Feykir - 01.12.2004, Blaðsíða 8
Fevkir
Óháð fréttablað Jv á Norðurlandi vestra
1. desember 2004 :: 42. tölublað :: 24. árgangur
QShejJ,*
VlDE
Sími:
453 6666
Sími:
453 6622
Skjár Einn og Síminn
Símasjónvarp á
Hvammstanga
Skjár Einn og Síminn standa fyrir Fjölskylduskemmt-
un í Félagsheimilinu á Hvammstanga klukkan 17:00 í
dag, miövikudag. Tilefnið er að útsendingar nást nú á
Hvammstanga.
Síminn og Skjár Einn gefa
íbúum bæjarfélaga á lands-
byggðinni kost á að fá sjón-
varpsmerki um símalínur nteð
hjálp ADSL tengingar. Munu
núverandi viðskiptavinir ADSL
þjónustu Símans njóta forgangs
hvað varðar uppsetningu
þjónustunnar. Þau bæjarfélög
sem hófú söfnun fyrir sjón-
varpssendum til að geta tekið á
móti merki Skjás Eins njóta for-
gangs en Hvammstangi var í
þeirra hópi. Þjónustan verður
boðin á fleiri stöðum í áföngum
á næsta ári.
Boðið verður upp á áskrift-
arleiðina Topp 10 og hafa við-
skiptavinir þar aðgang að sjö
erlendunt sjónvarpsstöðvum
auk þriggja íslenskra og er
mánaðargjaldið fyrir þær 1.695
krónur. Stöðvarnar sem um
ræðir eru Skjár Einn, Enski
boltinn, RÚ\'r, Eurosport, Sky
News, Discovery Channel,
Cartoon Network, BBC Prirne,
MTVogDRl.
Aðventutónleikar í Reykjavík
Heimi vel fagnað
fyrir fullu húsi
Karlakórinn Heimir hélt sína árlegu
aðventutónleika fyrir fullu húsi í
Miðgarði í Varmahlíð síðastliðinn
sunnudag.
Á söngskrá Heimis að þessu sinni eru 12
lög í anda aðventunnar. Heimir heldur suður
yfir heiðar í vikulokin og verður nteð tón-
Frá tónleikunum í Miðgarði. Mynd: Elenora
leika í Grafarvogskirkju föstudaginn 3.
desember kl. 20:30. Sala ntiða hefst kl. 18:00
og eru allir hvattir til að mæta.
Eimskip hættir strandsiglingum
90 ára þjónustu lokið
Mánafoss í höfn á Sauðárkróki. Mynd: GS
Strandsiglingaskip Eimskipafélagsins, Mánafoss,
kom í síðasta sinn til Sauðárkróks aðfaranótt sunnu-
dags. Eimskip hefur ákveðið að leggja af strand-
siglingar hringleiðina umhverfis ísland, að minnsta
kosti í bili.
Brynjar Pálsson formanður agsins Skagafjarðar segir ntjög
Samgöngunefndar Sveitarfel- slæmt að strandsiglingarnar
Eintskip leggist af eftir um 90
ára þjónustu við landsbyggð-
ina. Nú virðist siglingaleiðin
vera Reykjavík, nágranna-
hafnir Reykjavíkur, Vest-
mannaeyjar og Eskifjörður.
„Þetta finnst mér afar mikil
skerðing fyrir hafitir landsins.
Nú á að flytja alla gáma á
bílum ffaiu og til baka á milli
Reykjavíkur og Sauðárkróks
og ég held að það geti ekki
verið hagstætt," segir Brynjar.
Samkvæmt þeim upplýs-
ingunt sem Gunnar Stein-
grímsson hafnarvörður gaf
Feyki kom Mánafoss tjórum
sinnum til Sauðárkróks í
nóvember. Gámaflæðið var
talsvert en 255 gámaeiningar
komu til hafnarinnar og 143
gámaeiningar fóru ffá höffi-
inni og þar af voru 94 gánta-
einingar steinull. Þetta gera
lágmark 72 ferðir með gáma-
bíl.
7. bekkingar æfa upplestur
Lesið í leikskólanum
Sjöundi bekkur Árskóla
tekur árlega þátt í stóru
Upplestrarkepnninni
sem haldin er í grunn-
skólum um allt land.
Lestur fyrir leikskólabörnin er
vettvangur fyrir þau til að æfa
sig og í gærmorgun kíkti
Feykir inn í leikskólann
Furukot á Sauðárkróki þar
sem 7. bekkingar voru mættir
til að lesa og virtist leik-
skólakrökkunum falla heirn-
sóknin vel í geð.
Að sögn Kristrúnar
Ragnarsdóttur leikskólastjóra
í Furukoti var þetta fyrst reynt
í fyrra og var þá tengt degi
íslenskrar tungu sem er 16.
nóvember ár hvert. 7. bekk-
ingar voru þá búnir að velja
sér bækur með góðurn fyrir-
vara og ætá sig heima.
Ferðaþjónusta í Skagafirði
Erfiðir tímar framundan
hjá Eyjaskipum
Eyjaskip ehf., sem boðið
hafa upp á eyjaferðir og
siglingar um Skagafjörð
er í erfiðum málum þar
sem að á dögunum var
bátur fyrirtækisins,
Straumey, boðinn upp og
var það Byggðastofnun
sem leysti bátinn til sín.
Eyjaskip keypti bátinn
sumarið 2000 en báturinn, sem
tekur 60 farþega í sæti, hafði
verið notaður við siglingar um
Breiðafjörð.
Að sögn Ólafs Jónssonar
stjórnarmanns í Eyjaskipunt
ehf. hafði rekstur bátsins
gengið ágætlega síðustu tvö
árin en forlíðarvandi reyndist
félaginu erfiður. Eins og staðan
er í dag er því allt útlit fyrir að
engar siglingar verði um
Skagafjörð á vegunt Eyjaskipa
næsta sumar.
Flísar
-flotgólf
múrviðgerðarefni
AÐALSTEINN J.
MARÍUSSON
l Sími: 453 5591 • 853 0391 « 893 0391 J
toyota :: tryggingamiðstöðin :: kodak express :: bækur og ritföng :: ljósritun í lit
bókabúðin
D
Z
X
gormar ogplöstun fleiraogfleira
BÓKABÚÐ
BRYBJARS
BÓKABÚÐ BRYNJARS KAUPANGSTORGI 1 550 SAUÐÁRKRÓKUR SlMI 453 5950 FAX 453 5661 bokabud@skagafjordur.com
- -óli'jr' ana í -TjolSK.jId'tnOjl