Feykir - 13.07.2005, Blaðsíða 5
27/2005 Feykir 5
Göngu- og skokkhópur Árna Stefáns
Hlaupið úr Gautsdal
yffir i Kálfárdal
Galvaskir skokkarar í upphafi ferðar.
Göngu- og skokkhópur Árna Stefánssonar
íþróttakennara var í stuði síðastliðinn laugardag en þá
skellti hópurinn sér í fjallahlaup.
Farið var upp úr klukkan 10
að morgni frá Gautsdal, sem
er rétt inn af Langadalnum,
um Litla-Vatnsskarð, Víðidal
og niður Kálfárdal. Surnir
stoppuðu í Kálfárdalnum og
brunuðu heirn í vélfákum
en aðrir létu sig hafa það að
hlaupa alla leið niður á Krók
þar sem farið var í heita pottinn
í Sundlaug Sauðárkróks og lúin
bein hvíld.
Að sögn Þorsteins Brodda-
sonar rekstrarstjóra hópsins tók
hlaupið þá fljótustu um 3 tíma,
en spottinn niður í Kálfárdal úr
Gautsdal er um 20 kílómetrar.
Hlaupið var yfir ár og læki,
mýrar og móa í alls konar veðri.
Komnir voru sætukoppar á
bláberjalyngið og rollur og
rjúpur horfðu í forundran á
skrautlega hlaupara þeysa hjá.
Hlaupið ræst við túnhliðið.
Margir hlýddu á messuna utandyra. mynd ÖÞ:
Knappstaðakirkja í Fljótum_____
Fjölmenni við messu
Um hundrað og fjörtíu
manns sóttu guðsþjó-
nustu í Knappstaða-
kirkju í Fljótum sl. sun-
nudag.
Þetta er líklega mesti íjöldi
sem er þar við guðsþjónustu
síðan sú venja að messa þar
einu sinni á sumri var tekin
upp fyrir nokkrum árum. Það
varséraSigurðurÆgissoná Si-
glufirði sem messað.organisti
var Rögnvaldur Valbergsson
frá Sauðárkróki og kirkjukór
Barðskirkju söng. Að sjálf-
sdögðu komust ekki allir
viðstddir inní kirkjuna og
varð hluti fólksins að hlýða á
það sem frain fór í kirkjunni
utandyra. Það kom ekki að
sök því hiti var liðlega 20 stig
ásamt snarpri sunnan golu.
Sú hefð hefur skapast að tals-
verður fjöldi kemur á hestum
til kirkjunnar og var svo ein-
nig nú. Töldu kunnugir að
hrossin hefðu verið liðlega
eitthundrað talsins en að sjálf-
sögðu höfðu flestir meira en
einn til reiðar. Eítir messu
var kaffidrykkja ,en nú varð
að flytja kaffið og hlaðborðið
í hús vegna strekkingsins en
að sjálfsögðu neittu viðstaddir
veitinganna úti samkvæmt
venju.
Knappsstaðakirkja er fram-
arlega í Austur-Fljótum. Hún
var áður sóknarkirkja þeirra
sem bjuggu í fremsta hluta
sveitarinnar, en var aflögð sem
slík þegar fólki hafði fækkað
verulega í sókninni. Kirkjan
var umhirðulítil í nokkur á ,en
þegar í óefni stefndi með hana
stofnuðu heimamenn og vel-
unnarar sveitarinnar áhuga-
mannafélag um varðveislu
hennar. Var ráðist í verulegar
endurbætur á henni og lýtur
hún og kirkjugarðurinn nú
vel út og er félaginu til sóma.
Séra Sigurður lét þess ein-
mitt getið í ræðu sinni hvað
mikilvægt væri að halda við
kirkjum þar sem fólk væri
orðið fátt í sóknum eða jafn-
vel allir farnir. Þá væri það
mikilvægt að fólk hefði taugar
til kirkjunnar,sýndi henni
ræktarsemi og umhirðu.
Ávallt þyrftu einhverjir að hafa
forustu í slíkum málurn þann-
ig að gömul guðshús grotn-
uðu hreinlega ekki niður.
Utsala! Útsala
byrjar á
fimmtudag
Gott að fá stuðnirg.