Feykir - 14.12.2005, Blaðsíða 23
47/2005 Feykir 23
Árgangur: 1964.
Fjölskylduhagir: Á einn karl og 10 hænur.
Starf/nám: Verkefnastjóri hjá Hólaskóla
og námsefnishöfundur.
Bifreið: Toyota HiLux-glænýr.
Hestöfl: Nógu mörg.
Hvaðer í deiglunni: Jólahald og skrif.
Hvernig hefurðu það?
Ég hefþað mjög gott.
Hvernig nemandi varstu?
Ég var mikill fyrirmyndarnemandi að
sjálfsögðu.
Hvað er eftirminnilegast frá fermingar-
deginum?
Líklega þegar ég sagði ,,/a". Pabbi var
búinn að segja mér að tala hátt ...og það
undirtók í kirkjunni. Eins man ég vel eftir
því þegar ég fékk skóna sem hölluðu af-
turábak. Þetta voru flottustu skór sem
ég hafði nokkurn tima séð og mig hafði
dreymt um að eignastsvona skó.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir
stór?
Það kom ýmislegt til greina. Þegar ég var
4ra ára ætlaði ég að verða hárgreiðslu-
kona. Aðrar hugmyndir komu upp á yfir-
borðið síðar: efnafræðingur, þroskaþjálfi,
landslagsarkitekt, myndlistarmaður (í
mussul), kottagerðarmaður en svo fór ég
i Kennaraháskólann sem var nú nokkuð
gott val. Þaðer góður skóli.
Hvað hræðistu mest?
Ég er yfirleitt ekki hrædd, en ég er líka
varkár og kem mérþvi sjaldan i aðstæður
þarsem ég hræðist.
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir
(eða besta)?
Líklega keypti ég fyrst Spilverk þjóðanna.
Ég dýrkaði Spilverkið og Þursaflokkinn.
Annars var fyrsta platan mín með Bessa
Bjarnasyni.
Hvaða lag ertu líklegust til að syngja í
Kareókí?
Völuvisu -enþað er örugglega ekki hægt
að fá undirspilið svo þetta fellur bara um
sjálftsig.
Hverju missirðu helst ekki afí sjónvarp-
inu (fyrir utan fréttir)?
Áramótaskaupinu.
Besta bíómyndin?
Gestaboð Babettu, eða kannski Amalie,
nei Tvöfalt líf Verónikku, Óbærilegur létt-
leiki tilverunnar.... ég getekki valið!
Bruce Willis eða George Clooney / An-
gelina Jolie eða Gwyneth Paltrow?
Ég þekki ekki þetta fólk, en kannast þó
við nöfnin!
Hvað fer helst í innkaupakúrfuna sem
ekki er skrifað á tossamiðann?
Hanskarnir mínir og alpahúfan.
Hvað erí morgunmatinn?
Morgunkorn og mjólk, appelsinusafi,
lýsi og vitamín.
Uppálialds málsháttur?
Sá hlær best sem siðast hlær. Þessi
málsháttur er venjulega sagður við fyndn-
ar aðstæður og því er hann skemmti-
legur. Mér er hins vegar frekar illa við
Heimskur jafnan höfuðstór.
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar
mest til þín?
Ferdinant en Kalvin er líka ferlega
góður.
Hvert er snilldarverkið þitt í eldhús-
inu?
Hálfmánar koma fyrst upp í hugann!
Hver er uppáhalds bókin þín?
Gullkornabókin mín. Hún er þannig að
ég skrifa í hana það sem mér finnst
athyglisvett, fallegt eða flott í því sem
ég er að lesa. Þetta er sem sagt mín
eigin tilvitnanabók.
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og
réðir hvert hún færi, þá færirðu...
...kannski í dalinn þar sem er lítill bónda-
bær og yndisleg náttúra og timinn er
óþrjótandi. Þarergottað vera.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari
annarra?
Neikvæðni og tilætlunarsemi. Sem
betur fer umgengst ég fáa með þessi
einkenni.
Hvaða íþróttamanni / dómara hefurðu
mestar mæturá?
Alberti frænda, hann erí blaki.
Heim í Búðardal eða Diskó Friskó?
Diskó Friskó.
Hver var mikilvægasta persóna 20. ald-
arinnar að þínu mati?
Skúli minn ... frá mínum bæjardyrum
séð.
Ef þú ættir að dvelja alein á eyðieyju,
hvaða þrjá hluti tækirðu með þér?
Ég tæki með mér blað, blýant og
flösku... fyrir náttúrulega utan hlý föt og
gönguskó.
Hvað er best í heimi?
Kærleikur og ást.
Hvernig eru Skagfirðingar?
Ég held að þeim þyki öllum vænt um
Skagafjörð, en að öðru leyti erþeirjafn-
ólíkir og þeir eru margir.
Sameinað sveitarfélag í Austur Húnavatnssýslu fær nafn_
Meirihluti valdi Húnavatnshrepp
Nýtt sveitarfélag er verð-
urtil við sameiningu
Bólstaðahlíðarhrepps,
Svínavatnshrepps,
Torfalækjarhrepps og
Sveinsstaðahrepps heitir
Húnavatnshreppur. íbúar
verðr um 400 talsins.
Kosin var sjö manna
sveitarstjórn um síðustu helgi
og var valið á rnilli nafa í
kosningunni. Listi Framtíðar,
sem leiddur er af Birni
Magnússyni á Hólabaki, fekk
tjóra ntenn kjörna en listi Nýs
Afls, sem Ólöf Birna
Björnsdóttir á Hæli leiðir,
hlaut Ijóra menn kjörna. Fyrir
áhugamenn um ættífæði má
geta þess til gamans að, afi
Ólafar var hinn þjóðkunni
alþingismaður, Björn Pálsson
á Ytri Löngumýri.
Sveitarstjórnarkosningar
fara fram að nýju í Húna-
vatsnshreppi við reglulegar
sveitarstjórnarkosningar í
vor.
Sveitarfélög íA-Hún. og Skagafirði
Byggðasamlag
um sorpförgun
í síðustu viku náðist
samkomulag um
stofnun sameiginlegs
byggðasamlags um
sorpeyðingu fyrir
Skagafjörð og Austur
Húnavatnssýslu
en undanfarin 2 ár
hefur verið unnið
að undirbúningi og
rannsóknum til að finna
heppilega framtíðarlausn
á sorpeyðingu á
svæðinu.
Á undirbúningstímanum
hefúr m.a. verið gerð
rannsókn á allmörgum
stöðum sem til greina gætu
komið sem urðunarstaðir
og jafiiframt kannaðir
möguleikar á að reisa
brennslustöð fyrir úrgang
með orkunýtingu í huga.
Tillaga að matsáætlun
fýrir valkosti hefur verið send
Skipulagsstofnun og reiknað
með að umhverfismat
geti farið fram í ársbyrjun
2006. Ekki hefúr farið ffam
endanlegt mat á staðarvali
en gert ráð fýrir að það
verði gert í tengslum við
umhverfismatið.
Byggðasamlagið hefur
ekki hlotið formlegt nafú
ennþá og var falið nýrri
stjórn að leita eftir og legg-
ja frain tillögur. Aðalstjórn
byggðasanrlagsins skipa
sveitarstjónarmennirnir
Bjarni Maronsson, Gunnar
Bragi Sveinsson, sveitarféla-
ginu Skagafirði og Magnús
B. Jónsson, Austur-Húna-
vatnssýslu.
Körfuboltinn___________
Keflavík og
Haukar
Lið Tindastóls komst
áfram í bikarkeppni
Lýsingar og KKÍ á dög-
unum.
Stólarnir fór austur á
Höfn í Hornafirði og unnu
ágætan sigur á 2. deildar liði
Sindra, 73-108.
Dregið var í 16 liða
úrslitum bikarsins í gær og
það verður við ramrnan
reip að draga fyrir karla- og
kvennalið Tindastóls.
Karlarnir fá íslands-
meistara Keflavíkur heim
í Síkið en stúlkurnar fara í
Hafnarfjörð og leika við lið
Hauka.
smáauglýsingar Sendið smáauglýsingar til frirrar birtingar á feykir@krokur.is
TAXI ing. Upplýsingar í síma 453 5843 og eitthvað svipaður á breidd.
Bagnar Guðmundsson Gilstún 24 Heimasimi 453 5785 Gsm 897 6085 Kápa tekin í Kostaði nýrfrá TM-húsgögnum 19.900,- fæstá7000.-áhugasamir hafi samband á ulfur@simnet.is.
Hvett á land sem er! misgrípum! Á sama stað vantar 20" ódýrt
Til sölu Til sölu sófasett (svefnsófi) og tveir stólar. Fæst fyrir litinn pen- Tilsöluer eins árs sjónvarps- skápurfrá TM-Húsgögnum kirsu- berjaklæddurspónn. Skápurinn hefur að geyma spóluhillur/cd hillur, glerskápur fyrir hljómflutn- ingstæki tvöfaldur skápur undir sjónvarpi. Hann er 150 cm á hæð sjónvarp verðurað vera hægtað tengja leikjatölvu við það,