Feykir - 16.06.2004, Blaðsíða 7
22/2004 FEYKIR 7
Smáauglýsingar
Til sölu!
Til sölu fellihýsi Dutshmen.
Aukahlutir: gjjótgrind, dimmer-
tjald í öðrum enda, nýjar fjaðr-
ir og stærri dekk. Stórt nýtt
fortjald að verðmæti 110.000.
Selst á 400.000. Upplýsingar í
símum 899 9714 og 860 1270.
Fæst geflns!
Dökk hillusamstæða fæst
gefins gegn því að verða sótt.
Upplýsingar í síma 864 1116.
Húsnæði!
Fljótlega losnar íbúð í Dvalar-
heimili aldraðra á Sauðártúni,
nú Flásæti 5. Upplýsingar
gefur Gestur Þorsteinsson í
síma v.4555302 h. 453 5225.
Auglýsið í Feyki
Þorsteinn Sæmundsson, Dr. Achim Beylich og Dr. Armelle Decaulne fyrir utan Náttúrustofu
Norðurlands vestra.
Sediflux ráðstefiia á Króknum
Næstkomandi helgi, þann
19. og 20. júní, munu um 40
jarðvísindamenn frá 12 löndum
hittast hér á Sauðárkróki í
tengslum við SEDIFLUX ráð-
stefhu, sem haldin er á vegum
Náttúrustofu Norðurlands
vestra. Að sögn Dr. Þorsteins
Sæmundssonar forstöðumanns
Náttúrustofu Norðurlands
vestra, sem ásamt Dr. Achim
Beylich er einn af aðal skipu-
leggjendum ráðstefhunnar, er
megin hluti þeirra vísinda-
manna sem kemur á ráðstefn-
una frá Evrópu, en einnig koma
vísindamenn ftá Japan, Kanada
og Suður-Afnku.
Þessi ráðstefna er fýrsti hluti
verkefnis sem nefnist
SEDIFLUX (Sedimentary So-
urce-to-Sink-Flux in Cold En-
vironments) sem er verkefni á
vegum Vísindaráðs Evrópu-
sambandsins. Verkefnið nær
yfir þijú ár frá 2004 til 2006 og
er ráðstefha hér ein af fjórum
slíkum sem haldnar verða í
tengslum við það. Næsta ráð-
stefna verður haldin í
Clennont-Ferrand í Frakklandi
í janúar 2005, sú þriðja í
London haustið 2005 og sú síð-
asta í Þrándheimi í Noregi
haustið 2006.
Dr. Achim Beylich er aðal-
skipuleggjandi verkefnisins en
auk hans em 10 vísindamenn
frá átta löndum í stýrihóp þess,
en þeir em Dr. Samuel Etienne,
Clermont-Ferrand, Frakklandi,
Dr. Bemd Etzelmuller, Osló,
Noregi, Dr. Vyacheslav V.
Gordeev, Moskvu, Rússlandi,
Dr. Jukka Kayhkö, Turku,
Finnlandi, Dr. Volker Rachold,
Potsdam, Þýskalandi, Dr.
Andrew J. Russell, Keele/-
Newcastle, Englandi, Prófessor
Karl-Heinz Schmidt, Halle/S.,
Þýskalandi, Dr. Þorsteinn Sæ-
mundsson, Sauðárkróki, ís-
landi, Dr. Fiona S. Tweed,
Staffordshire, Englandi og Dr.
Jeff Warburton, Durham,
Englandi.
Tilgangur ráðstefhunnar og
verkefhisins í heild sinni er að
fá saman jarðvísindamenn sem
em að vinna að rannsóknum á
setflutningi í fjalllendi á kaldari
svæðum Evrópu, svokölluðum
há Arktískum svæðum og þeim
breytingum sem eiga sér stað á
þessum flutningi vegna breyt-
inga á veðurfari sem á sér stað í
dag. Þessi svæði em til dæmis
ísland, norðanverð Skandinav-
ía, Svalbarði og Alpamir. Ann-
ar megin tilgangur með verk-
efninu er að gera bæði almenn-
ingi og ekki síst stjómmála-
mönnum betur grein fyrir þeim
miklu breytingum sem eiga sér
stað á þessu svæðum, aðallega
vegna þeirra veðurfarsbreyt-
inga sem eiga sér stað í dag.
í tilefni ráðstefnunnar hefur
þremur vísindamönnum verið
boðið á ráðstefhuna, en þeir em
allir mjög ffamarlega á sínu
vísindasviði. Þeir em prófessor
Olav Slaymaker, ffá Vancou-
ver í Kanada, prófessor
Norikazu Matsuoka, sem er ffá
Tsukuba í Japan og Dr. Philip
A. Wookey sem er ffá Uppsöl-
um í Svíþjóð.
Að sögn þeirra Þorsteins og
Dr. Achim Beylich er mikill á-
hugi á þessu verkefni erlendis.
Yfir eitt hundrað vísindamenn
em meðlimir í því nú í dag víðs
vegar ffá Evrópu og þar af sjö
frá Islandi. Þorsteinn segir
Áskrifendur góðir!
Þeir sem eiga ógreidda seðla fyrir
ákri ftargj öldu m eru vinsamlegast beðnir
að greiða hið fyrsta.
einnig að það sé mjög mikil-
vægt að halda slíkar ráðstefnur
hér á landi og fá hingað jarðvis-
indamenn til að kynna sér að-
stæður á Islandi. Hugsanlega
gæti það leitt af sér auknar
rannsóknir hérlendis og jafnvel
aukið samstarf.
Þeir Þorsteinn og Dr. Achim
Beylich, sem ásamt Dr.
Armelle Decaulne og Olgu
Sandberg hafa unnið að skipu-
lagningu ráðstefnunnar hér á
Sauðárkróki, em mjög ánægðir
með allar viðtökur sem þeir
hafa fengið hér á Króknum.
Þeir vilja koma á framfæri
kæm þakklæti til allra þeirra
sem lagt hafa þeim lið við und-
irbúning ráðstefnunnar. Þeir
vilja einnig benda á að þó að
hér sé um að ræða vísindaráð-
stefnu þá er áhugasömum
fijálst að mæta á ráðstefnuna
og kynna sér það sem þar er
verið að fjalla um.
Þökkum af alúð auðsýnda samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu
Sigurlaugar Andrésdóttur
frá Kálfárdal, Hásæti 5c Sauðárkróki
Amdís Ágústsdóttir Þórður Bjamason
Elsa Ágústsdóttir Guðmar Pétursson
Andrés Viðar Ágústsson Sigrún Aadnegard
Gunnar Randver Ágústsson Steinunn Helga Hallsdóttir
Hallfríður Hanna Ágústsdóttir
Þorbjörg Steingríms Ágústsdóttir Reynir Ö. Stefánsson
og ömmuböm.
Króksara - Dagur
KRÓKSARAR allir, búandi og brottfluttir.
Mætum öll á Hafnardaginn á Sauðárkróki þann 17. júlí í ár. Notum þennan
árlega gleði dag á Króknum til að hittast, svo að jarðarfarir verði ekki eina
tilefnið til að endurnýja gömul kynni.
Bjami Dagur, Tómas Dagur og Helgi Dagur.
ít
Skagafjörður
Auglýsing vegna
kjörskrár
Kjörskrá Sveitarfélagsins Skagafjarðar vegna
Forsetakosninganna 26. júní 2004 liggur frammi í
Ráðhúsi, Skagfirðingabraut 21, alla virka daga frá
kl. 9,00 til 16,00 til kjördags.
Sveitarstjóri.