Feykir


Feykir - 14.12.2005, Blaðsíða 19

Feykir - 14.12.2005, Blaðsíða 19
47/2005 Feyká-19 Jól í torfbæ í Skagafirði Kerti og spil „heitustu" gjafimar Oddný Þorvaldsdóttir á aðeins rúm þrjú ár eftir í nírætt og hefur því lifað tímana tvenna. Hún ólst fyrstu ár ævi sinnar upp á bænum íbishóli í Seyluhreppi. Oddný féllst á að rifja upp hvernig hún, sem lítil stelpa, upplifði lífið á bænum sem var úr torfi og þá sérstaklega þann tíma ársins sem brátt rennur upp, nefnilega sjálfa jólahátíðina. í dagbýrOddnýíþjónustu- íbúð í Reykjavík og segir að strax í nóvember láti fólk eins og jólin séu bara komin. „Ég kann ekki að meta það. Heima á íbishóli var farið að huga að jólurn um viku áður en þau gengu í garð. Mamma bakaði þá sntákökur; gyðingakökur og hálfmánar eru mér ofarlega í huga. Einnig sveskjuterta en við krakkarnir vildunt vera nálægt þegar sveskjurnar voru soðnar því þá fengum við stundum að sleikja steinana” Jólatré var sett upp í baðstofunni. Afi Oddnýjar smíðaði það úr sverri spítu með götum sem álmi var stungið í og þjónaði hlutverki greina. Jólatréð var að sjálfsögðu skreytt, þó ekki með tilbúnu jólaskrauti held- ur bara því sem tiltækt var á bænum. „Nokkru fyrir jól var reynt að ná í sortulyng sem stendur lengi grænt og það fest utan um tréð. Við krakkarnir bjuggum líka til eitthvað fallegt, t.d. úr silfurbréfunt sem okkur áskotnaðist yfir árið. Úrþeirn varð oft verulega fallegt jólaskraut. Punktinn yfir i-ið settu svo lítil snúin kerti sem gerðu jólatréð af- skaplega hátíðlegt.” Eitt bað á ári Þegar aðfangadagur rann upp var lögð lokahönd á tiltekt fyrir hátíðina, allt pússað sem eftir var og hangikjöt soðið. „Svo fórum við í bað, eina bað ársins að mig minnir. Á þessunt tíma var ekki lagt mikið upp úr reglulegri böðun, við krakkarnir vorurn þó þvegin af og til upp úr bala. Mikið var lagt upp úr því að allir væru kontnir í fötin klukkan sex því þá hófst jólahátíðin. Spenningur var nú ekkert mjög rnikill en olckur þótti öll tilbreyting góð. Bærinn var meira lýstur og svo fengum við að smakka kökurnar og hangikjötið.” „Allir fá þá eitthvað fallegt, í það minnsta kerti og spil”. Þessa ljóðlínu þekkja flestir enda úr einu mest sungna jólalagi síðustu áratugina. En kerti og spil þykja ekki merkileg gjöf hjá ungdómn- um í dag en á fyrrihluta síð- ustu aldar voru þetta “heitustu” gjafirnar. „Jólagjafir voru nú ekki rniklar. Við fengum alltaf kerti og spil, einn stokk sarnan systkinin," rifjar Oddný upp. „Við máttum að vísu ekki spila fyrr en á jóladaginn en ég man að okkur langaði að spila á aðfangadagskvöld. Eitthvað fengum við líka af fatnaði, t.d. fengunt við öll nýja sauðskinnskó. Þeir voru ekki hlýjir, okkur var oft kalt á fótunum. Svo fengum við stelpurnar jólasvuntur, ég man ekki eftir sérstökum jólakjólum fýrr en við fluttum á Sauðárkrók árið 1928.” Kálfakjöt ef veður leyfði Jóladagur var einnig haldinn hátíðlegur en hann hófst á því að börnin á bænum fengu kakó og kökur í rúntið og segir Oddný að sá siður hafi verið þekktur nokkuð víða. Matur var einnig meiri og betri en gekk og gerðist. „Ef svo bar við að kýr bar seint eða þannig hagaði til nteð veður að geyma mátti kjöt úti í frosti eða skafli var kálfakjöt á boðstólum. Annars fengunt við hangikjöt og kannski sætsúpu og þótti okkur það óskaplega gott. Seinnipartinn var hitað súkku- laði og bakaðar pönnukökur. Á jóladag máttum við líka spila og fara í leiki. Við svarta- Pétur, púkk, rnarías og hjónasæng en ekkert var unnið nerna hvað skepnum var sinnt.” Andakt og áramótabrenna Oddnýju rekur ekki rninni til þess að farið hafi verið til kirkju yfir jólahátiðina þó ekki hafi verið langt að fara. „Amrna mín hafði þann háttinn á að þó ekki væri farið til kirkju að krefjast þess að einhver andakt væri yfir fólkinu, það mátti ekki vinna eða vera með læti yfir hámessutímann. Það var ekki mikil guðrækni í fjölskyldunni en þó var húslestur alla sunnudaga nema þegar sláttur stóð yfir. Lítið var gert með áramó- tin þegar þau runnu upp. Þó segist Oddný ntuna eftir að hafa verið úti á hlaði með systkinum sínum einn gamlársdag og þá hafi þau séð eitthvað loga yfir í Blönduhlíð en bær þeirra stóð svo hátt að sást yfir alla sveit. „Þetta hlýtur að hafa verið nokkur brenna fyrst hún sást alla þessa leið því svolítið langt er á milli bæjanna. Við krakkarnir rukum til og fórurn að tína eitthvað saman, bréfsnifsi og spítur, til að kveikja svolítið bál. Þetta varð nú reyndar afskaplega lítilfjörlegt hjá okkur því ekki var nú mikið um bréf í þá daga.” Lítil loftræsting I Hjaltastaðakoti í Blöndu- hlíð þar sem Oddný og systkyni hennar fæddust var torfgólf en þegar elsta barnið fæddist herjaði móðir hennar það út að sett var trégólf milli rúmanna. Nokkuð nteira var lagt í íbishól, baðstofan var t.a.m. þiljuð. „Gluggarnir voru þó ósköp ómerkilegir og ég held ég megi fullyrða að ekki var hægt að opna gluggana. Loftræstingin sam- anstóð af kringlóttu gati í miðjurn gluggapóstinum þar sem í var tappi sent hægt var að fjarlægja til að lofta út. Það dugði þó engan veginn því þarna svaf fullt af fólki og matur var eldaður. Maður myndi ekki sætta sig við svona aðstæður í dag,” segir Oddný og hlær. „Þarna var okkur að lesa nteð bandprjónsaðferðinni sem alþekkt var í þá daga. Þá var bandprjónn notaður til að benda á stafina sent lesa átti. Ég veit ekki hvort farskólar voru til staðar á þessum tíma en maður af næsta bæ kont stundum og kenndi eldri krökkunum á bænurn og þá fékk ég að vera með þrátt fyrir ungan aldur. Mörg börn lærðu að lesa á biblíu og aðrar guðsorðabækur en sú var ekki raunin heirna hjá mér. Við lásunt Grántann í Garðshorni, Hlyn kóngsson og fleira skemmitlegt. í Grófargili var svo lestrarfélag, sem var nokkurs konar bókasafn og þar var hægt að fá lánaðar bækur. Á Ibishóli var alltaf lesið á kvöldin, oft bækur sent fengnar voru að láni úr safninu. Okkur krökkunum þóttu margar þeirra spennandi enda ekki unt barnabækur að ræða. Ég man t.d. eftir Sögu herlæknisins sern mér fannst mjög skemmtileg.” Flutningur á mölina Þegar fjölskyldan fluttist á Sauðárkrók breyttist margt í högurn hennar og lífi barn- anna en ekki fannst Oddnýju það allt vera til batnaðar. „Mér fannst sem ég hefði ekkert að gera á Króknum, ég vildi vera í sveitinni og grenjaði bara. Mig vantaði hundinn, köttinn rninn og hestana. Og svo var varla nokkurs staðar gras í bænum, bara möl og ég vældi af því að ég vildi ganga á grasi. Ég kaus frekar sveitina." Eins og fyrr segir býr Oddný nú í höfuðborginni og segist ekki sakna sveitarinnar að ráði. Þó séu minningarnar þaðan ljúfar enda Seyludal- urinn fallegur. ÓlöfSnœhóltn Baldursdóttir Torfbær frá síðustu öld. Myndin er tekin á Ábæí Austurdal.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.