Feykir - 16.06.2004, Qupperneq 6
6 FEYKIR 22/2004
il
Frá Sveitarfelaginu
Skagafjörður SkagafirðÍ
Mikið að gerast í kyimingarmálum
Það verður ekki annað sagt en nokkuð sé lagt
í að kynna Skagafjörð um þessar mundir, ekki síst
fyrir ferðamönnum. Nýlega var endurprentaður
kynningarbæklingur fyrir Skagaijörð þar sem
glæsilegur hvítur hestur prýðir forsíðuna og mun
þeim bæklingi verða dreift á allar upplýsingamið-
stöðvar í landinu innan tíðar. Honum hefur þegar
verið dreift á Ferðatorgi í Smáralind og á sýning-
unni Sumarið 2004 í Reykjavík, í ferð Karla-
kórsins Heimis til Skotlands og á nýafstöðnu
Lionsþingi, svo eitthvað sé nefht. Auk þess er
ráðgert að dreifa honum á landsmóti hestamanna á
Hellu í næsta mánuði. I bæklingnum er að finna
fróðleik um Skagafjörð og glæsilegar myndir, auk
þess sem í honum er listi yfir alla þjónustu sem
ferðamenn sækja í Skagaijörð, þjónustuaðilum að
kostnaðarlausu. Auk þess eru í bæklingnum kort
af Skagafirði. Anægjulegt er að bæklingurinn var
unninn „í heimabyggð”, uppsetning var i höndum
Hinna sömu og Hvítt og svart prentaði.
Auk þess var á dögunum dreift inn á öll heim-
ili á landinu kynningarriti um Landsmótin í sumar
þar sem einnig var lögð áhersla á að draga ffam þá
fjölbreyttu afþreyingu og það öfluga mannlíf sem
finna má í Skagafirði. Eiga starfsmenn Lands-
mótanna heiður skilinn fyrir að hafa staðið vel að
þeirri útgáfu.
Upplýsingamiðlun til gesta á Landsmótum
UMFÍ á Sauðárkróki í sumar verður mikil.
Ætlunin er að reisa tjald á Flæðunum þar sem
Upplýsingamiðstöðin mun hafa aðsetur og miðla
upplýsingum, auk þess að selja handverk ffá
Alþýðulist, líkt og gert er í Varmahlíð.
Mikið samstarf er í gangi milli Sveitafélagsins
Skagafjarðar og Markaðsskrifstofú ferðamála á
Norðurlandi. Markaðsskrifstofan dreifir nú kynn-
ingarefni um Norðurland bæði hérlendis og
erlendis, auk þess sem hún hefúr staðið fyrir kynn-
ingarátökum á Norðurlöndunum og víðar. Ferða-
þjónustuaðilum hefúr ennþá ekki verið boðið að
gerast þátttakendur í rekstri stofúnnar en það mun
gerast innan tíðar.
Gert er ráð fyrir að tveir sjónvarpsþættir verði
teknir upp í Skagafirði í sumar. Annars vegar er
um að ræða þátt í syrpunni Krakkar á ferð og flugi
sem Linda Ásgeirsdóttir stýrir, en þessir þættir
hafa notið mikilla vinsælda hjá krökkum á öllum
aldri, enda afar vandaðir og vel unnir þættir. Þá
mun Súsanna Svavarsdóttir heimsækja Skagafjörð
á næstunni og taka upp hér þátt í seríunni Lands-
homaflakkarinn sem sýnd verður á Skjá einum í
sumar. Þátturinn verður helgaður ferðaþjónustu
og afþreyingu í héraðinu. Sveitarfélagið Skaga-
fjörður styrkir báða áðumefnda sjónvarpsþætti.
Þá átti sjónvarpsfólk ffá Stöð 2 einnig leið um
Skagafjörð fyrir skömmu þar sem þau tóku upp
efni fyrir Island í bítið.
Stefnt er að því að bæta við heimasíðu sveitar-
félagsins www.skagafjordur.is síðari hluta sumars
upplýsingum um ferðaþjónustu í Skagafirði en
þær er nú að fmna á www.northwest.is. Þá stendur
yfir vinna við nýjan vef fyrir ferðaþjónstu á
Norðurlandi öllu, sem vonandi mun líta dagsins
ljós á þessu ári.
Þá er ráðgert að ráðast á ný í útgáfú fféttabréfs
fyrir íbúa Skagafjarðar í haust.
Auk alls þessa má nefna að starfsemi í
Upplýsingamiðstöðinni í Varmahlíð er komin á
fúllt, þar er síminn 455 6161 og netfangið er
upplysingar@skagafjordur.is.
Það er von á gestum!
Gestakomur í Skagafjörð verða með mesta
móti í ár. Búist er við 25.000 fleiri gestum í sumar
en í venjulegu ári. Gestrisni Skagfirðinga er
annáluð, en til að auka vellíðan gesta okkar og
ekki minnst okkar sjálffa, þarf sveitarfélagið að
vera snyrtilegt. Því hvetur Sveitarfélagið
Skagafjörður alla íbúa fjarðarins til að taka til í
sínu nánasta umhverfi.
Með sameinuðu tiltektarátaki íbúa sveitar-
félagsins getum við með stolti boðið gesti okkar
velkomna í Skagafjörð.
ÆTLUNIN ER AÐ BUA TIL GLÆSILEGU5TU SKRUÐGONGU
ALLRA TÍMA Á SAUÐÁRKRÓKI
HÖLDUM í HEFÐIRNAR!!!
I Varmahlíó veróa hátíóarhöld fyrír unga sem aldna í höndum Ul Smárans.
Dagskrá:
14:00 Hátíðarhöld á íþróttavellinum í Varmahlíð.
- Hátíðarræða
- Hestamenn teyma undir börnum
- Farið verður í leiki, bœði fyrir börn og fullorðna
- Crillveisla við Varmahlíðarskóla, heitt kaffi á könnunni.
VIÐ SKORUM A ÞIG AÐ VERA MEÐ
Dagskrá:
12:30 Mætíng í andlítsmálun á planíó víð Skagfíróíngabúð.
13:30 Shrúðganga frá Shagfirðingabúð að Faxatorgi.
I göngunni verða furðufígúrur, skátar, krókódíll ogýmislegt annað sem
ekki sést á hverjum degi á Sauðárkróki!
Hinn glæsilegi Doddi ásamt Tikk Takk genginu leiða gönguna!
Ábær verður á staðnum með gasblöðrur, fána, rellur og annan
17. júní varning til sölu
NÚ MÆTA ALLIR í SKRÚÐGÖNGU MEÐ ÍSLENSKA FÁNANN,
RELLUR, BLÖÐRUR EÐA ANNAÐ SKEMMTILEGT... ,-------
... OG AÐ SJÁLFSÖGÐU MEÐ GÓÐA SKAPIÐ!
14:00 Hátíðarhöld á Faxatorgi á
- Hátíðarrœða
- Ávarp fjallkonu
- Danssýning
- Uppistand
- Tónlistaratriði
- Hljómsveitin Von
Á Hofsósi gangast íbúasamtökin út aó austan fyrir fjölbreyttum hátíóarhöldum.
Hestamenn safnast saman hL 13:00 við hesthús Svaða hjá Hofsósi.
Allir hvattir til þess að mœta.
Hátíóarhöld við Grunnshólann á Hofsósi
- Clæsileg hópreið hestamanna
- Ávarp íbúasamtakanna út að austan
- Ávarp fjallkonunnar
- Víðavangshlaup
- Leikir - fyrir börn og fuUorðna
- Hestamenn teyma undir börnum
- Kaffiveitingar í Höfðaborg í umsjón Kvenfélags Hofshrepps
Fjölbreytt dagshrá á Flœóunum: wEtÁ-L C-
- Skáta-Tívolí . Stf
- Þorsteinn Broddason stjórnar reiðhjólaþrautum
og fjallahjólakeppni fyrir krakka á grunnskólaaldri. v *
- Ingimar Pálsson verður með hesta á staðnum og teymir undir þeim sem vilja
- Shell-Sport verður með sælgœti, gasblöðrur, og aðrar 17. júní vörur á svæðinu.
Frjálsíþróttamót á SauóárhróhsvcUi
Keppt í aldursflokkunum 11-12 ára, 13-14 ára og 15 ára og eldri.
11-12 ára: 60m - langstökk - kúluvarp og 5x80m boðhlaup
13-14 ára: 80m - hástökk - spjótkast og 4x1 OOm boðhlaup
17:00
HofsÓS: