Feykir - 17.01.2007, Blaðsíða 2
2 Feykir 03/2007
Lögreglan á Sauðárkróki
Aukið umferðareftirlit
Lögreglan á Sauðárkróki
hefur verið með stóraukið
umferðareftirlit frá því um
áramót.
Einn bíll hefur verið á
ferðinni og til þess að byrja
með einbeitir hann sér að
óskoðuðum og ótryggðum
bílum auk hefðbundins eftir-
lits. Strangt er tekið á notkun
öryggisbelta og fylgst með
farsímanotkun ökumanna.
Búið er að sekta nokkra
fyrir að aka unr á óskoðuðum
eða ótryggðunr ökutækjum.
Einn maður sinnir þessu
eftirliti eins og er og er hann
með myndavél í bílnum sér til
stuðnings og hefur því einnig
verið tekið á hraðakstri.
Gert er ráð fyrir, með
hækkandi sól, að fjölga
lögreglumönnum í unrferðar-
eftirliti upp í tvo.
Leiðari
í minningu góðrar stúlku
Árið 2006 verður lengi í minnum haftsökum allra þeirra
hræðilegu bílslysa sem dundu á þjóðinni. Sjálfhef ég of oft
grátið vini og ættingja sem horfið hafa alltof fljótt.Þessi
vika er mér sérstaklega erfið þvíJyrir ári síðan lést vinkona
okkarjjölskyldunnar, dóttir vina okkar, aðeins tæplega 18
ára. Hún Þórey okkar var hvers manns hugljúfi, vinsæll
þjálfari, vinurvina sinna, engill í mannsmynd. Hún var
líka stúlkan semfór svo hægt og hljótt, stúlkan sem þorði
ekki að keyra hratt. Stúlkan sem í hálku og við erfiðar
aðstæður missti augnablik stjórn á bílnum. Dýrkeypt
augnablik og allt í einu varð allt svart. Samfélagið í sorg og
ungmenni okkar litla bæjar áttu um sárt að binda. Það var
erfiðara en hægt er að lýsa að horfa framan í litlu dóttur
okkar og segja henni aðfyrirmyndin hennar værifarin.
Ég vona að ég þurfi aldrei aftur að upplifa svona dag. Ég
vona að hún Þórey okkar hafi ekkifarið til einskis og að
ótímabært andlát hennar verði okkur hinum vakning.
Lögreglan á Sauðárkróki hefur stóraukið umferðareftirlit
og erþað vel. Lögreglan á Blönduósi er tilfyrirmyndar
hvað umferðareftirlit varðar en meira þarf til. Viðþurfum
öll að taka okkur á. Liggur okkur svona á? Sendum
ungmennin okkar ekki ein afstað við aðstæður sem þeim
eru ef til vill ofviða. Lifum hvern dag i sátt við okkur sjálf
og umhverfi okkar. Minnug þess að á morgun gætiþað
verið ofseint.
Umferðin hefur tekið ofmörg líf ofmörg tár hafa fallið,
sorgin bankað uppá á ofmörgum heimilum.
Hægjum á okkur, ökum varlega. Tökum höndum saman
ogfækkum slysum. Látum árið 2006 aldrei endurtaka sig.
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent. is
8982597
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Útgefandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt I Sauðérkróki
Póstfang Feykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Blaðstjórn:
Árni Gunnarsson,
Áskell Heiðar Ásgeirsson,
Herdís Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og
Páll Dagbjartsson.
Ritstjóri &
ábyrgðarmaður:
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
Simi 455 7176
Blaðamenn:
ÓliArnar Brynjarsson
feykir@krokur.is
Örn Þórarinsson
Prófarkalestur:
Karl Jónsson
Áskriftarverð:
295 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
350 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ehf.
Sími 455 7171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Stórbætt aðstaða fyrir ferðamenn á Hveravöllum
Fyrirhuguð er bygging
hálendismiðstöðvar
Björn Þór Kristjánsson framkvæmdastjóri Hveravalla-
félagsins, sem rekur ferðaþjónustuna á Hveravöllum,
er formaður teymis sem komið hefur verið á laggirnar
og á að fjalla um framtíðarþróun og uppbyggingu á
Hveravallasvæðinu.
Auk Björns Þórs eru í
teyminu Jón Gíslason fyrir
Húnavatnshrepp, Björn
Magnússon formaður stjórnar
Hveravallafélagsins, Valur Þór
Hilmarsson Ferðamálastofu
fyrir hönd Samgönguráðu-
neytis, Trausti Baldursson
Umhverfisstofhun og Einar
Bollason og Þorleit'ur Þór
Jónsson fyrir Samtök
Ferðaþjónustunnar. I teyminu
starfar einnig Haukur Suska-
Garðarsson ásamt öðrum
atvinnráðgjöfum SSNV
Atvinnuþróunar.
Björn Þór segir mikla aukn-
ingu ferðamanna á Hvera-
völlum frá ári til árs í kjölfar
fjölgun ferðamanna til íslands
og betri samgangna um
Kjalveg. Því sé nauðsynlegt að
auka þjónustu við gesti og
standa þannig að málum að
umhverfið hljóti ekki skaða af
aukinni umferð. Gestir á
Hveravöllum sumarið 2007
voru um 47.000 talsins.
Á Hveravöllum er boðið
upp á gistingu í tveimur
skálum. Ráðgert er að byggja
hálendismiðstöð þar sem m.a.
verður veitingaaðstaða fyrir
dagsgesti og þá sem eru í
gistingu. Einnigeru hugmyndir
um gestastofu í húsinu sem
gerirgreinfyrirumhverfisvernd,
náttúru og sögu Hveravalla. -
Hvergi er betra að koma til
skila boðskap urn
umhverfisvernd á hálendinu,
en á svæðinu sjálfu, segir Björn
Þór. Hönnun hálendismið-
stöðvar gerir í framhaldi ráð
fyrir auknu gistirými til að
nrögulegt sé að anna eftirspurn
og mæta kröfurn
viðskiptavina.
Undanfarin ár hefur ekki verið
landvarsla á Hveravöllum á
vegum hins opinbera. Vonir
standa til þess að úr því verði
bætt nú, því þörfin hefur aldrei
verið meiri.
Ópera Skagafjarðar ræðst í stórvirki
Ætla að sýna La Traviata
30 meölimir óperukórsins
æfa nú af krafti ítölsku
óperuna La Traviata en
ætlunin er aó frumsýna
verkið á Sæluvikunni i vor.
Búið er að manna flest
hlutverk nema hvað eftir á að
finna söngvara í tvö hlutverk.
Að öðru leyti eru aðalhlutverk
í höndunt Alexöndru Cherny-
shovu, Ara Jóhanns Sigurðs-
sonar, Þórhalls Þórðarsonar,
Sigurðar Skagfjörð, írisar
Baldvinsdóttur og Sigríðar M
Ingimarsdóttur.
Að öllum líkindum verður
verkið sett upp í íþróttahúsinu
á Sauðárkróki og stefnir
hópurinn á að sýna verkið
tvisvar sinnurn.
Alexandra hefur faglega
urnsjón með verkefninu enda
hugmyndin hennar. Hún fékk
eiginmann sinn, Jón Hilntars-
son, til þess að hafa yfirumsjón
yfir allri annarri frantkvæmd.
- það má því segja að hér sé
urn fjölskylduverkefni að ræða
en flest kvöld fara í það þessa
dagana, segir Alexandra.
Kórinn æfir tvisvar í viku og
einsöngv'arar einu sinni og segir
Alexandra að æfingar gangi vel
þó auðvitað sé unt kreijandi
verkefni að ræða fyrir flesta þar
sem verkið sé á Itölsku.
molar
Blönduós
Sýslumaðurinn á Blönduósi
óskaði á dögunum eftir umsögn
bæjarráðs um leyfi samkvæmt
lögum um veitinga- og gististaði.
Þar sótti Kári Kárason fyrir
hönd Knattspyrnudeildar
Hvatar um leyfi til jbess að reka
veitingastofu, greiðasölu og
félagsheimili að Húnabraut
6. Var erindið samþykkt og
byggingafulltrúa falið að ganga
frá svari.
Þá var tekið fyrir erindi frá
Hirti Karli Einarssyni sem
sótti fyrir hönd 2 Átta ehf,
um framkvæmdaleyfí vegna
fjölskyldu- skemmti-, og
afþreyingargarðs. Lagt var til að
framkvæmdaleyfi verði veitt í
samræmi við tillögu skipulags- og
byggingarfulltrúa.
Sýsiumaðurinn á Blönduósi
óskaði á dögunum eftir umsögn
bæjarráðs um leyfi samkvæmt
lögum um veitinga- og gististaði.
Þarsótti Kári Kárason fyrirhönd
Knattspyrnudeildar Hvatar um
leyfi til þess að reka veitingastofu,
greiðasölu og félagsheimili
að Húnabraut 6. Varerindið
samþykktog byggingafulltrúa
falið að ganga frá svari.
Þá var tekið fyrir erindi frá
Hirti Karli Einarssyni sem
sótti fyrir hönd 2 Átta ehf,
um framkvæmdaleyfi vegna
fjölskyldu- skemmti-, og
afþreyingargarðs. Lagtvartil að
framkvæmdaleyfi verði veitt í
samræmi við tillögu skipulags- og
byggingarfulltrúa.
Skagafjörður
Á fundi byggðarráðs Skagafjarðar
var lagt fram bréf frá stjóm Umf.
Neista á Hofsósi, dagsett3.
janúar 200 7, þar sem skýrt er frá
fyrirhugaðri sölu á fasteigninni
Túngötu 4 á Hofsósi. Sveitafélagið
á forkaupsrétt á fasteigninni og
samþykkti Byggðarráð að nýta
ekki þann rétt.
Á sama fundi varlagt fram bréffrá
Ferðaþjónustunni Steinsstöðum,
dagsett 7. janúar2007, þar
sem gert er tilboð í fasteignir
sveitarfélagsins nr. 3, 5, og 7 við
Lækjarbakka í Steinstaðahverfi.
Á fundi stjórnar Sambands
íslenskra sveitarfélaga í desember
var Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir,
forseti sveitarstjórnar
Sveitarfélagsins Skagafjarðar
tiinefnd sem aðalmaður í stjóm
Bjargráðasjóðs ásamt Vilhjálmi
Þ. Vilhjálmsyni borgarstjóra í
Reykjavík.