Feykir - 31.08.2005, Side 1
Áfram spáð hausthraglanda
Veðrið siðustu vikuna hefur ekki verið til að hrúpa húrra yfir. Veðurstofan gerir ráð fyrir svipuðu veðri fram yfir helgina.
Samgönguráðherra segirhorft til Norð vesturkjördæmis í nýrri byggðaáætlun
Vill vaxtarsamning fyrir
miðsvæði kjördæmisins
Ný byggðaáætlun verður lögð fyrir alþingi í haust.
Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, vill gera
sérstakan vaxtarsamning er næði yfir svæðið úr
Skagafirði um Húnavatnssýslur, Dali og vestur á
Snæfellsnes. Fyrirmynd slíks samnings er t.d.
vaxtarsamningur er gerður fyrir verið fyrir Vestfirði.
Þetta kom meðal annars
fram í máli ráðherra á nýliðnu
ársþingi Samtaka sveitarfélaga
á Norðurlandi vestra. „1
byggðaáætlun leitast stjórnvöld
við að kortleggja miklvægar
aðgerði í þágu byggðanna,”
sagði samgönguráðherra í
ræðu sinni á Ársþingi SSNV á
Siglufirði. „Égtelþað fullvísst
að horft verður til þeirra svæða,
sem mest eiga undir högg að
sækja hér á Norðurlandi vestra,
í nýrri byggðaáætlun sem lögð
verður fyrir Alþingi á haust-
þinginu."
Sturla Böðvarsson útskýrði
í ræðu sinni nánar hvaða
hugmyndir væri um að ræða
og sagðist telja nauðsynlegt að
huga að gerð vaxtarsamnings
sem næði yfir svæðið allt úr
Skagafirði um Húnavatnsýsl-
ur, Dali og Snæfellsnes á sama
hátt og gerður hefur verið
vaxtarsamningurfyrirVestfirði.
Með slíkum inarkvissum að-
gerðum gæti kjördæmið staðið
saman innbyrðis og svæðin
stutt hvert annað.
Samgönguráðerra sagði að
tn'ggðir hefðu verið fjármunir
til að ljúka við næsta áfanga
Þverárfjallsvegar en þriðji og
síðasti áfangi hefur ekki verið
tjármagnaður.
Fram kom í máli margra
sveitarstjórnarmanna að rík
áhersla er lögð á að ljúka
þessum framkvæmdum enda
meiri umferð um veginn en
reiknað haf’öi verið með.
Lág birgðastaða veldurmikilli eftirspurn
Bjóða álag og
staðgreiða innlegg
til 16. september
„Það er mikil eftirspurn
eftir nýju kjöti og hvert
einasta kíló rifið út úr
höndunum á okkur
núna," segir Ágúst An-
drésson, sláturhússtjóri
hjá Sláturhúsi KS, en
sauðfjárslátrun hjá
afurðastöðini hófst af
fullum krafti í þessari
viku.
Ágúst segir að í þessari
viku sé afurðastöðin að greiða
14% álag ofan á auglýst verð,
í næstu viku 10% álag og
í þriðju viku héðan í frá 6%
álag. Þrátt fyrir þetta hefur
slátrun ekki komist á fullan
skrið vegna þess að húsið fær
ekki nægilega mörg lömb til
slátrunar. Til að bregðast við
þessu hefur verið ákveðið að
staðgreiða innleggið, þ.e.a.s.
greiða bændum fyrir innlegg
vikunnar á hverjum föstudegi
til 16. september.
Ágúst segir að málið snúist
ekki um samkeppni milli
afurðastöðva um lömbin hel-
dur miklu frekar að fá þau slá-
turlömb sem þeim hefur verið
lofað fyrr inn til slátrunar.
Hann segir afurðastöðina
hafa alla burði til að ná fullum
afköstum eins og staðan sé í
dag hafi einungis verið lofað
til sláturnar í næstu viku 1000
lömbum en á fullum afkös-
tum fara 2600 lömb á dag í
gegnum sláturhúsið.
Helstu skýringar þess að fé
hefur ekki fengist til slátrunar
eru að göngur eru ekki hafnar
og fé er enn á fjalli. Þá hafa
bændur einnig séð sér hag í
því að þyngja dilka með því að
beita á góðan liaga fram eftir
hausti.
Fyrstu réttir haustsins um helgina_
Húnvetningar ríða
w M ■ M ®
a vaðið
Fyrstu réttir á þessu
hausti verða í Húna-
vatssýslum um helgina.
Eitt stærsta fjársafn lands-
ins kemur saman þegar
réttað verður í Auðkúlu-
rétt í Svínavatnshreppi laug-
ardaginn 3. september en
nú standa yfir fyrstu göng-
ur á Eyvindastaðaheiði og
Auðkúluheiði.
Þá verður einnig rétt-
að í Stafnsrétt í Svartárdal
á sunnudag svo og í Mið-
fjarðarrétt og Hrútatungu-
rétt. í Miðfjarðarrétt verða
stóðréttir á laugardagsmorg-
uninn en um kvöldið verður
slegið upp réttarballi á
Laugarbakka.
Helgina eftir verður
síðan réttað í Undirfellsrétt
í Vatnsdal, Víðidalsrétt og
Valarásrétt í Fitjárdal.
Almenn raftækjaþjónusta
- frysti og kæliþjónusta
- bíla- og skiparafmagn
- véla- og verkfæraþjónusta
—CTenyil! ehp—
Bílaviðgerðir
hjólbarðaviðgerðir
réttingar og sprautun
jnrri
Æ ÍjljLjBT
bílaverkstæði
Aðalgötu 24 550 Sauðárkrókur Sími 453 5519 Fax 453 6019
Sæmundargötu lb 550 Sauöárkrókur Sími 453 5141