Feykir


Feykir - 16.05.2007, Side 1

Feykir - 16.05.2007, Side 1
Láttu ekki vandræðin verða til vandræða Ibúðalánasjóður www.ils.is N 1 Arbær opnar að nýju innan skamms og eru iðnaðarmenn í óða önn við að Ijúka endurbótum á húsnæðinu. A myndinni eru Þröstur Jónsson, stöðvarstjóri Nl. Guðmundur Svavarsson og Einar Guðmannasson, yfirsmiður, en þeir eru báir frá Trésmiðjunni Ýr. Síðari umræða um ársreikning Svf Skagafjardar ogstofnana fyrir árið 2006 Sigurjón Þórðarson liggur undir feldi Hefur ekki tekið neina ákvörðun Sigurjón Þórðarson hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort hann snúi aftur í starf sitt sem framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norður- lands vestra. Sigurjón var í tímabundnu leyfi frá starfi sínu en honum býðst einnig að taka við starfi framkvæmdastjóraþingflokks Frjálslynda flokksins. -Ég hef ekki tekið ákvörðun um það hvar ég geri en mig langar í hvoru tveggja. Snúi ég aftur norður þýðir það líka að ég mun draga mig út úr stjórnmálum en mig langar til þess að halda áfram baráttu minni gegn vitleysiskvótakerfi núverandi stjórnvalda. Ég mun því skoða mín mál í rólegheitunum. Ég er að fara til Skotlands í boði breskra sjómanna sem hafa áhuga á að heyra um kerfið hér og okkar hugmyndir til bóta. Sjálfur er ég sannfærður um að með óbreyttum hætti mun Grímsey fara í eyða innan fárra ára og ég sé enga ástæðu til annars en að ætla að þetta kerfi haldi áfram að valda byggðum landsins skaða, segir Sigurjón Þórðarson. Allir vildu Lilju kveðið hafa Niourstoour rekstrarreiknmgs arsins 2006 voru iagóar fyrir síðari umræðu sveitarstjórnar sveitarfélagsins Skaga- fjarðar í síðustu viku. Eins og áður hefur komið fram eru niðurstöður reikningsins jákvæðari en áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Á fundinum kom í ljós að hin jákvæða niðurstaða er öllum stjórnmálaflokkum í firðinum að þakka. Alla vega mátti lesa þessa niðurstöðu úr bókunum fulltrúa meiri- og minnihluta sveitarstjórnar. Páll Dagbjartsson, fulltrúi sjálfstæðismanna kvaddis sér fyrstur hljóðs og lagði fram bókun þar sem fram kemur að niðurstaða ársreiknings Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árið 2006 staðfesti ábyrga fjármálastjórn meirihluta Sjálfstæðisflokks og VG á síðasta kjörtímabili. Á því kjörtímabili hafi verið lagður grunnur að því að snúa viðvarandi rekstrarhalla sveitarsjóðs í hagnað þegar á árinu 2008 og skapa þannig fjárhagslegt svigrúm til ffamkvæmda. Nú reyni á meirihluta Framsóknar og Samfylkingar að viðhalda þeim árangri sem náðst hefur og stuðla að hallalausum rekstri sveitarsjóðs strax á næsta ári. Þá var komið að Gunnari Braga Sveinssyni sem lagði ffarn bókun meirihlutans. Þar kom ffam að ársreikningur fýrir árið 2006 sé fyrsti ársreikningur nýrrar sveitarstjórnar og byggir því eðlilega á fjárhagsáætlun fýrri sveitarstjórnar. í veigamiklum atriðum hafi sú áætlun ekki gengið effir, nægi þar að nefna að gert var ráð fýrir um 100 milljón króna skuldalækkun en niðurstaðan varð skuldahækkun upp á tæpar 200 milljónir kr. Gunnar Bragi sagði jafnffamt - Framundan er áffamhaldandi vinna með starfsmönnum sveitarfélagsins að því verkefni að ná enn betri tökum á rekstrinum. Síðastur til máls tók Gísli Árnason VG. Hann sagði að ársreikningurinn undirstrikaði hversu frámunalega vill- andi ffamsetning og túlkun árshlutareiknings sveitarfél- agsins hafi verið síðastliðið sumar. Þar hafi verið boðaður 213 milljón króna halli á rekstri sveitarfélagsins. Sá pólitíski blekkingarleikur hafi nú verið afhjúpaður. Að þessari orrahlíð lokinni samþykktu allir fulltrúar sveitarstjórnar ársreikninginn sem þeir báru jú að þessu sinni allir ábyrgð á. Ársreikningur Höfðahrepps jákvæður Besta niðurstaða í sögu sveitarféiagsins Hreppsnefnd Höfðahrepps samþykkti ársreikning sveitarfélagsins á fundi sínum 9. maí sl. Rekstrarniðurstaða samstæðu ársreikningsins sýnir 67,2 milljóna króna jákvæða niðurstöðu en það er 28,5 milljónum króna betri niðurstaða en endurskoðuð fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Rekstrartekjur samstæðu námu tæpum 350 milljónum króna og höfðu aukist um 17% milli ára. Skatttekjur sveitarsjóðs að meðtöldu ffamlagi jöfnunarsjóðs námu 240,9 milljónum og höfðu aukist urn tæp 22% frá fýrra ári. Rekstrargjöld samstæðunnar námu 325 milljónum og höfðu lækkað lítillega ffá fýrra ári. Handbært fé jókst um 83,8 milljónir milli ára eða um 14%. Skuldir og skuldbindingar námu 415,8 milljónum en þar af námu langtímaskuldir sveitarsjóðs 56,8 milljónum og lífeyrisskuldbindingar 71,8 milljónum. Þessi niðurstaða ársreiknings er ein sú besta í sögu sveitarfélagsins en fjármagnstekjur hafa afgerandi áhrif á afkomuna. VIÐ BÓNUM 0G RÆSTUM! Daglegar ræstingar og reglubundið viðhald á bóni í fyrirtækjum og stofnunum Hringdu núna eða sendu tölvupóst Sími: 893 3979 * Netfang: siffo@hive.is —CTengill eh|3— Bílaviðgerðir hjólbarðaviðqerðir

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.