Feykir - 23.02.2005, Page 8
SÍMI 453 6622
Eldsvoðinn á Bárustíg á Saudárkróki_
Málið sent ríkis-
saksóknara
Málið varðandi elds-
voðann að Bárustíg 14 á
Sauðárkróki hefur verið
sent ríkissaksóknara til
umsagnar.
Ríkissaksóknari sker úr um
hvort að rannsókn verður haldið
áfram eða hvort málinu er lokið.
Rannsókn lögreglu er þannig
ekki lokið. Endanleg niðurstaða
liggur ekki fyrir en ljóst er að
eldsupptök eru eru ekki af völd-
um raffnagns.
Rannsókn málsins er i
biðstöðu á rneðan niðurstöðu
saksóknara er beðið en venja er
að mál fari þessa ieið í kerfinu að
lokinni rannsókn lögreglu.
______________________I?
Frá vettvangi eldsvoðans á Bárustíg
9 á Sauðárkróki í desesmber.
Húnaþing vestra
Námskeið
fyrir frum-
kvöðla
Frumkvöðlasetur ungs
fólks í Húnaþingi vestra
stendur í marsmánuði fyrir
námskeiðaröð fyrir þá sem
vilja stofna eigin rekstur, eða
stefna að því að breyta rek-
strinum hjá sér eða bæta við
sig framleiðslu- eða þjónus-
tugreinum.
Námskeiðin spanna 5
daga, þau hefjast 5. mars og
lýkur 21. mars. Þau er öllum
opið, en íbúar Húnaþings
vestra hafa forgang en meðal
annars verður Byggðastof-
nun heimsótt og fengnir til
liðs gestafyrirlesarar.
Nýtt skip, Óli Hall HU-14, komið til hafnar á Blönduósi
Ætla að gera út á rækju
og bolfisk
Nýtt skip, Óli Hall
HU-14 kom til hafnar á
Blönduósi um helgina.
Um er að ræða tæplega
200 tonna stálskip
með um 900 hestafla
vél. Skipið er keypt frá
Grindavík og hét áður
Hafberg GK-377 og var í
eigu Þorbjörns Fiskanes.
Það er útgerðarfyrirtækið
Hjallanes sem á Óla Hall en
eigendur þess eru Hrólfur
Ólafsson og Jóhann Viðar
Aðalbjörnsson ásamt fjór-
um öðrum smærri fjár-
festum. Verður Hrólfúr
skipstjóri. Skipið var keypt án
veiðiheimilda en kaupverð
þess var um 13 milljónir króna,
sem er rnjög hagstætt verð. Að
sögn Hrólfs verður gert út á
úthafsrækju 4-5 mánuði á ári
en annars bolfiskur á net eða
troll.
Skipið allt er mjög vel
tækjum búið og vistarverur
góðar en fimm eru í áhöfn.
Skipið fer væntanlega á veiðar
í lok næstu viku.
Nýjir aðilar taka við rekstri Bifrastar
Allir í bíó!
Sigurbjörn, Sigurlaug og Guðbrandur ásamt hússtjórn Bifrastar, Sigur-
veigu, Sigrúnu Öldu og Karli.
Hagur viljugra bíógesta
vænkast von bráðar
í Skagafirði en nú á
dögunum var gengið
frá samningum um
að einkaaðilar taki að
sér rekstur félagshei-
milisins Bifrastar á
Sauðárkróki.
Nýju rekstraraðilarnir,
þau Bára Jónsdóttir, Guð-
brandur Guðbrandsson,
Sigurbjörn Björnsson og
Sigurlaug Vordís Eysteins-
dóttir hyggjast hefja aftur
kvikmyndasýningar auk þess
sem Leikfélag Sauðárkróks
og leikhópur Árskóla verða
áfram með starfsemi í hús-
inu. Þá stefna nýjir eigend-
ur að því að fjölga öðrum
viðburðum í húsinu eins og
tónleikum, fyrirlestrum og
ráðstefnum.
Salurinn í Bifröst var
tekinn í gegn fyrir nokkr-
um misserum og er þar
fyrirmyndar aðstaða til að
njóta góðrar skemmtunar.
Tók aðeins fáar klukkustundir að opna heiðina
Lágheiðin opnuð í
byrjun góu
Lágheiði milli Fljóta og
Ólafsfjarðar var mokuð
sl. mánudag og telst nú
fær öllum bílum en þunga-
takmörk miðuð við 5
tonna öxulþunga voru þó
strax sett á veginn.
Vegurinn fram Fljótin og
yfir til Ólafsfjarðar er mjög
blautur og hálkublettir á
heiðinni sem unnið var við að
rífa niður á þriðudaginn. Lítið
var eftir af snjó á heiðinni þegar
hún var mokuð og tók aðeins
fáar klukkustundir að opna
hana með öflugum snjóblásara
aðþessu sinni.
Undanfarið voru menn
búnir að fara yfir heiðina á
þolckalega öflugum bílum og
var þá ekið sumstaðar á hjarni.
Það gerist nú sífellt algengara
að Lágheiðin sé opnuð yfir
háveturinn enda síðustu ve-
tur verið snjóléttir þrátt fyrir
að kornið hafi illviðriskafli í
byrjun janúar tvo þá síðustu.
ÖÞ:
•Ú 3 1 s tnynta :: tryggingamiðstöðin :: kndaknxpnfiss :: baaknr ngritföng :: ljósritnn í lit :: gnrmar ogplöstnn :: fleira ogfleira Flísar
BÓKABÚÐ -flotgólf múrviögeröarefni
DOKdDUOlll BRYNJARS AÐALSTEINN J. MARÍUSSON Sími: 453 5591 • 853 0391 • 893 0391
BÓKABÚÐ BRYNJARS KAUPANGSTORGI 1 550 SAUÐÁRKRÓKUR SÍMI 453 5950 FAX453 5661 bokabud@skagafjordur.com - ■T')l']l' 3) )9 í f Jo|SF-j)dUhh/ '■