Feykir - 16.06.2004, Page 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Aðalskipulag Skagafjarðar
Jökulsársvæðinu
slegið á frest
í þriðju tillögu að aðal-
skipulagi Skagaíjarðar 2004-
2016 er gert ráð fyrir að
frestað verði í allt að fjögur ár
skipulagi er lítur að virkjunar-
svæðinu við Jökulsámar, er
tengist Villinganesvirkjun og
Skatastaðavirkjun. Þetta kem-
ur ekki á óvart þar sem núver-
andi meirihluti sveitarstjómar
ávað í upphafi kjörtímabils að
taka ekki þátt í frekari undir-
búningi Villinganesvirkjunar.
Um aðalskipulagið var fjallað
á fundi skipulags- og bygging-
amefndar í síðustu viku og það
verður einnig til umfjöllunar á
sveitarstjómarfúndi nk. föstu-
dag.
Nefndin samþykkti að
kynna þessa þriðju tillögu
skipulagsins sveitarstjómar-
og nefhdafólki. Tillagan fari
síðan í almenna kynningu.
Gunnar Bragi Sveinsson odd-
viti ffamsóknarmanna í sveit-
arstjóm bókaði á umræddum
fundi að eðlilegt væri að
skipulagið yrði kynnt hið
fyrsta. „Samþykki mitt fyrir
því að tillagan sé kynnt felur
ekki í sér samþykki við alla
kafla hennar s.s. kafla 6.3.10.2
um veitur og virkjanir og aðra
kafla, er kunna að takmarka
möguleika á virkjun vatna-
svæðis Héraðsvatna og/eða
nýtingu orkunnar til atvinnu-
uppbyggingar.”
Bjami Maronsson formað-
ur nelndarinnar bókaði: „Ég
lýsi ánægju minni með 3. til-
lögu að aðalskipulagi Sveitar-
félagsins Skagafjarðar, sem nú
liggur fyrir til kynningar.
Fagna ber þeirri samstöðu sem
náðst hefúr í skipulags- og
byggingamefnd um megin-
hluta tillaganna en leggja þarf
áherslu á að reynt verði að ná
samkomulagi um kafla
6.3.10.2. Ég tel að góð sam-
staða innan sveitarstjómar um
aðalskipulag Skagafjarðar
2004-2016 sé ein helsta for-
senda þess að það geti nýst
sem best til hagsbóta fyrir þró-
un mannlífs og byggðar í hér-
aðinu á komandi ámm.”
Gaman í reiðskólanum
Þau voru ánægð krakkamir í Reiðskóla Ingimars Pálssonar á Sauðárkróki, þegar ljós-
myndari Feykis hitti þau í góða veðrinu í gær skammt ffá Sjávarborg. Námskeiðin í
reiðskólanum er jafhan vel sótt og að sögn Ingu Dóm Ingimarsdóttur reiðkennara verða
líka námskeið í júlí og ágústmánuði.
Landsmótin á Sauðárkróki í sumar
Ix jggæslukostnaðvirinn 2,5 milljónir
Úrskurður sem dómsmála-
ráðuneyti gerði nýlega um
löggæslukostnað vegna
landsmótanna á Sauðárkróki í
sumar felur í sér að mótshald-
arar þurfi að greiða um tvær
og hálfa milljón króna vegna
mótanna beggja, eina og hálfa
milljón vegna stóra mótsins
8.-11. júlí og milljón vegna
unglingalandsmótsins um ver-
slunarmannahelgina. Móts-
haldarar eru ósáttir vegna
þessa, finnst þessi skattur
ósanngjam, og íhuga m.a. að
fá fúnd með ráðherra vegna
þessa máls.
Þessi niðurstaða var kynnt
með bréfi frá sýslumanni
Skagfirðinga á dögunum, og
þar kemur fram að vegna
aukakostnaðar við löggæslu,
þar sem ekki er sólarhrings-
vakt hjá lögreglu og embættið
fámannað, muni þurfa að bæta
við þessum kostnaði við lög-
gæsluna.
Omar Bragi Stefánsson
framkvæmdastjóri Lands-
mótsins segir að mönnum
þyki þetta mjög ósanngjamt
gagnvart bæjum úti á lands-
byggðinni, í ljósi þess að það
liggi fyrir að þegar næstu tvö
landsmót verði haldin, í
Kópavogi og Akureyri, muni
ekki þurft að greiða þennan
aukakostnað, þar sem sólar-
hringsvaktir séu á þessum
stöðum og löggæslan öflug.
„Okkur finnst í raun þetta
vera aðför að íþróttahreyfing-
unni. Maður spyr sig hvort að
það komi að því að verði
mkkað löggæslugjald vegna
pollamóta og móta fyrir yngri
kynslóðina. Við emm ekki að
selja inn á mótið og einu
tekjumar sem við höfúm em
af þátttökugjöldum í íþrótta-
keppni. Við stöndum ekki
fyrir dansleikjahaldi, við emm
ekki að selja áfengi, og öll
dagskrá sem við stönduin fyrir
er búin klukkan hálftólf á
kvöldin. Þetta er allt annað
dæmi en t.d. landsmót hesta-
manna, þótt við séum ekki að
sneiða að hestamönnum. Þá
verðum við með öfluga
öryggisgæslu á mótinu og
fáum til þess aðstoð frá björg-
unarsveitum á svæðinu”, segir
Ómar Bragi.
—KTen^ift chjDI—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
• VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
mi
bílaverkstæði
Sími 453 5141
Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur \
& Bílauiðgerðir Hjólbarðauiðgerðir
Réttingar jfc Sprautun