Feykir - 26.01.2005, Síða 7
04/2005 Feykir 7
Guðmundur Valtýsson
Hagyrðingaþáttur 398
Heilir og sælir lesendur góðir.
Gaman að byrja að þessu sinni
með fallegri hringhendu eftir
Pálma Jónsson frá Nautabúi í
Skagafirði.
Spnmd og halir hefjum skál,
heiða saiarkynna.
Islenskt tala tungumál
tröllin dala minna.
Önnur hringhenda kemur hér
einnig úr Skagafirði. Höfundur
Unnur Jónsdóttir frá Valadal.
Ástin létta ung og keik
oft viil spretti taka.
Bak við réttan lífsins leik
liggur glettin staka.
Skáldið Kolbeinn í Kollafirði
mun hafa ort svo fallega til konu
sinnar er hún varð 50 ára.
Hjá þér, með þér hlýju, styrk
hlaut ég allar stundir.
Þú hefur sveipað sundin myrk,
sól ergekk ei undir.
Öðru sinni mun frúin hafa
fengið svofellda kveðju.
Mér er blessað bros þitt kœrt
birtir ást og tryggðir.
Afþérgeta allar lœrt
eiginkonu dyggðir.
Halldór Jónsson áður bóndi á
Iæysingjastöðum í Þingi mun hafa
ort þessa.
Öldurfreyða œst um lund
Allar leiðir banna.
Margir eyða yndisstund.
Ill er reiði manna.
Til Björns Blöndals mun
Halldór hafa ort þessa.
Hreint átt þú og hljómþýtt mál
hress og beinn í svörum.
Ferskeytlunnar stuðlastál
stekkur þér afvörum.
Það er Árni Björn Kristófers-
son ffá ICringlu, sem kemst svo vel
að orði í næstu vísu.
Oft eru augu gesta glögg
þóttglepji sýnir Ijósin.
Efviðunandi vantardögg
visna tekur rósin.
Trúlega af lakara tagi hefúr
umtal í sveitinni verið þegar Árni
orti þessa.
Flestum virðistfrœgð að smá
fallin dreng í valnum.
Dómar gefast eftirá
í æðsta réttarsalnum.
Á effi árum mun Árni hafa ort
þessa.
Kreppist hönd og bognar bak
blíðar kenndir eymast.
Æskan leið sem andartak
ævintýrin gleymast.
Dýrólína Jósdóttir ffá Fagra-
nesi á Reykjarströnd mun hafa ort
þessa laglegu hringhendu.
Klökknar njólu kalda brá
kemur ról áfossinn,
þegar hólar freðnir fá
fyrsta sólarkossinn.
Önnur hringhenda kemur hér
og mun Kristján Guðnason, bóndi
á Gýgjarhóli í Biskupstungum
hafa ort hana um reiðhest sinn.
Fár á betri færleik hér
flesta letja árin.
Ei þarf að hvetja undir mér
átján vetra klárinn.
Ekki sakar að bæta við hring-
hendurnar með þessari fallegu
vísu Bjarna Halldórssonar frá
Uppsölum.
Skáldið gistir sjónar svið
sér tilystu stranda.
Bragalistin leikur við
Ijóðaþyrstan anda.
Teitur Hartmann var kunnur
hagyrðingur á sinni tíð og munu
þeir sem eldri eru trúlega muna
effir vísum hans. Þessi er ein af
þeim.
Afskaplega er nú kalt
œtlar nærri að drepafólk.
Betra er að bergja svalt
brennivín en heita mjólk.
Eftir næstu vísu að dæma hefúr
Teitur ekki talið skynsamlegt að
ffesta því til morguns sem hægt
var að gera í dag.
Ég skal yrkja annan brag
öngvafyrir borgun.
Vínið sem að var í dag
verður ekki á tnorgun.
Árið 1940 mun hann hafa sent
vinkonu sinni svofellda kveðju.
Anna, þú ert tnín ást, mín sól
óskir, von og þrár.
Drottinn gefi þér gleðilegjól
oggott ogfarsælt ár.
Þrátt fyrir að ég sé nokkuð viss
um að þessi ágæta vísa Gissurar í
Valadai hafi áður birst hér í
þættinum, geri ég það okkur
öllum til gleði, að rifja hana upp í
lok þessa þáttar.
Vetur hrindirfrá mérfrið
flestutn tnyndar trega.
Mínar bind ég vonir við
vorið yndislega.
Verið þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson,
Eiríksstöðumm,
541 Blönduósi.
S: 452-7154.
íþróttafréttir
Intersportdeildin í körfuknattleik_
Obb-bobb-bobb
Tindastóll spilaði síðastliðið fimmtudagskvöld
við lið KFÍ á ísafirði en þar á bæ höfðu menn ekki
sigrað einn einasta leik í vetur.
Tindastóll var 11 stigum
undir þegar rúm mínúta var
eftir af leiknum og náðu að
minnka muninn í tvö stig
þegar 3 sekúndur voru eftir
en það reyndist fúll seint í
rassinn gripið.
Joshua Helm reyndist
Tindastólsmönnum erfiður
Á því varð breyting
þegar Stólarnir komu í
heimsókn því KEÍ landaði
nokkuð öruggum sigri
með tveggja stiga mun, 84-
82.
Strákarnir byrjuðu
leikinn vel og komust í 2-11
en eftir það tók KFI völdin.
viðureignar en hann gerði
rúm 30 stig í leiknum og tók
hátt í 20 fráköst. Svavar
Birgisson gerði flest stig
Stólanna eða 26 og hann tók
11 ffáköst.
Það er óhætt að fúllyrða
að þetta voru afar slæm
úrslit!
INTERSPORTDEILDINIKÖRFU
íþróttahúsid á ísafirdi
KFI84
TINDASTÓLL 82
Stig Tindastóls: Svavar2B,
Thompson 19, Axel 13, Fletcher 12,
Bi'örn 8 og Gunnar 4.
Sportmolar Feykis frækna
Stólar mörðu Hvöt
Tindastóll marði sigur á liði Hvatar frá Blönduósi
í Powerade-mótinu í knattspyrnu í Boganum á
Akureyri síðasta sunnudag.
Hvöt mætti til leiks með leiknum þegar um 15
talsverðan samtíning en
Tindastóll var með ungt lið
og var elsti leikmaðurinn
24 ára.
Haukur Skúlason gerði
fýrsta mark Ieiksins í fýrri
hálfleik og var staðan 1 -0 í
leikhléi. Hvöt jafnaði en
það var síðan hinn skot-
fljóti Aðalsteinn Arnarson
sem gerði sigurmarkið í
mínútur voru til leiksloka.
Lokatölur 2-1.
Tindastóll er með 3 stig
eftir 2 leiki en markatala
liðsins er ekki góð. Hvöt
hefur hins vegar tapað
öllum þremur leikjum
sínum á mótinu til þessa.
Um næstu helgi mæta
Stólarnir I. deildar liði KS
sem reyndar biðu afhroð
gegn liði Þórs um helgina,
töpuðu 10-1.
Afmælisdagskrá
körfuboltans
40 ár eru nú í janúar ffá því
að Tindastóll lék sinn fýrsta
körfuboltaleik. I tilefni
tímamótanna verður sagan
rifjuð upp á Kaffi Krók að
loknum leik Tindastóls og
IR.
Þá verður dagskrá ffá kl.
18:00 í íþróttahúsinu á
Sauðárkróki áður en leikur
Tindastóls og lR í
Intersportdeildinni hefst en
ffítt er inn á leikinn.
Sigurreifir bridsarar.
Brids
Mynd: ÖÞ
Sveit Eyjólfs sigraði
sveHakeppnina
Sveit Eyjólfs Sigurðs-
sonar á Sauðárkróki
sigraði í sveitakeppni
Norðurlands vestra í
Brids sem haldið var
um helgina.
Sveitin hlaut 108 stig einu
fleira en sveit Sparisjóðs
Siglufjarðar. Þessar tvær
sveitir voru í nokkrum sér-
flokki í mótinu en gæfu-
muninn gerði það að sveit
Eyjólfs vann innbirðisleik
sveitanna 20 gegn 10. í
þriðja sæti varð sveit
Gunnars Þórðarsonar á
Sauðárkróki með 72 stig og
fjórða varð sveit Stefáns
Benediktssonar Fljótum/
Reykjavík með 64 stig.
Þessar fjórar sveitir unnu
sér allar rétt til að spila á
íslandsmótinu í sveita-
keppni síðar í vetur.
Aðeins tók sex sveitir þátt
í mótinu að þessu sinni. Það
var Bridsfélag Siglufjarðar
sem hélt mótið, keppnis-
stjóri var Sigurður Hatliða-
son.
I Butler útreikningi
mótsins var Kristján Blöndal
fýrrverandi Sauðkrækingur
efstur.
ÖÞ
smaauglýsingar Sendið smáauglýsingar til frírrar birtingar á feykir@krokur.is
Til sölu Hilux disel "96, breyttur fyrir 361, er á rtýjum 35 rtagladekkjum. Skipti á 4x4 fólksbíl koma til greina. Upplýsingar í síma 848 0287 eða 8669906. Skíðabúnaður óskast Óska eftirnotuðum göngu- skíðabúnaði með riffluðum botni. Þarfað henta skóstærð 40-42. Upplýsingar í síma 453 5303 eftirkl. 17:00 AL-ANON í Skagafirði Von og hjálp fyrir fjölskyldur og vini alkohólista. Opnir fundir öll mánudagskvöld í Safnaðarheimili Sauðárkrókskirkju á Sauðárkróki kl. 21.00 -22.00. Allir hjartanlega velkomnir - kaffi á könnunni