Feykir - 16.05.2007, Síða 11
19/2007 Feyklr 11
Eva og Svavar í eldhúsinu
Lasagne a la Eva
Eva Jóhanna Óskarsdóttir, starfsmaöur íbúðalánasjóðs og
Svavar Sigurósson, ostameistari og meindýraeyðir með
meiru bera á borð uppskriftir vikunnar að þessu sinni. Þau
Eva og Svavar skora á Steinunni Arndísi og Jóa Færeying að
koma með eitthvað færeyskt að hálfum mánuði liðnum.
Blaðlaukssúpa með
rjómaosti
Eintt blaðlaukur
25 g smjör eða smjörlíki
2 msk hveiti
1 lítri vatn með 5-6 uppleystum
súputeningum í, þessum með
nautinu.
100 grjómaostur
1 -2 dl mjólk eða rjómi
Salt og nýmalaður pipar
Byrjum á að búa tii uppbakning
úr smjöri og hveiti og setjum svo
vatnið í. Látum þetta sjóða í smá
stund, setjum þá rjómaostinn út í
oglátumhannbráðna. Kryddum
og blaðlaukurinn í sneiðum
settur út í. Það má ekki sjóða
lengi eftir að hann er kominn í.
Voila-allt tilbúið. Mjög þægilegt
ef margir eru í mat og gott að
hafa smábrauð með.
Lasagne a la Eva
Við búum til flest okkar pasta
sjálf svo að sjálfsögðu byrjar
uppskriftin þar.
3egg
300 ghveiti (eða durum ef maður
leyfir sér)
2 msk olía
Örlítið vatn ef deigið er þurrt
1 tsksalt
Hrært vel saman í hrærivél og
við setjum það í þar til gerðar
pastavél en eflaust er hægt að
fletja það út með kökukefli. Svo
er alltaf hægt að kaupa það bara
úti í búð.
Inn í þetta viljum við setja margt
og mikið.
Hakk steikt á pönnu, 2 dósir
tómatar, gjarnan eina með
einhverjum auka kryddjurtum,
tómatsósa svona um Vi-1 dl. Fullt
af ítölsku kryddi, basil.oregan og
auðvitað hvítlauk og lauk. Þetta
er grunnurinn, svo höfum við
þetta yfirleitt þrí skipt vegna
mismunandi áhuga fólks innan
heimilis á grænmeti. f einn
hlutann setjum við zukkini,
sveppi, paprikur, maís, gulrætur
og sætar kartöflur, allt eða í minna
mæli eftir ástandi kæliskápsins.
Hinn hlutinn er svo bara mest
með kjötinu.
Ostasósan er ekki erfið, bara
byrja eins og maður gerir jafning,
smjör og hveiti í potti og bakað
upp. Mjólk sett í og svo einhver
smurostur, beikon eða papriku
er mest notaður hér. Þetta er
svo látið smá malla þangað til allt
er bráðið. Þá setjum við örlítið
múskat út í, bara á “hnífsoddi”
eins og það hét í gamladaga.
Síðan er þetta sett eins og
Lasagne á að vera, í lögum í
eldfast mót, ostur ofan á og inn
í ofninn. Ef þetta á að vera súper
grand, er gott að setja steikt
beikon í bitum í efstu lögin eða
bara með kjötinu.
Gerlaust naan brauð
6 stk
8 dl hveiti
1 tsklyftiduft
3á tsk salt
2 msk olía
1 Vz dl hreinjógúrt
1 egg
1 V2 dl mjólk
Olía til þess að pensla brauðið að
utan
Blandið saman hveiti, lyftidufti
og salti. Þeytið saman olíu,
egg og jógúrt. Blandið saman
við hveitiblöndu og mjólk.
Setjið deigið í skál og látið
standa og jafna sig i um það
bil klukkustund. Stillið ofninn
á 220 gráður, Hnoðið deigið,
rúllið í aflanga rúllu og skerið í 6
bita. Formið hringlaga kökur úr
deiginu, u.þ.b. 25 x 15 cm. Setjið
á bökunarplötu og bakið þar til
kakan hefur tekið lit, tekur um
það bil fimm mínútur. Penslið
brauðið með olíu þegar það
kemur úr ofninum og vefjið inn
í viskustykki.
Verði ykkur að góðu!
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON )
Vísnaþáttur 452
Heilir og sælir lesendur góðir.
f síðasta þætti spurði ég um vísu sem
mig minnti að væri ættuð frá Gilsbakka.
Hef nú fengið ágætar upplýsingar þar
um, sem ég þakka fýrir. Ekki var hún
rétt með farin og kemur hér leiðrétting
þar á. Höfundur er Hjörleifur Jónsson
á Gilsbakka.
Um mig leikur andi hlýr
eftir daginn liðinn,
atttafþegar að þér snýr
á mér veika hliðin.
Gaman að rifja upp fleiri vísur eftir
þennan snjalla hagyrðing
Áðurgekk éggrónajörð
gleymdi að telja sporin
þar sem lítil lambaspörð
lágu dreifð á vorin.
Grunur leikur á að það hafi verið á
bölvuðum bannárunum sem Hjörleifur
kom til nágranna síns og orti svo, eftir
að hafa litið í kringum sig þar inni.
Á veginum hála égvarpaði önd
þar vágestir nálega sungu.
Það lífgaði sálina og leysti af mér bönd
að líta inní skálann í Tungu.
Ein falleg í viðbót eftir Hjörleif..
Vekur yndi ýtum hjá
öllu hrindir táli.
Lífsins tnyndir Ijósar þá
Ijóða bindast máli.
Er þessi þáttur er í smíðum, er þetta
hefðbundna maíveður, norðan stormur
og frost um nætur og dag eftir dag
hótar veðurstofan slyddu eða hríð hér á
norðurlandi. Samt þrá allir að vita meira
um vorið og upplifa tíma sem Bjarni frá
Gröf orti svo fallega um.
Er vorið kemur verðurgaman
það veitir lífi nýjan þrótt.
Og dagar halda höndutn satnatt
í hrittgdansi um tttiðja nótt.
Á daufari degi mun Bjarni hafa ort
þessa:
Hvað tttittn hagur autttur er
engar laga bætur.
Alla daga yfir tnér
œvisagan grœtur.
Kannske hefur það verið í svipuðu
maíveðri og nú ríkir, sem Bjarni orti
þessa:
Nú utn landið ttæðir hér
ttorðan andintt harði.
Það máfjandinnfyrir mér
fara að Brandaskarði.
Er slæm flensa herjaði, orti Bjarni.
Það er svo ósköp af mér dregið;
ég œtti að vera á hœlinu.
Og aldrei hef ég áður legið
ófullur í bœlinu.
Að lokunt þessi ágæta vísa frá Bjarna.
Þó að lífið þyki kalt
þrjóti vittafuttdir.
Hlýja tnattni eftir allt
ýtnsar gleðistundir.
Það mun hafa verið 5. apríl 2004, sem
Kristján í Gilhaga orti svo, eftir að hafa
séð til ferða skagfirskra hestamanna:
Allt í eittu burt er veðurbltða
Bylji rekuryfir storma og hríða.
Utivist ergóð
þófennafari í slóð.
En þetta erttú varla veður til að ríða.
Þrettánda apríl 2004 verður þessi til hjá
Kristjáni.
Oft uttt hin fomu gildi ergetið
oggagtt til þeirra sótt.
Yfir stettdur nú Hrafnahretið
Því hrafninn verpti í nótt.
Eitt sinn er Kristján var beðinn að yrkja
á boðskort vegna giftingar, varð þetta
ta.
Breytittgutn háð erhémaflest
hlýða skalgóðum ráðuttt.
Við ákveðið höfuttt að panta prest
til aðpússa okkursatttan bráðutn.
Látum því núþau boð út bera
að bœta það tttuttdi okkar hag,
ef vilduð þið okkur greiða gera
oggleðjast með okkur þetman dag.
Sigurgeir Þorvaldsson var kunnur
hagyrðingur í Keflavík á sinni tíð. Eitt
sinn var hann til sjós með Sigurjón
Einarssyni á togaranum Faxa.
Honunt þótti nóg um skapofsa og
kapp skipstjórans, enda flestir háseta
óharðnaðir skólastrákar. Orti af þessu
tilefni Sigurgeir eftirfarandi stef og kom
því fyrir í brú skipsins.
Sigurjótt baðar út öllutn öngum
öskrar með drynjattdi rómi ströngum,
alltætlar um koll að keyra.
En hásetablœkumar velta vöttgutn
vafstra utnfratn á og aftur ígöttgum
ogskilja hvorki né heyra.
Sigurgeir, sem stundum var kallaður
kálhaus, mun eitt sinn hafa ort þessa
ágætu mannlýsingu:
Huglaus pjakkur hœrugrár,
hokintt, frakkur, Ijótur.
Höfuðblakkur, heilasntár
herðaskakkur þrjótur.
Kveð með þessari fallegu vísu Gunnars
Oddssonar í Flatatungu.
Hljómar lagvið Ijóðaskrá
lifa bragaryrði.
Græna haga andinn á
enn í Skagafirði.
Verið þar með
sœl að sintti.
Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum
541 Blönduósi
Sítni 452 7154