Feykir


Feykir - 05.01.2005, Síða 8

Feykir - 05.01.2005, Síða 8
©s ll leJ 1 Sími: Mett 453 6666 Vll ) m Sími: ulK 4536622 Á þriðja þúsund skráðra muna úr héraði Kristján búinn að pakka safninu Minjahúsið á Sauðárkróki skoðað. Samningur sveitarfélagsins Skagafjaröar við Kristján Runólfsson, safnara á Sauðárkróki, um samstarf hans og sveitarfélagsins um rekstur einkaminjasafn hans rann út um áramótin. Þannig er mál með vexti að árið 1997 lagði Sauðárkróksbær Kristjáni til húsnæði undir minjasafri hans og kostaði upp- setningu sýningar fyrir hann í Minjahúsinu á Sauðárkróki. Síðan hefúr Kristján fengið árlegan rekstrarst)'rk auk þess sem hann hefúr fengið allan aðgangseyri af eigin sýningu og sýningum Byggðasafns Skag- firðinga í Minjahúsinu. Kristján segir að sér hafi verið boðinn nýr samningur sem hafi verið þess eðlis að hann hafi ekki getað gengið að honum og sé því á leið suður nteð muni sína. „Það var minnkað við mig plássið unt helnting og mínir munir alveg stúkaðir af. Ástæða þess er sjálfsagt sú, að Byggða- safir Skagfirðinga ætlar að nota plássið undir eitthvað annað...” Ársæll Guðmundsson sveit- arstjóri segir spurningu hvort sveitarfélög eigi yfirhöfúð að styrkja einkasafnara. Hann segir einnig að í safiialögum sé kveðið á um að starfsmenn safira ntegi ekki safita munurn sjálfir, en Kristján hafi alla tíð verið einkasafhari og þetta tvennt fari einfáldlega ekki saman. „Kjarni ntálsins er sá að samningurinn við Kristján rann út í þeirri mynd sem hann var. Það var reynt að breyta honuin til þess horfs sem eðlilegra hefði verið, og munir úr sögu Skag- firðinga yrðu í eigu þeirra. Þetta gekk ekki eftir og því er Kristján að pakka sínum persónulegu eigum saman...”, segir Ársæll. Heimild: Morgunblaðið Nýr kennsluvefur kemur út á vegum Hólaskóla og Kennaraháskóla íslands Könnum saman lóð og mó Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla íslands og Hólaskóli - Háskólinn á Hólum hafa gefið út vef um líf- ríki í nágrenni íslenskra grunnskóla. Höfundar að vefnum eru Torfi Hjartarson lektor við Kennaraháskóla íslands, Sólrún Harðardóttir verkefnastjóri við Hólaskóla og Hrefna Sigurjónsdóttir prófessor við Kennaraháskóla íslands. Torfi annaðist auk þess alla umsjón, útlitshönnun og samsetningu á efninu. Persónur óg veth'áfiúsmýndir teiknaði Jón Ágúst Pálmason og lífverur Elín Aradóttir. Auk teikninga eru um 100 Ijós- rnyndir af lífverum eftir all marga höfúnda. Björn Þor- steinsson og Þóra Ellen Þór- hallsdóttur lögðu til flestar ’myndir af plöntum, Grétar Eiríksson lagði til flestar fuglamyndir og Oddur Sig- urðsson lagði til allar myidir af pöddunt. Ennfremur er teflt ffant stöku ntyndskeiðum og hljóðum. Vefurinn ber heitið Könnum saman lóð og rnó og byggir á hátt í 700 skjámyndum sem lýsa vettv'angsathugunum barna og unglinga á dæmigerðu þurrlendi við Lautaskóla. Á vefnum leiða kennararnir Andrés og Drífa hópa barna og unglinga um skólalóð, grundir, holt, ntóa og skóglendi í nágrenni skólans og börnin rekast á fjölda algengra líh’era og fræðast um þær með ýmsurn hætti. Nokkrir aðilar veittu styrki til verksins, þar á rneðal Rannsóknarsjóður Kennara- háskóla íslands, Þróunarsjóður grunnskóla og Menntagátt. Heimild og sjá nánar. www.holar.is Ófærð á Norðurlandi vestra VMaust veður Snjó þeytt af gangstéttum i Hlíðarhverfi á Sauðárkróki. Það var talsverður ofsi í veðrinu nú fyrstu dagana á nýju ári og raunar ekki sérlega glæsileg veðurspáin fyrir næstu daga. Mikil ófærð hefrir verið á Norðurlandi vestra og vegir yfir öxnadalsheiði og Vatns- skarð lokuðust í talsverðan tíma á mánudaginn og var nokkuð um að vegfarendur leituðu aðstoðar í Upplýs- ingamiðstöðinni í Varmahlíð. Fór svo að verslun KS í Varmahlíð var opnuð og sömu sögu er að segja af Hótel Varmahlíð. Fjöldi bíla lenti í vandræðum í Húnavatnssvslu og þurfti að kalla út björgun- arsveit til að aðstoða fólk. Þá féll snjóflóð í Vatnsdal síðdegis santa dag, en að sögn lögreglunnar á Blönduósi til- kynnti bóndinn í Káradals- tungu í Áshreppi í Vatnsdal að snjóflóð hetði fallið á og eyðilagt stöðvarhús sem sten- dur við bæinn. Á bænum Gilá fauk þak af hlöðu og á Uppsölum hrundi hluti þaksins á gömlu fjár- húsunum við bæinn. Mikil mildi þykir að ekki drápust neinar kindur en þær \'oru um 160 í húsunum. Heimild: Skagafjordur.com & Huni.is Ungmennafélag íslands LandsfulHrúi á Króknum Á vef UMFÍ er sagt frá því að 11. stjórnarfundur UMFÍ var haldinn í Þjónustumiðstöð UMFÍ á laugardaginn. Á fundinum voru rneðal annars teknar ák\'arðanir um skipulagsmál sem stjórnin hefúr verið að vinna að síðustu mis- seri. Þetta nýja skipulag felur í sér að til verða tvö ný störf landsfúlltrúa og verður annar með aðsetur á Sauðarkróki. Landsfúlltrúinn sent verður með aðsetur á Króknum mun vera með íþróttir, umhverfis- og unglingantál á sinni könnu. Hinn verður með aðsetur í Reykjavík og verður með men- ningamál, listir og ffæðslumál. Reiknað er með að þetta nýja fýrirkomulag taki gildi um áramótin og eru þetta san- narlega ánægjulegar fréttir fyrir Skagfirðinga. toyota :: tryggingamiðstöðin :: kodakexpiess :: baekur ogritföng :: ljósritnn í lif Ú z í :: gorrnar ogplöstnn :: fleira ogfleira bókabúdin BÓKABtJÐ BRYBcJARS BÓKABÚÐ BRYNJARS KAUPANGSTORGI 1 550 SAUóARKRÓKUR SlMI 453 5950 FAX 453 5661 bokabud@skagaljordur.com - -Tyt' jl' 3II9 ( Tjo|SK-í Id^öúi ’■ Flísar -flotgólf múrviögeröarefni AÐALSTEINN J. MARÍUSSON Sími: 453 5591 • 853 0391 • 893 0391

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.