Feykir - 04.05.2005, Qupperneq 3
17/2005 Feykir 3
Kosningaskjálfti
kaupfélagsstjóra
Gísli Gunnarsson skrifar
í síðasta tölublaði Feykis
var greint frá aðalfundi
Kaupfélags Skagfirðinga
og frá þeim gleðilegu
tíðindum að rekstur KS
hafi aldrei gengið eins
vel og á síðastliðnu ári.
Því hljóta allir Skagfirð-
ingar að fagna.
Auk þess að vera vel stjórnað
byggir rekstur slíks fyrirtækis á
því, að það samfélag sem á
bakvið það stendur sé öflugt og
vaxandi. Þar skiptir miklu sú
umgjörð sem stjórnvöld setja,
svo og að innri uppbygging
sveitarfélagsins sé í góðu lagi.
Þannig fer saman hagur
fyrirtækis og sveitarfélags.
Því kom það mér verulega á
óvart að kaupfélagsstjóri skuli
nota aðalfund KS til að skeyta
skapi sínu á sveitarstjórn-
armönnum í Skagafirði, eins
og fram kom í ræðu hans og
birtist á forsíðu Feykis. Þar
segir kaupfélagsstjóri að hann
hafi lagt á það áherslu við
sveitarstjórnirnar í Skagafirði,
að taka upp samstarf við
fyrirtæki um framþróun í
atvinnulífi og að marka stefnu
varðandi raforkuframleiðslu í
héraðinu. Hvorugt hafi gengið
eftir.
Þarna fer kaupfélagsstjóri
með rangt mál. Þetta hefur
gengið eftir, þó það sé reyndar
ekki kaupfélasstjórans að segja
sveitarstjórnarmönnum fyrir
verkum. Ég hélt að allir
Skagfirðingar vissu að
Skatastaðavirkjun hefúr verið
sett inn á aðalskipulag
sveitarfélagsins og þannig
mörkuð metnaðarfull stefna
varðandi raforkuframleiðslu.
Varðandi atvinnumál þá hafa
sveitarstjórnarmenn verið
boðnir og búnir til samstarfs
\'ið ýmiss konar uppbyggingu,
og má í því sambandi nefiia
þátt sveitarfélagsins varðandi
uppbyggingu á Hólastað og í
húsnæði Fiskiðjunnar við
höfnina. Hins vegar þegar
leitað var eftir aðstoð KS til
varnar því að Akureyringar
keyptu Loðskinn var enginn
vilji til þess, þó svo að KS leggi
til yfir 100 þúsund gærur, sem
nú eru fluttar úr héraði til
fullvinnslu.
Þó að kaupfélagsstjóri viti
ekki af neinni stefnu varðandi
raforkuframleiðslu víkur hann
engu að síður að Skata-
staðavirkjun og fer mikinn.
Hann leggur áherslu á
mikilvægi þess að Héraðsvötn
ehf. fái rannsóknar- og
virkjunarréttinn við Skatastaði,
en Landsvirkjun ekki. Gangi
það ekki eftir flokkast það sem
tilræði við Skagfirðinga að mati
kaupfélagsstjóra, og segir að
þeim ráðamönnum hér sem
stuðli að því að Landsvirkjun
fái virkjunarréttinn beri að
segja af sér trúnaðarstörfum
fyrir Skagfirðinga. “Ég vona að
enginn sveitarstjórnarmaður
leggist svo lágt að sitja á
svikráðum varðandi þessi mál”
- segir kaupfélagsstjórinn!
Ég trúi því ekki að kaup-
félagsstjóra sé ekki kunnugt
um, að það eru ekki sveit-
arstjórnarmenn sem veita
virkjunaraðilum rannsóknar-
og virkjunarleyfi. Það er
Valgerður Sverrisdóttir iðn-
aðarráðherra sem það gerir,
svo hæg ættu að vera heima-
tökin. Eða er kaupfélagsstjóri
að segja að þeir sveitar-
stjórnarmenn sem þáðu fund-
arboð Landsvirkjunar í V arma-
hlíð sl. vetur séu tilræðismenn
sem sitji að svikráðum? Eða
flokkast ég undir þessa
skilgreiningu kaupfélagsstjóra
vegna þess að ég átti fund með
stjórnendum Landsvirkjunar,
þar sem ræddir voru
möguleikar þess að rafmagn
frá Blöndu yrði nýtt í Skagafirði
um leið og ég áréttaði að það
rafmagn sem fengist frá
Skatastaðavirkjun yrði nýtt til
atvinnusköpunar í Skagafirði,
hver svo sem fengi virkjun-
arréttinn? Sveitarstjórnar-
menn í Skagafirði eru vissulega
tilbúnir að fúnda með
Héraðsvötnum ehf. ef slíkt
stæði til boða.
Kaupfélagsstjóri talaði ekki
um tilræði eða svikráð þegar
flokkssystkini hans í
Framsóknarflokknum stóðu
fýrir sölu á Rafveitu
Sauðárkróks úr héraði.
Eignarhald okkar á því
dreifikerfi var forsenda þess að
sveitarfélagið gerðist aðili að
Villinganesvirkjun á sínum
tíma. Hvenær eiga stóru orðin
við?
Sem félaga í KS mislíkar
mér það, að kaupfélagsstjóri
skuli nota aðalfundi félagsins í
pólitískum tilgangi. Maður
sem talar svo niður til
lýðræðislegra kjörinna sveit-
arstjórnarmanna í Skagafirði,
bæði austan og vestan vatna,
getur varla verið að óska eftir
samráði eða samvinnu við
sveitarstjórnirnar. Enda eru
skilaboðin þau, að þeir sem
ekki eru sannnála kaupfél-
agsstjóra eigi að segja af sér.
Ritstjóri Feykis hefði átt að
velja annað efni á forsíðu
blaðsins.
Ég óska Skagfirðingum
gleðilegs sumars og óska
Kaupfélagi Skagfirðinga
hagsældar, íbúum héraðsins til
heilla.
Gísli Guimarsson,
forseti sveitarstjómar
svf. Skagafjarðar.
Kaupfélag Skagfirðinga
Fjórir heiðraðir
Frá vinstri Haraldur Hjálmarsson, Efemia Björnsdótir, Sigriður G.Sigurðardóttir og Inga
Valdis Tómasdóttir. Mynd ÖÞ:
Á aðalfundi Kaupfélags
Skagfirðinga sl. lau-
gardag afhenti Þórólfur
Gíslason kaupfélagsstjóri
fjórum starfsmönnum
viðurkenningu félagsins fýrir
langt og farsælt starf í þágu
félagsins en þeir höfðu þá all-
ir starfað hjá KS í 25 ár. Þau
sem þessa viðurkenningu
hlutu eru á myndini hér fyrir
ofan.
Héraðsmót UMSS
í hestaíþróttum
Mótið fer fram á Sauðárkróki dagana 7. og 8. maí.
Forkeppni hefst kl: 10:00 á laugardag en úrslitn fara
fram á sunnudaginn og hefjast kl: 13:00.
Hestaíþróttaráð Skagafjarðar
Feyki vantar blaðamann
— æskilegt að viðkomandi hafi góða tölvukunnáttu
Upplýsingar veitir Árni Gunnarsson ritstjóri Feykis
í síma 455 7100 eða arnig@krokur.is
Feykir
netkönnun
Hvern eftirtalinna hefurðu
fílað best upp á síðkastið?
BobbyFisher, íslenska
heimsmeistarann! (10.7%)
José Mourinho, þjálfara
Chelsea! (13.2%)
Reyni Traustason, blaðamann
og prufusmyglara! (9.4%)
George Bush, forseta Banda-
ríkjanna! (5.1%)
Jónínu Ben, rannsóknarkonu
viðskiptalífsins! (23.9%)
Auðunn Blöndal, til að nefna
einn óþekku Strákanna! (32.9%)
Viðskiptajöfurinn,
einhvern þeirral (4.7%)
Hægterað taka þátti könnunum
sem birtastí Feykimeð þvi að fara
inn á Skagafjörður.com og kjósa
þar. ítrekað skalað könnunin er
meira tilgamans og taka skal
niðurstöðurnar með fyrirvara.
molar
Ráðið í stöðu
framkvæmdastjóra
Forsvars
Stjóm tyrirtækisins Forsvars ehf.
á Hvammstanga hefúr ráðið
Gunnar Halldór Gunnarsson í
stöðu framkvæmdastjóra frá og
með 1. júní nk.
Gunnar Halldór er fæddur 1958
og er viðskiptaffæðingur B.Sc.
frá Tækniháskóla fslands 2005.
Hann lauk prófi ffá Stýriman-
naskólanum í Reykjavík 1982
og starfaði um árabil sent stýri-
maður á íslenskum skipum.
Hann stofnaði og rak firirtækið
Nýjar víddir ehf ásamt lleirum.
Hann hefúr starfað að kynning-
armálum hjá Orkuveitu Reykja-
víkur ffá árinu 2001.
Fráfárandi ffamkvæmdastjóri
Forsvars ehf, Karl Sigurgeirs-
son verður í hálffi stöðu hjá
fyrirtækinu, einkum við umboð
Sjóvá og önnur þjónustustörf.
Hinirsömusf. opna
framköllun og verslun
Hinir sömu sf. á Sauðárkróki
hafa opnað framköllunarþjón-
ustu og verslun með tengdar
vörur að Kaupangstorgi 1, þar
sem Bókabúð Brynjars var til
húsa.
Fyrst um sinn verður lögð
áhersla á ramrna, prentpappír
og vörur tengdar framköllun
og ljósmyndun. Foropnun var
síðastliðinn mánudagkl. 13:13.
Þar eð eigendur Hinna sömu
eru báðir á fertugsaldri er 40%
afsláttur á framköllun fyrstu
vikuna.