Feykir - 04.01.2006, Qupperneq 5
01/2006 Feykir 5
laxveiðiám landsins. Þegar
veiðitölur voru gerðar upp í lok
september kom í ljós að á
áttunda þúsund löxum hafði
verið landað á bökkum
húnvetnsku ánna, sem reyndist
metveiði.
Töluverðar sviptingar voru í sve
itarstjórnarpólitíkinni í Skaga-
firði í október en málin leystust
þó með friðsamlegum hætti að
lokum. Hið sama var því miður
ekki hægt að segja um veðrið.
Þar voru einnig töluverðar
sváptingar en kludinn og ótíðin
héldust í hendur. Þó hlýnaði
heldur í veðri undir lok
mánaðarins.
Lagði til uppsögn
Gísli Gunnarsson, forseti
sveitarstjórnar í Skagafirði gerði
tillögu um starfslok Ársæls
Guðmundssonar, sveitarstjóra í
fúndarboði til sveitarstjórnar.
Ástæðan var sögð langvarandi
þreyta í samskiptum oddvita
vinstri grænna og
sjálfstæðismanna. ÁUt fór þó vel
að lokum og ekki kom til
uppsagnar eftir að sveitarstjóri
bað Gísla Gunnarsson
afsökunar á óheppilegum
ummælum í hans garð.
Sameining felld
Sveitarstjórnarmálin voru víðar
í hrennidepli. Aðra helgi í
október var kosið um
sameiningu Húnaþings vestra
og Bæjarhrepps í Strandasýslu,
sameiningu Blönduós, Skaga-
strandar, Skagabyggðar og Ása-
hrepps og sameiningu Sveit-
arfélagsins Skagafjarðar og
Akrahrepps. Var sameining
allsstaðar felld. Siglfirðingar
samþykktu hins vegar að
sameinast Ólafsfirðingum.
Stóð í vegi
Laugardaginn sem kosið var
um sameiningu sveitarfélaga
stóð 24 vetra gamall klár úr
Hjaltadal í vegi fýrir lögreglubíl
er flutti kjörgögn ffá Hólum til
talningar á Sauðárkróki. Með
snarræði tókst ökumanni að
afstýra slysi en þó slóst haus
hrossins utan í bifreiðina. Hún
skemmdist lítið og þeim gamla
var heldur ekki meint af.
Yfirlögregluþjóninn á Sauðár-
króki taldi lítinn vafa á að
klárinn hefði með þessu verið
að mótmæla sameiningarkosn-
ingunum.
Heita vatnið
Skagafjarðarveitur, sömdu við
Ræktunarsamband Flóa og
Skeiða um tilraunaborun eftir
heitu vatni í Hrollaugsdal.
Niðurstaðan var ánægjuleg.
Borholan skilaði nægu vatni
fýrir hitaveitu á Hofsósi og í
Sléttuhlíð en íjarlægð frá borstað
til Hofsós er urn 13 kílómetrar.
Keyptu hitaveitu
Skagafjarðaveitur keyptu Hita-
veitu Hjaltadals og boruðu í
kjölfarið nýja holu í landi Reykja
í Hjaltadal. Nýja holan skilaði
nægu vatni fyrir aukan byggð á
staðnum.
Rjúpnaveiðin
Veiðimenn fögnuðu margir
hverjir þegar tveggja ára
veiðibanni á rjúpu lauk þan 15.
oktbóer. Veiðin fór rólega af
stað en almennt voru menn á
Norðvesturlandi sammála um
að nóg væri af fúgli þetta árið.
Kvennafrídagur
Fjöldi kvenna lagði niður störf í
tilefúi 30 ára afmælis kvenna-
frídagsins 24. oktbóer. Konur á
öllum aldri komu saman og
fylktu liði. Körlunr var boðið að
slást í för og tóku sumir
áskoruninni.
Hjartakast í beinni
Símahrekkjusvín á FM 975
gengu svo hart að Skúla V.
Jónssyni, framkvæmdastjóra
knattspyrnudeildar Tindastóls,
að hann hné niður með
hjartaverk í beinni útsendingu.
Hrekkjusvínin báðu Skúla
afsökunar enda kom mikið á þá
þegar þeir áttuðu sig á alvarleika
málsins.
200 veðurtepptir
Urn 200 ferðalangar urðu að
gista í Vestur Húnavatssýslu í
aftaka norðanáhlaupi á 30. og
31. nóvember. Björgunarsveit-
armenn og lögregla höfðu í
nógu að snúast. Athygli vakti að
veðrið var mjög staðbundið og
þess vegna erfitt að spá fyrir um
það að sögn Veðurstofu.
Snjókoman í nóvember og
desember var ekki alslæm.
Skíðasvæðið í Tindastóli var líkt
og önnur skíðasvæði opnað í
nóvember og undir lok ársins
kornu af og til stylltir og bjartir
dagar milli umhleypinga.
Korn undirsnjó
Kornræktarráðunautur á Leið-
beiningamiðstöðinni á Sauðár-
króki staðfesti í nóvember að
korn væri óslegið á 10 bæjum í
héraðinu, samtals um 40 hekt-
arar. Þrátt fyrir ótíð tókst að
þreskja korn af 310 hekturum
af þeim 350 hekturum sem sáð
var til.
Geisladiskar
Karlakórinn Heimir gaf út
nýjan geisladisk með aðventu-
lögumviðupphafvetrarstarfsins.
Þá kom út hjá Skífúnni nýr
diskur með Óskari Péturssyni,
tenórsöngv'ara ffá Álftagerði í
Skagafirði.
Bækur
Aldinn höíðingi úr Vatnsdal,
Gísli Pálsson, bóndi á Hofi, gaf
út Atviksorð, ljóðmæli Her-
manns heitins Pálssonar. Þeir
voru bræður Gísli og Hermann
en Gísli hefúr gefið út fjölda
bóka.
Rokland, nýjasta skáldsaga
Hallgríms Helgasonar kom
formlega út á Sauðárkróki.
Krókurinn er sögusvið bók-
arinnar, aðalpersónan Böðvar
Steingrímsson kennari kemur
ekki kunnuglega fyrir sjónir en
ljóst að margar persónur úr
bæjarlífinu er fengnar að láni.
Þar á meðal Herra Hundfúll,
pistlahöfudur á skagafjordur.
com. Er vakin athygli á að hann
skrifi bæjarslúðrið og ffamkalli
jafnframt ljósmyndir fyrir
bæjarbúa. Skömmu eftir
útkomu bókarinnar hætti
umrædd ffamköllunarþjónusta
starfssemi.
Alcoa-Bachelorinn
Fulltrúar sveitarfélaga á
Norðurlandi fjölmenntu til
Kanada til fundar við ráðamenn
Alcoa samsteypurnnar sem
fyTÍrhugar byggingu álvers á
Norðurlandi. Ferðin var liður í
gagnasöfnun fyrir endanlega
ákvörðun um staðarval álvers.
Alcoa var í gríni uppnefnt
kanadíski bachelorinn.
11.000 volt
Það þykir með ólíkindum að
starfsmaður RARI Ká Blönduósi
skuli hafa náð sér að fullu eftir
að hann fékk í sig 11 þúsund
volta spennu er hann var við
starf við bæinn Finnstungu í
Blöndudal. Haut hann 2.-3.
stigs bruna á fæti en slapp að
öðru leyti ómeiddur.
Óhapp
Ekki fór jafn vel þegar
starfsmaður á Hólum í Hjalta-
dal brákaði hryggjarlið og
kjálkabrotnaði er hann féll af
hestbaki. Maðurinn gekkst
undir aðgerð á Landsspítalnum
sem tókst vel.
Byggðastofnun
Svört skýrsla birtist á vegurn
iðnaðarráðuneytisins um ffam-
tíðarstarfssemi Byggðastofn-
unar. Stjórn stofnunarinnar
mótmælti og sagði sumsstaðar
ekki byggt á réttum forsendum.
Iðnaðarráðherra lagði áherslu
á að ekki yrði dregið úr
starfssemi stofnunarinnar á
Sauðárrkóki.
Húnavatnshreppur
Kosið var til sveitarstjórnar í
sameinuðu sveitarfélagi í Austur
Húnavatssýslu í desember. I
leiðinni var kosið um nýtt nafn
á sveitarfélagið og valdi
meirihlutinn Húnavatnshrepp.
Það voru Bólstaðarhlíðar-
hreppur, Svínavatnshreppur,
Torfalækjarhreppur og Svein-
staðahreppur sem sameinuð-
ust.
Innheimtumiðstöð
Blönduósingar fögnuðu ákv-
örðun urn Innheimtumiðstöð
sektar- og sakarkostnaðar, sem
kynnt var að tæki til starfa í vor.
Áætlað er að 10-15 starfi við hið
nýja fyrirtæki.
Árið í heild
Mál manna var að um áramótin
hefði verið sett nýtt met í
sprengingum enda seldust
flugeldar upp í Skagafirði. í
heild sinni var árið viðburðaríkt
en flestir vonast eftir betri tíð á
nýju ári.
Samkvæmt netkönnun Skaga-
tjörður.comvareftirminnilegast
frá árinu "stríðsástandið í
sveitarstjórn Skagafjarðar", þar
á eftir komu föll Tindastól í
körfú og knattspyrnu en að auki
nefndu nokkuð margir
leiðinlegt veður og 100 afmæli
mótorhjólsins sem þótti takast
með eindæmum vel.
ÁG og ÓAB
Sauðárkrókur
LANDVINNSLA
BOLFISKVINNSLA : FLÖKUN : LAUSFRYSTING : PÖKKUN : ÞURRKUN
Framtíöaratvinna
FISK Seafood
landvinnsla á Sauöárkróki
getur bætt viö sig fólki í almenn
fiskvinnslustörf, um framtíöarstórf
er aö ræöa.
Upplýsingar gefur Tómas Árdal
á staðnum eða í síma 455-4411