Feykir


Feykir - 11.05.2005, Blaðsíða 7

Feykir - 11.05.2005, Blaðsíða 7
18/2005 Feykir 7 Guðmundur Valtýsson skrifar_ Vísnaþáttur 405 Heilir og sælir lesendur góðir. Ágætar upplýsingar hafa borist um fyTÍrspurninr úr síðasta þætti. Taldi ég mig nokkuð vissann um að vísan um Guðlaugsstaðakynið væri eftir Höskuld Einarsson frá Vatnshorni. Hefur nú Sigríður dóttir hans staðfest það í samtali Hð mig. Telur hún reyndar einu orði ofaukið hjá mér og vill fella í burtu orðið með í fyrstu hendingunni. Þá hafa borist góðar upplýsingar um vísuna “Bakkus kallinn gleði gaf’. Fer ekki á millli mála að höf- undur hennar er Magnús Gíslason, áður bóndi á Vöglum í Blönduhlíð í Skagafirði. Þakka ég fyrir þessar upplýsingar. Er þá gott að leita til Höskuldar Einarssonar með fjTstu vísuna að þessu sinni. Er hún gerð á fallegum vordegi eftir að hann flutti til Reyk- javíkur. Einn égskima alltí kring er nokkur að kalla? Það er að grœnka laufog lyng í lautunum upp tilfjalla. Tvær vísur koma hér til viðbótar þar sem Höskuldur er að segja fré- ttir úr höfuðborginni. Mörg er lagleg lipurtá setn labbar hér um bceinn uppundir ég eina sá úti á götu um daginn. Ein á mínum vegi varð vœnleg hringaþöllin. Égsé í anda sœluskarð og sokkabandajjöllin. Aldraður orti Höskuldur þessa. Ört mérgerir aldur skil óðum röddin dvínar. Nú eru farnar fjandatts til frammtennurnar mínar. Einhverju sinni bárust þau tíðindi hér á skerið að til vandræða horfði í Brasilíu vegna þess hve barns- fæðingum hefði fækkað. Var grip- ið til þess ráðs að banna notkun á smokkum þar í landi. Af því tilefni orti Pétur Kristbergsson þessa. Verjur hafa Brassar bannað bamafjölgun stefna á. En Hafnfirðingar hafa sannað að harkan ein þar duga má. Guðbergur Bergsson skrifaði mag- naða grein í DV þar sem hann hélt frarn að María guðsmóðir hafi ekki fengið þungun sína ffá heilögum anda heldur af orðinu einu saman. Um þetta >Tkir Pétur. Orðið hefur mikinn mátt marga konu tefur en að þaðjafnist á við drátt aldrei miggrunað hefur. Ein ágæt vísnagáta að lokum eftir Pétur þar sem hann trúlega spáir í spikið. Mikið vandamál það er margirsafna þessu hér, íþað hlaupa maður má mann í því ég róa sá. Karl Kristjánsson, alþingismaður, hefur verið orðinn langþreyttur á skjalabunkanum er hann orti svo. Fylgiskjalafargan senn fyllir hverja smugu. Votta og kvitta verða menn vegna þeirra er lugu. I kroti mínu er Þorsteinn Jónsson talinn höfundur að þessari snjöllu hringhendu. Linnum spjalli, ég legg af stað lengur varla þjóra. Degi hallar, dimmir að droparfaila á Ijóra. Þá er einnig í dóti mínu að finna þessa snjöllu hringhendu sem skráð er eftir Friðrik Hansen og Eggert Sölvason. Yndisgröfí ástarbrag oft ergjöfm snóta. Fyrir öfugt áralag ýtar köfm hljóta. Freistandi er að halda áfram með hringhendurnar og mun Þorsteinn Guðmundsson á Skálpastöðum vera höfundur að þessari. Það er hart að hoifa á hvað hatrið svarta kyndir, þarsetn hjartað átti að eiga bjartar myttdir. Sá snjalli Jónas Jónasson, frá Hof- dölum í Skagafirði, orti þessa. Lengi hresstur lifði égá leif af nesti gamla þorsins. Loks kom gestur, ljós á brá, lengsti og besti dagur vorsins. Heyrt hef ég þá sögu að snemma vors í kuldatíð hafi stúlka að nafi Fjóla beðið Jónas um að yrkja vísu. Hann mun hafa orðið við því. Vetrar bláköld merkin ber ég bý að gömlu þori. Þú ert fyrsta fólatt er ég finn á þessu vori. Gaman er að rifja upp kveðju hans til Skagafjarðar. Skagaförður indœll er á hanti þarf ei lofi að smyrja Hverja þúst ég þekki hér þið skuluð bara reyna að spyrja. Skal þá að lokum, okkur öllum til gleði, endað með þessari perlu Jónasar. Bregst ei þjóð á Brúarvöllum. Braga glóð, sem aldrei dvín. Skagfirskt blóð er í þeitn öllutn setn elskafljóð ogdrekka vín. Guðmundur Valtýsson Eiríksstöðum, 541 Blönduósi. S: 452-7154. íþróttairéttir Skotfélagið Ósmann Stuðla að bættu fjölskyldu lífi og aukinni afþreyingu Með hækkandi sól og hlýnandi veðri fer sumarstarf Skotfélags- ins Ósmanns á flug. í sæluvikunni var opinn dagur á skotsvæði félagsins að Meyjar- landi þar sem margir komu í heimsókn og fengu að prófa að skjóta úr rifflum og haglabyssum. Laugardaginn 7. maí stóð félagið fyrir endurhleðslu- námskeiði. Jóhann Vil- hjálmsson byssusmiður leiðbeindi á námskeiðinu og honum til aðstoðar var Steinar Einarsson, en hann sá um að sérsmíða eyrnatappa fyrir félagsmenn til að þeir töpuðu ekki heyrn á öllurn skotæfingunum sent verða á skotsvæði félagsins í sumar. Það verður opið á mánudögum í júní, júlí og ágúst eins og undanfarin ár ffá kl 18 til 21 þar sem félagsmenn og aðrir geta komið og æft sig í skotfimi og öðrum góðum siðum. Einnig má geta þess að félög og vinnustaðahópar geta pantað tíma á vellinum og hefur þetta verið mjög vinsælt þar sem gestir hafa fengið að prófa ýmsar gerðir skorvopna. Þeirfrændur, GarðarJónsson og Pétur Ingi Björnsson, sprækirá endurhleðslu- námskeiði á riffilskotum Ósmanns um síðustu helgi. Landsmótsskyttur i blíðunni sumarið 2004. Myndir: Einar Stefénsson. Með uppbyggingu fjölskyldulífiogaukiðbreidd svæðisins hefur Skotfélagið í afþreyingu héraðsins. Ósrnann stuðlað að bættu Eitt og annað úr sportinu Fótboltinn af stað um helgina Alvaran í fótboltanum hefst nú um Hvíta- sunnuhelgina en þá koma Selfyssingar í heimsókn á Krókinn og spila við lið Tindastóls. Eftir því sem Feykir kemst næst verður spilað á sparivel- linum fína og hefst leikurinn kl. 16:00 á mánudaginn. Stuðningsmenn Tinda- stóls eru hvattir til að fjöl- menna á völlinn og hvetja strákana til sigurs. Liðið er að miklu leiti skipað heima- strákum sem gaman ætti að vera að fylgjast með í sumar. Sigurbjörn á völlinn Sigurbjörn Árnason, starfs- maður Iþróttahússins á Sauðárkróki, hefur verið settur vallarstjóri íþrótta- svæðisins á Sauðárkróki sumarið 2005 og hefur þegar tekið til starfa. Vor- og sumarverkin eru hafin þótt tíðin undanfarna daga hafi tafið framkvæmdir nokkuð. Frjálsíþróttamót 21. maí Fyrsta ffjálsíþróttamót sumarsins á Sauðárkróks- velli er Vormót UMSS en mótið verður haldið laug- ardaginn 21. maí og hefst kl. 14. smáauglýsingar Senclið smáauglýsingar til frírrar hirtingar á feykir@krokur.is 1 óskilum Jakkaskipti urðu á Löngumýri siðasta spiladag fyrirpáska, 22. mars. Ég kom heim með Ijós- drapplitaðan jakka með nælu í öðru kragahorninu. Vantar minn sem einnig er drapplitaður. Upplýsingar i síma: 453-5414, Kristin. Mjólkurkýr til sölu Til sölu nokkrar ágætar mjólkurkýr. Einnig 3 kvígur - burður júlí, ágúst. Simi: 846 1283. Hryssur til sölu Tvær brúnskjóttar hryssur til sölu, 11 og 6 vetra. Upplýsingar i sima 453 8106.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.