Feykir - 16.05.2007, Qupperneq 9
19/2007 Feykir 9
Sóknarnefnd Ketukirkju
Ráðist í enduh
bætur á gömlu
kiikjunni í Ketu
Ketukirkja á Skaga var vígó árió 1896, en
kirkjan sem tilheyrir Sauðárkróksprestakalli, var
farin að láta verulega á sjá. Feykir, sem ætlar
að fylgjast með uppbyggingu kirkjunnar, hitti
þau tvö úr sóknarnefndinni Valgeir Karlsson,
Víkum, og Merete Rabolle og fékk að vita allt um
fyrirhugaðar framkvæmdir.
Ketukirkja á sér mjög langa
sögu en önnur klukkan í
kirkjunni er merkt ártalinu
1733. Ketukirkju var fyrst getið
í heimildum árið 1318 en
þegar núverandi kirkja var
tekin í notkun voru nokkur ár
frá því að eldri kirkja var dærnd
ónothæf (1889) eftir að hafa
nánast fokið. Var hún rifm og
eitthvað af timbri úr henni
notað í þá nýju. Predikun-
arstólinn í kirkjunni kemur úr
þeirri kirkju en við viturn ekki
nánari sögu hans, segir Valgeir
en það var einmitt afi hans,
Árni Antonías Guðmundsson,
sem reisti kirkjuna að Ketu.
-Þetta var 1. húsið sem
hann byggði eftir að hann kom
heim úr trésmíðanámi í
Reykjavik. Hann reyndar sótti
aldrei meistarabréfið sitt því
hann fór skyndilega norður
þar sent faðir hans lá bana-
leguna, bætir Valgeir við.
Kirkjan er
sóknarbörnunum
kær
Víknaættin er ein elsta ættin á
Skaga en hún hefur búið á
Víkum í yfir 400 ár. Eins og
fram hefur kontið þá reisti afi
Valgeirs kirkjuna en faðir
hans, Karl Árnason, kom síðar
að því að skipta um glugga í
kirkjunni á sjötta áratugnum.
Á sarna tíma var kirkjan
lagfærð og máluð. í kringum
1980 var hún síðan orðin fúin
og ljót og var þá hafist handa
við að klæða kirkjuna en það
var aldrei klárað að ganga frá
því.
Sökurn þess hve gömul
kirkjan er skapaðist pressa frá
Húsfriðunarnefnd um að
eitthvað yrði gert í því að gera
húsið upp og þar sem litla
kirkjan í Ketu er sóknabörnum
sínum kær og þá ekki síður
þeint sem brottfluttir eru var
ráðist í það ntikla verkefni að
endurbyggja kirkjuna í sinni
upprunalegu nrynd.
-Vegna þess hve allt efni
varafskornum skammtiþegar
verið var að byggja kirkjuna á
sínum tíma er lag hennar um
margt óvenjulegt. Hún er
mjög há miðað við breidd og
nteð þetta sérstæða klukkna-
port sem við erurn nú að
endurreisa. Við höfum fengið
til liðs við okkur kirkjusmið
frá Bolungarvík, Guðmund
Óla Kristinsson, og ég fylltist
aukinni bjartsýni nú þegar
hann hefur komið einu sinni
og hefur lokið við að klæða
framgafl kirkjunnar. Áður
vorurn við húin að skipta um
járn á þaki kirkjunnar auk
þess sent við erum í viðræðum
við kirkjumálara um að taka
að sér að ntála kirkjuna að
innan, segir Merete.
-Sóknin er ekki stór við
erum 19 í sókninni þar af 12
gjaldendur og því eigum við
ekki mikla peninga en hér
hjálpast þó allir að. Jarðeig-
endur hafa gefið rekavið í
klæðinguna auk þess að gefa
vinnuna við að saga hann til.
Þá hafa einstaklingar verið lagt
endurbótunum lið með
rausnarlegum peningafram-
lögum. Verið er að vefa
altarisklæði úti í Danmörku
en það verður gjöf frá Bent
Scheving Thorsteinsson, sem
ættaður er frá Hrauni.
Eeykir mun halda áfram að
fylgjast með endurbótunum
og lofa þau Merete og Valgeir
að senda nýjar myndir þegar
eitthvað gerist.
Þeim sent vilja leggja þeim
lið við endurbyggingu
kirkjunnar er bent á
söfnunarsjóð sóknarinnar.
310 - 13- 12383 kennitala:
690169-2749.
*
Merete og Valgeirvið altarið i Ketukirkju. Altaristaflan er eftir Jóhann Briemog vargefin kirkjunni árið IS64.
Predikunarstólinn kemur úr enn eldri kirkju sem áður stóð i
Ketukirkjugarði.
Önnur kirkjuklukkan erfrá árinu 1733, ekki er ártal á hinni.
Búið er að klæða framgafl kirkjunnar en eins og sjá má er klukknaport hennar afar fallegt.
smáauglýsingar.
Móðuhreinsun
milli glerja
Tveir páfagaukar til sölu. Annar um
Ódýr, einföld og varanleg lausn.
Verd á ferðinni frá 25-28 maí.
Upplýsingar veitir Magnús Már i
síma 899-4665.
Ódýr 6 m plastbátur
Tilsölu 6 m trefjaplastbátur.
Verð ca. 50 þús.
Upplýsingar á karig4@simnet.is
Get sent áhugasömum mynd.
Kári Gunnarsson
Sendið smáauglýsingar til birtingar á feykir@nyprent.is