Feykir - 04.05.2005, Page 7
17/2005 Feykir 7
Nafn: Merete K. Rabelle
Argangur: '67.
Fjölskylduhagir: Gift Steini Rögn-
valdssyni og á þrjú börn. Bý á Hrauni
á Skaga.
Starf/nám: Bóndi/stúdentspróf og
bændaskóli.
Bifreið: Toyota Avensis.
Hestöfl: Hefekki hugmynd en nóg.
Hvað er í deiglunni: Skemmtilegasti
tíminn, vorið með sauðburði og æða-
varpi.
Hvernig hefurðu það?
Ljómandi gott.
Hvernig nemandi varstu?
Frekar þæg.
Hvað er eftirminnilegast frá ferm-
ingardeginum?
Gott veður, kaffi ígarðinum og að við
dönsuðum gömlu dansana I stóru
stofunni um kvöldið.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðirstór?
Hjúkrunarkona.
Hvað hræðistu mest?
Að rekast á rottur í hænsnakofanum
heima í Danmörku!
Hver var fyrsta platan sem þú keypt-
ir (eða besta)?
Midt om natten, eftir Kim Larsen.
Hvaða lag ertu líklegust til að
syngja í Kareókí?
Æh ég veitþað nú ekki, syng nú ekki
vel.
Hverju missirðu helst ekki afí sjón-
varpinu (fyrirutan fréttir)?
Kroniken á sunnudögum. Þá verður
Steiniað svara símanum!
Besta bíómyndin?
Á enga uppáhalds bíómynd en mér
finnast íslenskar og danskar bíó-
myndir yfirleitt góðar.
Hvað fer helst í innkaupakörfuna
sem ekki erskrifað á tossamiðann?
Eitthvað gott i gogginn, eins og vín-
ber eða súkkulaði
Hvað er ímorgunmatinn?
Danskt rúgbrauð með osti og kaffi.
Uppáhalds málsháttur?
Á engan uppáhalds málshátt en einn
sem ég hef ekki fundið á islensku
kemur stundum upp í hugann: Hvad
der kommer let, gár let!
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar
mesttil þín?
Knold og Tot.
Hvert ersnilldarverkið þitt í eldhú-
sinu?
Búa til uppvask handar Steina.
Hver er uppáhalds bókin þín?
Ég mætti lesa meira en Frk. Smil-
las fornemmelse for sne eftir Peter
Hoeg er eftirminnilega og Börn
regnbogans eftir Birgitta Halldórs-
dóttir sem ég las í vetur var lika
ágæt.
Efþú gætir hoppað upp í flugvél og
réðir hvert hún færi, þá færirðu...
.../'kaffi til mömmu og pabba.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari þínu?
Að ég er oft á síðustu mínútunni.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari annarra?
Það ferekkertítaugarnirámér, all-
ir er svo indælir!
Enski boltinn - hvaða lið og af
hverju?
Er ekki með hugann við fótbolta.
Hvaða íþróttamanni / dómara hef-
urðu mestar mætur á?
Engum sérstökum, en það er alltaf
gaman að hafa góða íþróttamenn
hvort sem þeir eru íslenskir eða
danskir.
Kim Larsen eða Shu-Bi-Dua?
Kim Larsen stendur fyrir sínu, en
Shu-bi-dua gera frábæra texta.
Hver var mikilvægasta persóna 20.
aldarinnar að þínu mati?
Nelson Mandela.
Ef þú ættir að dvelja alein á
eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu
með þér?
Góða bók, bjórkippu og Jóna gold
epli.
Hvað er best I heimi?
Að fara á hestbak á heiðina á fall-
egu sumarkvöldi.
Að hvaða leiti eru íslendingar
ólíkir Dönum?
Danirplana allt- Islendingarekkert.
Danir lifa til að geta borðað - íslen-
dingar borða til að geta lifað. Danir
safna frítíma - íslendingar safna
peningum.
íþróttafréttír
Reiðkennsla hestamannafélaganna í Skagafirði
Endað með töltkeppni og
pizzuveislu á Svaoastöðum
Þáttakendur í Stubbaflokki voru ekki allir háir í loftinu en gætu þá hægiega verið
framtiðar knapar héraðsins,
Sunna og Þórdís Þórarinsdætur rauðkiæddar og Elin Björnsdóttir.
Unglingaflokkur. Fimm efstu i töltkeppni. Frá vinstri Þórey Magnúsdóttir.Hallfriður
Óladóttir.lngunn Kristjánsdóttir.Sigurlín Magnúsdóttir og Ingunn Sandra.
Lokapunktur á reið-
kennslu barna og
unglinga í Skagafirði
var settur í reiðhöllinni
Svaðastöðum sl.
laugardag. Þá sýndu
krakkarnir hvað þau
hafa lært í hesta-
mennskunni undan-
farnar vikur og tóku við
verðlaunapeningi.
Auk þesss var keppt í tölti
í tveimur flokkum og þar
fengu fimm efstu að sjálfsögðu
verðlaunapening. í lokin var
svo heilmikil pitzu veisla fyrir
krakkana. Á þennan viðburð
mætti auk krakkanna fjöldi
aðstandenda. Þeir komu að
sjálfsögðu til að fylgjast með
ungviðinu og hvetja það til
dáða því þarna eru margir að
stíga sín fyrstu skref í
hestamennskunni. Mátti með
sanni segja að á þessari
samkomu skein gleði úr
hverju andliti.
Þaðeru hestamannafélögin
þrjú í Skagafirði sem standa
að kennslunni, en Anna
Jóhannesdóttir á Hjalta-
stöðum og Þórhildur Jakops-
dóttir á Sauðárkróki hafa haft
umsjón með starfseminni í
vetur. Anna sagði í samtali
við fréttamann að kennslan
hefðu byrjað í lok janúar og
verið aðra hverja helgi síðan.
Um sextíu og fimm krakkar á
aldrinum 5- f5 ára hafa
stundað námið. Þeim er
raðað í flokka eftir aldri en
einnig tekið tillit til getu og
þroska hvers og eins. Anna
sagði ánægjulegt hvað mikill
áhugi hefði verið fyrir þessu
og líka að þarna væru að
koma inn krakkar úr
fjölskyldum sem ekkert hefðu
tengst hestamennsku til þessa.
Anna sagði að reiðkennarar í
héraðinu hefðu annast
kennsluna til skiptis en einnig
hefðu unglingar komið að
kennslunni og staðið sig með
ágætum.
Þess má svo að lokum geta
að sveitarfélögin í Skagafirði
styrkja þetta unglingastarf
myndarlega og hafa gert
síðan það var sett á laggirnar
með tilkomu reiðhallarinnar
Axel Kárason, sem
leikið hefur með meist-
araflokki Tindastóls í
körfunni síðustu fimm
árin, hefur skrifað undir
eins árs samning við lið
Skallagríms í Borgar-
nesi.
Axel mun stunda nám
við Háskólann á Hvanneyri
næsta vetur. Valur Ingimun-
á sínum tíma. Einnig styrkti
Kaupfélag Skagfirðinga
lokahófið með því að gefa
alla verðlaunapeningana.
darson, þjálfari Skallagríms,
segir Axel vera hvalreka á
fjörur Skallagrímsmanna.
Kári heiðraður
Þing KKÍ fór fram um
helgina á ísafirði en þar var
þjálfari Tindastóls í körf-
unni, Kári Marísson, sæmd-
ur gullmerki KKI og er sann-
arlega vel að því kominn.
ÖÞ:
Feðgar í fréttum
Axel skiptir um lið
smáauglýsingar Sendið smáauglýsingar til frírrar birtingar á feykir@krokur.is
/ óskilum Jakkaskipti urðu á Löngumýri siðasta spiladag fyrir páska, 22. mars. Ég kom heim með Ijós- drapplitaðan jakka með nælu í öðru kragahorninu. Vantar minn sem einnig er drapplitaður. Upplýsingar t síma: 453-5414, Kristin. Mjólkurkýr til sölu Til sölu nokkrar ágætar mjólkurkýr. Einnig 3 kvígur - burðurjúli, ágúst. Simi: 846 1283. Hryssur til sölu Tvær brúnskjóttar hryssur til sölu, 11 og 6 vetra. Upplýsingar i síma 453 8106.