Feykir


Feykir - 17.01.2007, Síða 6

Feykir - 17.01.2007, Síða 6
6 Feykir 03/2007 Deilur hafa risió í Skagafirði um framtíð skóianna út að austan Titringur í skólamálum í Skagafirði Skólamál í Skagafirði hafa verið í umræðunni og sitt sýnist hverjum í þeim efnum. Meirihlutinn leggur til samdrátt og vill með því spara allt að 30 milljónir á ársgrundvelli. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks koma fram með málamiðlunartillögu sem kemur að því að finna lausn en spara um leið einhverja peninga. Gísli Árnason tekur ekki undir þá tillögu félaga sinna í minnihluta og situr hjá við afgreiðslu á tillögunni. Gísli sem er fulltrúi Vinstri Grænna vill enga breytingu. Feykir skoðaði málið frá öllum hliðum. Efst er Grunnskólinn Hofsósi, síðan kemur Sólgarðaskóli og neðst gefur að líta Grunnskólann Hólum. Allt byrjaði þetta á fundi á Hólum þann 12. des er tillögur meirihluta voru kynntar fyrir foreldrum þar. Aftur var síðan haldinn fundur þann 18. des en þar voru tillögur meirihluta kynntar fyrir foreldrum á Hofsósi og í Sólgarðaskóla. Tillögur meirihluta eru eftirfarandi: Staðsetning skólastjóra verði á Hofsósi eða Hólum en deildarstjórar verði á hinum tveimur stöðunum. Nemendur 1.-4. bekkjar konri til með að sækja skóla á Hólum og á Sólgörðum en nemendur 5. - 10. bekkjar verði staðsettir á Hofsósi. I skólunum þrentur eru í dag samtals um 80 nemendur en með hinunt fyrirhuguðu breytingum verður hægt að draga verulega úr samkennslu. Töluðu fúlltrúar meirihluta um að ekki væri um niðurskurð sé að ræða heldur hagræðingu á nýtingu fjármuna. Mikil fólksfjölgun hafi orðið á Hólum í tengslum við Háskólann á Hólum og er því húsnæði það sem í dag hýsir leik- og grunnskóla á svæðinu sprungið utan af sér. Gert væri ráð fyrir að leikskólinn á Hólum yrði stækkaður þannig að hann tæki urn 35 - 40 börn í vistun og að nýting skólahúsnæðisins á Hofsósi yrði betri en áður. Ekki voru foreldrar á eitt sáttir með þessa tillögu og nrættu með ályktun á fundinn. Þarna var unr að ræða foreldra barna í Sólgarðaskóla og skrifuðu allir foreldrar undir. Þá var rnikil óánægja á Hofsósi og þar var, líkt og hjá foreldrum í Fljótum, talað um aðför að byggðarlaginu og vaxtarmögu- leikum þess. Málið i hnút Ljóst var að málið var komið í hnút og deila í uppsiglingu. Að því tilefni sendu oddvitar flokkanna sem skipa meiri- hlutann þau Gunnar Bragi Sveinsson f.h. Framsóknar- flokks og Gréta Sjöfn Guð- mundsdóttir f.h. Samfylkingar, ffá sér ályktun þann 22. des. Þar kom fram að meiri- hlutinn harmaði þá villandi umræðu sem verið hefði um skólamál í sveitarfélaginu. Kom frarn að tillögur þær senr fyrir lægju hefðu verið kynntar á vinnufúndi nreð öllum sveit- arstjórnarfulltrúum og vara- mönnum á frumstigi, en sá fundur var sá fyrri af tveim fyrirhuguðum þar sem ræða skyldi fjárhagsáætlun í hópi allra sem aðild eiga að sveitarstjórn áður en gengið yrði frá tillögu til samþykktar. Það væri nýmæli að minnihlutanum í sveitar- stjórn skyldi boðið í slíka vinnu. Þessar tillögur heföu verið kynntar og hefðu íbúar fengið tækifæri til þess að koma sínum skoðunum milliliðalaust á ffamfæri við nefndina og sveitarstjóra. Framhaldið yrði síðan að unnið yrði úr þessum tillögum í samstarfi við stjórnendur, starfsfólk og fúll- trúa foreldra. í hnotskurn Meirihluti sveitarstjómar kemur fram með byltingarkenndar tillögur um skólamál í Skagafirði. Tillögur sem lúta að því að spara 30 milljónir á ári. 12. og 18 des. Tillögurnar eru kynntar foreldrum og starfsfólki skólanna. Gert er ráð fýrir mikilli hagræðingu sem felur í sér færra starfsfólk og á endanum færri skóla. 18. des. Foreldrar barna við Sólgarðaskóla mótmæla kröftuglega og allir skrifa þeir undir ályktun þess efnis að um aðför að byggðu bóli í Fljótum sé að ræða. 22. des. Oddvitar meirihluta- flokkanna, senda frá sér ályktun þarsem þeir harma þá umræðu sem orðin er og gefa fyrirheit um að vinna málið í samráði við foreldra ogstarfsfólk. 11. janúar. Sjálfstæðismenn koma fram með málamiðlunar- tillögu. Tillögu sem gerir ráð fyrir að spara pening án þess að raska skólastarfi skólanna þriggja eins mikið og áður hafði verið kveðíð á um. 11. janúar. Gísli Ámason, Vinstri Grænum, tekur undir með foreldrum og óskar þess að engar breytingar verði gerðar á skólahaldi skólanna þrig^a. 11. janúar. SigurðarÁrnason, Framskóknarflokki, fagnar tillögu Sjálfstæðismanna og leggur til að tillögunum verði vísað til Tillaga Sjálfstæðisflokks Jól og áramót liðu og eðli málsins samkvæmt gerðist ekkert í rnálinu. Ekki fyrr en á 1. fúndi sveitarstjórnar á nýju ári þar sem Sjálfstæðismenn lögðu frarn tillögur í þessu umdeilda máli. Bjarni Egilsson bar tillöguna upp og óskaði eftir að eftirfaranditillögum að skipulagi skólamála út að austan til næstu þriggja ára yrði beint til fræðslunefndar. 1. Kennsla yngri nemenda, 1. til 6. bekk, verði á Hólurn, Hofsósi og í Sólgörðum. 2. Kennsla eldri nemenda, 7. til 10. bekk, verði á Hofsósi. 3. Gerð verði krafa til skóla- stjóra að starfsmannahald verði vel rökstutt og innan eðlilegra marka miðað við íjölda nemenda. 4. Skoðað verði hvort breyt- ing á yfirstjórn, þannig að einn skólastjóri verði yfir öllum skólunum út að austan, auðveldi faglegt samstarf milli þeirra, sveigjanleika í skólastarfinu og leiði til fjárhagslegrar hagræð- ingar. 5. Haft verði samráð við foreldra og starfsmenn um tillögur þessar með það að markmiði að ná ásættanlegri niðurstöðu sem uppfyllir faglegar kröfur og skilar fjárhagslegri hagræðingu. Greinargerð fylgdi tillög- unni þar sem frarn kom að foreldrar út að austan teldu það grundvallarskilyrði búsetu á þessum svæðum að hafa á staðnum kennslu fyrir yngstu börnin. Félagsleg og fagleg rök hnígi hins vegar að því að æskilegt sé að hefja samkennslu barna af svæðinu frá 7. bekk, enda mun sú breyting ekki fela í sér aukinn kostnað við skólaakstur. Miðað við fyrirsjáanlegan nemendaljölda má ætla að þessi leið sé raunhæf a.m.k. næstu 3 árin. Gísli Árnason, fúlltrúi Vinstri grænnna, lagði fram bókun þar sem ffarn kemur að í dreifðum byggðum séu skól- arnir festa hvers byggðarlags. Sagðist Gísli vera sammála foreldrum og varaði við því að minnka einingar enn frekar enda væru skólarnir mikilvægur þáttur í atvdnnustarfsemi svæð- anna. Gísli sagði að þar sem byggð ætti i vök að verjast væru endurteknar hugmyndir um niðurskurð á skólastarfsemi ekki til þess fallnar að efla byggðina á viðkomandi svæðum. Þá sagðist hann hafa efasemdir um fjárhagslega og faglega hagkvæmni þess að einn skólastjóri verði yfir skólunum út að austan. Gísli fúrðaði sig á að þrátt fyrir ályktanir íbúa, kveði tillaga fulltrúa Sjálfstæðis- flokks í Sveitarstjórn Skagafjarð- ar á um skerðingu á skólastarfi á Sólgörðum og Hólum. Hann hefði því tekið þá ákvörðun að sitja hjá við afgreiðslu tillögu þeirra. SigurðurÁrnason, formaður fræðslunefirdar, fagnaði tillögu Sjálfstæðismanna en bætti því við að betra hefði verið að fá hana á fyrri stigurn málsins. Lagði Sigurður til að tillagan yrði send til ffæðslunefndar til skoðunar. Var tillaga Sigurðar samþykkt með 8 atkvæðum en Gísli Árnason, Vinstri grænum, óskaði að fá bókað að hann sæti hjá við afgreiðslu málsins. Af þessu má sjá að málið hefur farið í hring en góðu fréttirnar eru þær að málið verður rætt áfrarn og virðast bæði meirihlutinn og sjálf- stæðismenn vera sammála um að skoða málið ffekar og reyna að ná sáttum áður en málið verði endanlega atgreitt. Feykir mun halda áfram að fylgjast með framvindu mála. GJ

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.