjármálanámskeið svo og
könnun sem gerð var meðal fyrirtækja í
Húnaþingi vestra um framtíðarsýn fyrirtækja
og tækifæri innan þeirra fyrir ungt fólk. Erling
Viðar Eggertsson sagði frá kynningum sem
fyrirtæki á svæðinu héldu fyrir ungt fólk.
Einnig fjallaði hann urn fyrirhugaða unglist-
hátíð en hún verður haldin 24-27 júli n.k. Að
lokunt afhenti Elín Jóna Rósinberg Skúla
Þórðarsyni sveitarstjóra Húnaþings vestra
eintak af lokaskýrslu verkefhisins.
Myndir frá kynningarfundi ern hér til hliðar.