Feykir - 17.11.2004, Page 7
40/2004 Feykir 7
Naín: Jóna Fanney Friðriksdóttir.
Árgangur: 1963.
Fjölskylduhagir: í sambúð með Hirti
Einarssyni og samanlagt eigum við
4 börn, nokkra hesta og kött.
Starf / nám: Bæjarstjóri. Er með
M.A. gráðu í fjölmiðla- og stjórn-
málafræðum frá Freie Universitát í
Berlin.
Bifreið: Mitshubisi Pajero.
Hestöfl: ...hvað erþað?
Hvað erí deiglunni: Að líta björtum
augum á framtíðina þegar ég er
búin hjá tannlækninum í vikunni.
Hvernig hefurðu það?
Ljómandi, nema ég þarf að fara til
tannlæknis í vikunni.
Hvernig nemandi varstu?
Rumpaði þessu eiginlega af, fór í
sturtu með plast yfir bókinni og las
síðan alla nóttina fyrir próf. Þessi
aðferð hentaði mér vel. Man eftir
að hafa kveikt á vasaljósi undir
sæng á yngri árum þegar próf stóðu
yfir og yfirvaldið hafði siökkt Ijósið í
herberginu mínu. Félagsmálin áttu
hug minn á milli prófa.
Hvað er eftirminnilegast frá ferm-
ingardeginum?
ÞegarLeó Ijósmyndari á ísafirði bað
móður sína um hjálp til að fá okkur
systur til að brosa í myndatökunni.
Frúin mætti þá með tinkassa, sagði
við okkur "sko stelpurl", ýtti á takka
og upp stökk trúður með doo-
jójonnnggg hljóði. Fyrir vikið erum
við með uppsett hár i hláturskasti á
veggjum fjölskyldunnar í dag.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðirstór?
Fisksali, ég öfundaði alltafsvo fólkið
í fiskbúðinni þegarþað pakkaði fiski
inn í dagblöð.
Hvað hræðistu mest?
Að mér verði einhvern tima sýndur
allur sá matur sem ég hef borðað
um ævina.
Hver var fyrsta platan sem þú
keyptir (eða besta)?
Abba plata, hét hún ekki
"Survival" eða varþað
"Arrival"... ?
Hvaða lag ertu líklegust til
að syngja í Kareókí?
Five, seven, 0, five með
Ásdísi Guðmundsdóttur,
bæjarfulltrúa með meiru.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)?
60 Minutes og öðrum
góðum fréttaskýringa-
þáttum.
Besta biómyndin?
Braveheart.
Bruce Willis eða George
Clooney / Angelina Jolie eða
Gwyneth Paltrow?
Bruce og Gwyneth.
Hvað fer helst í innkaupakörfuna
sem ekki er skrifað á tossa-
miðann?
Kolsýrt vatn sem er eiginlega það
heimskulegasta sem hægt er að
kaupa á íslandi, sérstaklega þegar
maður á soda-stream tæki heima.
Hvað er í morgunmatinn?
Hrökkbrauð með osti og sultu og
gott sterkt kaffi.
Uppálialds málsháttur?
Það læra börnin sem fyrir þeim er
haft.
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar
mest til þín?
Engin, nema þá þær sem Sigmund
teiknar.
Hvert er snilldarverkið þitt í eld-
húsinu?
Saltfisksréttir.
Hver er uppálialds bókin þín?
Híbýli vindanna og Lífsins tré eftir
Böðvar Guðmundsson.
Efþú gætir hoppað upp í flugvél og
réðir hvert hún færi, þá færirðu...
til Galapagoseyja.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fariþínu?
Oþolinmæði.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari annarra?
Þegar fólk er sjálfhverft.
Enski boltinn - hvaða lið og af
hverju?
Tottenham Hotspur...það er svo
gaman að bera það fram.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mæturá?
Einari Karli Hjartarsyni, hástökkv-
ara og fóstursyni mínum.
Heim í Búðardal eða Diskó Friskó?
Tvímælalaust Diskó Friskó.
Hver var mikilvægasta persóna 20.
aldarinnar að þínu mati?
Nelson Mandeta.
Ef þú ættir að dvelja alein á
eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu
með þér?
Bát, neyðarblys og bækur.
Hvað er best í heimi?
Fjölskyldan mín.
íþróttafréttir
Intersport-deildin í körfubolta
Tap í Grindairík
Tindastóll spilaði við lið
Grindavíkur í Grindavík í
gærkvöldi. Stólarnir
höfðu yfirhöndina í fyrri
hálfleik en jafnræði var
með liðunum í þeim
síðari en það voru
Grindvíkingar sem áttu
góðan lokasprett og
sigruðu 102-95. Ron
Robinson var í banni í
leiknum og munar um minna.
Morgunblaðið segir frá því að
Grindvíkingar voru í slæmum
málum strax eftir þrjár mínútur
en þá var Darrel Lewis kominn
með þrjár villur. Stólarnir voru
yfir 23-32 eftir fyrsta leikhluta
en heimamenn söxuðu á
forskotið og jöfnuðu 45-45 og
voru síðan yfir 51-48 í hálfleik.
Leikurinn var í járnum í þriðja
og íjórða leikhluta eða allt þar
til tvær mínútur voru eftir og
staðan 91-93 fyrir Stólana. Þá
gerðu Grindvíkingar 11 stig í
röð og því fór sem fór.
Lokatölur 102-95.
Kristinn Friðriksson þjálfari
Grindvíkinga sagði vörn
heimamanna hafa verið
arfaslaka en hældi þó sírium
mönnum fyrir að hafa haldið
góðum anda og baráttuþreki.
Hann sagði Tindastólsmenn
hafa komið tilbúna til leiks.
INTERSPORTDEILDIN í KÖRFU
íþróttahúsið í Grindavík
GRINDAVÍK102
TINDASTÓLL 95
Stig Tindastóls: Fletcher30, Svavar
26, Nikola 18, Axel 14, Björn 5 og
Andri 2.
Yngri körfuboltakempur
Kormákur
Fjölliðamót hjá 8. flokki í
körfu fór fram á Sauðár-
króki um helgina. Til leiks
mættu auk Tindastóls lið
Keflavíkur, KR, Snæfell og
Ungmennafélagið Kor-
mákur frá Hvammstanga.
Það er skemmst ffá því að
segja að lið Kormáks rúllaði
mótinu upp og sigraði alla sína
leiki. Lið Kormáks var skipað
bæði strákum og stúlkum sem
sýndu góð tilþrif og skemmti-
lega takta.
komf sá og sigraði
Þjálfarar Kormáks voru að
vonum hinir ánægðustu með
árangurinn, áttu ekki von á
þessu en sennilega er þetta í
fyrsta sinn sem blandað lið
kemst í A-riðil.
í öðru sæti var Snæfell og
Tindastóll í því þriðja, en held-
ur hitnaði í kolunum í viður-
eign þessarra liða og þurftu 2
leikmenn, ffá sitthvoru liði að
fara af leikvelli sökum "óíþrótta-
mannslegrar hegðunnar". Þetta
voru lokaleikirnir í 2. umferð
fjölliðamóta fyrir jól, og hefst 3ja
umferð væntanlega á nýju ári.
Þá heimsótti 11. flokkur
Tindastóls Akurnesinga en þar
öttu strákarnir kappi við lið ÍA,
Þór Ak. og Ármann /Þrótt. Þeir
unnu 2 leiki og töpuðu einum
sem dugði þeirn til að hækka
um riðil og munu þeir leika í A-
riðli á næsta móti. Sannarlega
verðskuldað hjá strákunum, þvi
að leikinn gegn Ármanni/Þrótti
sigruðu þeir með 104 stiga
mun, 134-20.
Intersport-deildin í körfubolta_
Sunnanmenn sigruðu
Tindastóll beið lægri hlut
fyrir spræku liði Hamars/
Selfoss í Síkinu í kvöld.
Leikurinn var frekar til-
þrifalítill og stemning í
slakari kantinum, bæði
hjá leikmönnum og áhorf-
endum.
Leikurinn var jafn fyrstu
mínúturnar en Stólarnir áttu
hreint skelfilegan kafla um
rniðjan fyrri hálfleik þar sem
staðan breyttist úr 18-18 í 18-37
og skoraði liðið ekki stig í hátt í
sjö mínútur. Staðan í hálfleik
38-46.
Svavar Pálsson reyndist
Stólunum erfiður og var eins og
sunnanmenn hefðu tekið með
sér vegg til að hafa í vörninni. Þá
reyndist það hið versta mál fyrir
heimamenn að vera án Rons
Robinson en hann var að taka
út leikbann. Þannig tóku
gestirnir 30 varnarfráköst en
Stólarnir aðeins 13 og munar
um minna.
Það verður þó að hrósa
Stólunum fyrir að koma sér
aftur inn í leikinn og fljótlega í
fjórða leikhluta setti Nikola
niður tvær 3ja stiga körfúr og
kom Stólunum yfir 68-67.
Næstu mínútuna skiptist liðin á
um forystuna en síðan var eins
og heimamenn skorti þrek og
gestirnir náðu ágætu forskoti
sem þeir voru ekki í vand-
ræðum með að halda.
Lokatölur 82-93
Bestu leikmaður Stólanna í
k\'öld var Fletcher, en aðrir voru
mistækir. Næsti leikur hér heima
er gegn Njarð\ik 26. nóvember.
INTERSPORTDEILDIN í KÖRFU
íþróttahúsið á Sauðárkróki
TINDASTÓLL 82
HAMAR/SELFOSS 93
Stig Tindastóls: Fletcher 29 Svavar 22,
Nikola 20, Axel 4, Björn 4 og Ragnar 3.
smáauglýsingar Sendið smáauglýsingar til frírrar birtingar á feykir@krokur.is
Enn er tími til að koma sér í form fyrir jólin, Herbalife getur hjálpað þér. Kíktu á www.heilsufrettir.is/sigrungrims og fáðu ókeypis heilsuskýrslu. eða hringdu í 452 4538. E-mail: sigrun-mummi@simnet.is Terrano til sölu Nissan Terrano II, árg. 1998, ekinn 160.000, dökkgrænn, nýskoðaður. Dráttarkrókur, disil, CD-spilari, raf- drifnar rúður, framljósahlifar, nagladekk, grind á þaki ofl. Uppl. í síma 4671055 eða torsig@simnet.is. Bíll til sölu Til sölu Toyota Corolla árgerð 2000. Billinn er3ja dyra, 6 gira og ekinn um 38 þúsund kilómetra. Velmeð farinn toppbill. Upplýsingar i síma 893 5417.