Feykir


Feykir - 05.01.2005, Síða 1

Feykir - 05.01.2005, Síða 1
5. janúar 2005 :: 1. tölublað :: 25. árgangur Fréttablaðið á Norðurlandi vestra RAFVERKTAKAR - sérverslun með raftæki rafsjá hf Sæmundargötu 1 Sauðárkróki Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins styrkir nýtt upplýsingatækniverkefni Þrír aðilar í Skagafirði taka þátt í stóru Evrópuverkefni Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins (NPP) hefur samþykkt að styrkja verkefnið Broadband in Rural and Remote areas (BIRRA)og verður verkefnið hluti af Interreg IIIB áætlun NPP. Brennuleyfi afturkölluð vegna slæmrar veðurspár Brennunni frestað um sólarhring Sjö íslenskir aðilar verða þátt- takendur í verkefhinu, þar af þrír á Sauðárkróki; Byggða- stofnun, Leiðbeiningamið- stöðin ehf. og Sveitarfélagið Skagafjörður. Verkcfiiið hefst í janúar. Kostnaður við þátttöku íslands verður rúmar 13 milljónir og heildarkostnaður urn 66 nrilljónir króna. Aðrir þátttakendur frá íslandi eru; Isafjarðarbær, Síminn, Póst og Fjarskipta- stofiiun og IMG Deloitte ehf en auk þess taka þátt í verk- efninu aðilar frá Finnlandi, Svíþjóð og Skotlandi. Að sögn Þórarins Sólmundarsonar, sér- fræðings hjá Byggðastofiiun, er markmiðið með verkefiiinu að búa til verkfæri til að skilgreina stöðu sveitarfélaga á sviði upplýsingatækni þar sem horft er til þátta eins og e-learning, e- care, e-work, e-government, e- business og jafnvel fleiri þátta, s.s. menningarstarfsemi. Islen- ska áherslan í verkefninu er á stöðugreiningu, markmiða- setningu/framtíðarsýn, áætl- anagerð og lausnir. Að sögn Þórarins er um að ræða nokkurskonar forverk- efiii fýrir stærri verkefiri, sem eiga að flýta fýrir ffamþróun á sviði hagnýtingar upplýsin- gatækninnar og stuðla að jöfiiu aðgengi að þeim tækifærum sem hún veitir. Þetta verði m.a. gert með því að hagnýta sér upplýsingar ásamt sérfræði- þekkingu samstarfsaðila og annarra við lausn sameigin- legra viðfangsefna, jafhframt því að mynda gagnleg tengslanet. Flugmyndin að BIRRA kemur upphaflega frá Kemi- Tornio Polytechnic (KTP) í Finnlandi sem fer með verkefnisstjórnun. Verkefnislok eru áætluð í júnílok 2006. Lokaráðstefna verkefnisins verður haldin á íslandi þar sem gerð verður grein fýrir niðurstöðum þess. Póst og fjarskiptastofiiun er matsaðili verkefiiisins. Eins og flestum er í fersku minni máttu Króksarar gjöra svo vel að fresta áramótabrenn- unni um sólarhring. Leyfi til að halda brennur voru afturkölluð enda var veðurspáin fyrir gaml- árskvöld hin versta. Þegar til kom reyndist veðrið með skásta móti og það var einungis síðasta hálftím- ann á árinu 2004 sem rétt þótti að standa með bakið í vindinn og flugeldafarganið. Það er því ekki ósennilegt að einhverjir hafi hugsað veðurfræðingum þegjandi þörfina. Þetta þýddi auðvitað að loks þegar kveikt var í brenn- unni í iðnaðarhverfmu á Króknum að kvöldi nýárs- dags, var nokkur vindur og talsverð hríð. Fólk lét leiðinlegt veður þó ekki mikið á sig fá og kvaddi gamla árið í léttu skapi undir glæsilegri flugeldasýningu Björgunar- sveitarinnar. Fram kernur á netmiðlum að Flúnvetningar áttu ekki í vandræðum með að klára sig af áramótabrennum og flugel- dasýningum sem tókust með miklum ágætum. Þrettándabrenna Skátafélagið Eilífsbúar stendur fýrir Þrettándabrennu þann 6. janúar - á þrettándanum - og hefst dagskráin á því að farin verður blysför frá slökkvi- stöðinni á Sauðárkróki kl. 20:00, að brennunni neðan iðnaðarsvæðisins. Kveikt verður í brennunni þegar göngufólk mætir á staðinn. Úthlutun á veiðiheimildum í Barentshafi_ FISK fær um 736 tonn Fiskistofa hefur nú úthlutað aflamarki í Barentshafsþorski til einstakra fiskiskipa. Á árinu 2005 er heimilt að veiða í lögsögu Noregs 3.712 tonn af slægðum þorski en 2.320 tonn í lögsögu Rússlands. Skip FISK fengu úthlutað rúmlega 453 tonn- um í norskri lögsögu og um 283 tonnunr í rússnesku lögsögunni. Samtals um 736 tonn. Málmey SK 2 fær úthlutað tæpum 171 tonni í norskri lögsögu og um 107 tonnum í rússneskri lögsögu. Hegra- nesið fær tæp 80 tonn í norskri lögsögu og tæp 50 tonn í rússneskri lögsögu. Arnar HUl fær úthlutað rúmlega 176 tonnum í norsku lögsögunni en ríflega 110 tonnum í þeirri rússn- esku . Þá fær Klakkur út- hlutað tæpum 17 tonnunr í rússneskri lögsögu og tæp- lega 27 tonnum í þeirri norsku. ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Bílaviðgerðir, FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA BÍLA- OG SKIPARAFMAGN VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA hjólbarða viðgerðir, réttingar og sprautun —ICleM^tff ehj3— /11 bílaverkstæði XJJEU Aðalgötu 24 • Sauðárkróki • Sími 453 5519 • Fax 453 6019 Sæmundargötu 1b • 550 Sauðárkrókur • Sími 453 5141

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.