Feykir - 13.07.2005, Síða 6
6 Feykir 27/2005
ffómsætt gott
^ hjá/Jóní/Vow/ ^
Feykir hefur fengið Jón Daníel á Kaffi Krók til að sjá um
matarhorn í Feyki og er upplagt að áskrifendur setji upp
kokkhúfuna og reyni sig við uppskriftir Jóns.
Að þessu sinni verðum við
með einfalt og framandi á
grillið. Við hefjum leikinn á
túnfisksteik með austur-
lensku ívafi og förunr svo í
mexíkóskar tortillakökur
sem falla vel að srnekk barna
sem fullorðinna.
Túnfiskur fyrir 4
Innihald
800g túnfiskstelkur (fæst oft
frosið frá Snæfiski)
Kryddlögur:
1 dl ólífuolía
2 stk. Hvítlauksrif(söxuð)
1 msk. Rósapipar (grófmulin)
2 msk ostrusósa
2 msk sweet-chiii sósa
Blandið öllu sanran senr á að
fara í kryddlögin í skál, leggið
túnfiskinn í og látið standa í
kæli í ca eina klukkustund.
Strjúkið svo mesta krydd-
löginn af fiskinum og geymið
kryddlöginn. Setjið tún-
fiskinn á heitt grillið og grillið
í ca eina og hálfa mínútu á
hvorri hlið. Ath. Fiskurinn á
að vera lítið steiktur, þ.e.
bleikur í miðjunni.
Skerið túnfisksteikurnar í
tvennt og berið fram með
afganginum afkryddleginum,
kartöflum og salati.
Grillaðar Quesadillas
Uppskrift fyrir fjóra
4 stk 10 tommu tortilla kökur
2 bollar rifinn ostur
grófmulinn svarturpipar
Leggið tortillurnar á borð,
setjið hálfan bolla af osti
öðrum megin á hverja tortillu
og kryddið með pipar eftir
smekk. Brjótið tortillurnar til
helminga (loka þeim yfir
ostinn). Setjið tortillurnar á
grillið og grillið í ca. 5 mínútur
og snúið þeim reglulega við
svo þær brenni ekki. Skerið
síðan hverja köku í fjórar
sneiðar og berið fram með
salsasósu og sýrðurn rjóma.
Einnig er gott að setja inní
kökurnar til dærnis skinku og
grænmeti - allt eftir smekk
hvers og eins.
Kveðja,
Grilljón
Hráefnið sem Jón Dan notar
er haagtað náigastí
Skagfirðingabúð.
M I N N I N G
ÁRNI ÞORBJÖRNSSON
fæddur 10. júní 1915 - látinn 29. júní 2005
Mig langar að minnast vinar
míns Árna Þorbjörnsson-
ar. Ég var um 6 ára er ég
sá hann fyrst, hann þeysti
ríðandi á glæstum gæðingi í
hópi vina sinna. Þeir konru
neðan Skarðs skarðið er svo
var nefnt, en það er skarðið
sem tengir dalina Langadal
og Laxárdal fremri senr lig-
gja samhliða nreð fjallgarð
í milli.
Núpsöxl, bærinn sem ég
fæddist á, var í Laxárdal svo
til beint upp undan Geitas-
karði þar sem Þorbjörn bjó
sínu rausnar búi. Já, þeir
voru glæsilegir Geitaskarðs-
bræður og eftir þeim tekið
hvar sem þeir voru. Engin
furða þó minningin hafi
grópast í huga lítillar stelpu
sem sjaldan sá ókunnuga.
Ég fylgdist vitanlega lítið
með Árna á hans ungdóm-
sárum, en er Magnús minn
var á síld áttu þeir samskipti
og gaf Árni manni mínum
þá góða ráðgjöf, þá ungur
lögfræðingur.
Magnús minn mat Árna
ætíð rnikils og fól honum
fjárráð okkar er við flut-
tumst til WA. Hann reyn-
dist okkur í alla staði vel og
lét sér annt urn okkar hag og
barnanna, sem hann hafði
sumum kennt áður en við
fluttum. Hann skrifaði mér
eitt sinn að hann vonaði
að ég léti nú ekki krakkana
kornast upp með að glutra
niður móðurmálinu. Ég get
með sanni sagt að öll tala
þau íslensku enn og surnt af
barnabörnunum.
Eftir að við snerum heirn,
þó aðallega eftir að Árni fór
á Heilbrigðisstofnunina,
kynntumst við betur, ég
heimsótti hann þar og hefði
átt að gera oftar. Við áttum
saman margar ánægjustun-
dir, rifjuðum upp gamla
daga og ræddurn margt. Þær
stundir eru mér dýrmætar.
Árni heilsaði mér alltaf
hlýlega. „Ertu nú komin
Stína mín.” Enginn annar
kallaði nrig Stínu en það var
mamma kölluð en þau Árni
voru góðir vinir kunningjar
á árurn áður.
Ég þakka Árna okkar góðu
kynni fyrr og sfðar.
Kristín Helgcidóttir
Knattspyrnuskóli íslands á Sauðárkróki dagana 28. júlí til 1. ágúst
Spennandi og vímulaus
valkostur fyrir unglinga
Knattspyrnuskóli íslands
verður haldinn á Sauðár-
króki um næstu verslun-
armannahelgi. Er þetta
sjöunda árið í röð sem
skólinn er haldinn.
Knattspyrnudeild Umf.
Tindastóls rak skólann
fyrstu fimm árin en í
fyrra tók Bjarni Stefán
Konráðsson, þjálfari og
íþróttafræðingur við
rekstrinum. Hann hefur
verið skólastjóri frá
upphafi ef frá er talið
fyrsta árið.
Að þessu sinni er skólinn
haldinn í samstarfi við
Knattspyrnuakademíu Islands
en Arnór Guðjohnsen, fyrrunt
atvinnumaður í knattspyrnu,
er skólastjóri hennar. Bjarni og
Arnór hófu samstarf sl. vetur
og hefur það leitt til þessa
samstarfs með skólahaldið á
Króknum nú.
Skólinn er ætlaður stúlkum
og drengjum frá 11-17 ára
aldri, þ.e. þeim sem eru fæddir
1988-1994. Hundruð krakkaaf
öllu landinu hafa sótt skólann
og fjölmargir góðir gestir, bæði
þjálfarar og þekktir knatt-
spyrnumenn, hafa komið í
heimsókn og miðlað af þekk-
ingu sinni og reynslu.
Þá hafa foreldrar komið og
dvalið í Skagafirði þessa helgi
og notið nátttúrufegurðar á
meðan krakkarnir hafa æft
knattspyrnu af kappi undir
leiðsögn hæfra leiðbeinenda.
Skólinn hefst fimmtudaginn
28. júlí og honum lýkur
mánudaginn 1. ágúst. Almennt
verð fyrir skólann er 15.900
krónur. En líkt og í fyrra er
boðið upp á sérstakt verð fyrir
krakka úr Skagafirði. Það er
7.500 krónur og innifalið í því
er allt sem í boði er á vegum
skólans nema fæðið.
Innifalið í skólagjaldinu erm.a.:
• 7 æfingar
• / knattspyrnumót
• fullt fæði og húsnæði
• örugg gæsla allan sólarhringinn
• peysa, bolti, bakpoki, frítt í sund,
viðurkenningarskjal frá
Knattspyrnusambandi Evrópu
þátttökupeninguro.fl. o.fl.
Loks mun “Þýskubíllinn”
svonefndi, sem kynntur var
formlega á blaðamannafundi í
gær, koma við í skólanum og
kynna heimsmeistarakeppnina
í knattspyrnu sem fram fer í
Þýskalandi á næsta ári.
Foreldrar um allt land hafa
verið geysilega ánægðir með að
geta haft börn sín í öruggri
gæslu við knattspyrnuiðkun
um þessa viðsjárverðu helgi
enda hafir margir þeirra sent
börn sín ár eftir ár á Krókinn.
Ljóst er að skólinn hefur
aukið hróður Tindastóls og
Skagafjarðar, auk þess sem ótal
krakkar hafa snúið heim með
góðar minningar úr Skagafirði.
Allnr npplýsingar um
skólann máfinha á mvw.
knattspyrnuskólinn.net og hjá
Bjarna Stefáni í síma 695-4504
eða á bjarnist@mr.is
> Meistaramót GSS í golfi :: Hlíðarenda-
golfvelli, Sauðárkróki
13. -16. júlí
> Meistaramót GÓS í golfi við Blönduós
14. júlí
> Fornleifarölt á Hólum kl. 17.00
15. - 17. júlí
> Fjölskylduhátíðin Matur og menning á
Blönduósi. Skemmtun fyrir börn og fullorðna,
fyrirtæki í matvælaiðnaði, auk annarra,
kynna vörursínar
15.-16. júlí
> UMSS - serían í frjálsum íþróttum á
Sauðárkróksvelli
15. júlí
> Knattspyrna á Blönduósi M.fl. karla -
3. deild, Hvöt- Hviti riddarinn, kl. 20.00
> Steaknight á Kaffi Krók, kl 18-22
> Bleikjuhlaðborð á veitingastaðnum Undir
Byrðunni á Hólum, frá kl. 18.00, Gengið til
móts við Galdra-Loft kl. 22.00
16. júll
> Blönduhlaup, almenningshlaup við Blöndu,
hefst kl.13.00
> Hafnardagurinn á Króknum
> Dagsferð í Laugarfell með JRJ jeppa-
ferðum. Fariðfrá Varmahlíð kl. 11
> Fornleifarölt kl. 13.00 á Hólum
17. júlí
> Fjölskyldudagur á hestaleigunni,
Lýtingsstöðum í Skagafirði
> Dagsferð í Laugarfell með JRJ jeppa-
ferðum. Farið frá Varmahlíð kl. 11
> Guðsþjónusta í Hóladómkirkju kl. 11.00
Tónleikar í Hóladómkirkju kl. 14.00. Eydís
Franzdóttir, Hallfríður Ólafsdóttir og Ármann
Helgason leika saman á óbó, flautu og
klarinett. Kaffihlaðborð á veitingastaðnum
Undir Byrðunni kl. 15.00
> Helgistund í Blönduóskirkju
> Messa í Viðidalstungukirkju í Húnaþingi
vestra
> Lifandi dagskrá í Heimilisiðnaðarsafninu á
Blönduósi. Konursýna handavinnu. Boðið
uppá mysu og húnvetnska sviðasultu.
18. júlí
> Skotfélagið Ósmann með opinn skotvöl-
linn, frá kl 18-21, við Sauðárkrók
19. júlí
> Barnadagar á Hólum, dagskráin hefst
kl. 15.00
20. júlí
> Ólafshússmótaröðin í golfi 08 við
Sauðárkrók
> Barnamót USAH, frjálsíþróttamót fyrir börn
10 ára og yngri á Skagaströnd
20. - 24-júlí
> Unglistahátiðin á Hvammstangi
21. júlí
> Opna Sony-Ericsson mótið í golfi við
Sauðárkróki
> Fornleifarölt kl. 17.00 á Hólum
> Mellow Musika á Þinghúsinu í
Hvammstangi
söfn & sýningar
Á NORÐURLANDIVESTRA
Glaumbær - opið alla daga frá 9-18
Minjahúsið á Sauðárkróki - opið alla daga
frá 14-17
Viðimýrarkirkja - opið alla daga frá 9-18
Vesturfarasetrið - opið alla daga frá 11-18
Vatnalífssýningin á Hólum - opið alla daga
frá 10-18
Samgönguminjasafn Skagafjarðar - opið
alla daga 13-18
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi - opið
alla daga frá 10-17
Byggðasafnið á Reykjum - opið alla daga
frá 10-18
upplysingar@skagafjordur.is