Feykir - 20.09.2007, Blaðsíða 9
35/2007 Feykir 9
Tómstundahópur fyrir fatlaða
Eftirminnileg
Spánarferð
Skagafjarðardeild Rauða
kross íslands fór árið 2006
af staó meó verkefni sem
kallast ’Tómstundahópar
fyrir fatlaða”. Þann 7. júní
sl. lagði rúmlega 40 manna
hópur af þátttakendum og
valinkunnu liði sjálfboóaliða
upp í ferð til Spánar.
Hugmyndin af
Tómstundahópi fatlaðra varð
til í umræðuhópum Átaks
sem starfræktir hötðu verið í
Skagafirði sl. 8 ár. Hópurinn
hittist einu sinni í viku yfir
vetrarmánuðina til að fylgja eftir
viðburðum sem þátttakendur
hafa áhuga á að taka þátt í
með það að markmiði að auka
félagsfærni þeirra.
Það var síðan síðast liðið
haust að hugmynd að 2 vikna
ferð til Spánar kviknaði innan
hópsins. Undirbúningur úti
fyrir ferðina var í höndunr
Costablanca.is sem einnig sá
um að skipuleggja ferðir og
viðburði sem farið var í. Úti
var haldið til á Playa Marina
II hótelinu í Cabo Roig nálægt
Torrevieja, en það hentaði
sérlega vel.
Meðal þess sem hópurinn
gerði I ferðinni var að heim-
sækja Safari dýragarð-
inn í Elche, Aquopolis
vatnagarðinn og Terra Mitica
skemmtigarðinn. Einnig
var farið í strandferð og svo
sveitaferð þar sem m.a. var
hægt að fara á hestbak, á
fjórhjól og stunda bogfimi.
Að auki var farið í bæjarferðir,
verslunarmiðstöðvar og leik-
tækjasali. Ekki má gleyma 17.
júní skrúðgöngu og grillveislu
sem haldin var I samvinnu við
Costablanca.is, en alls tóku
yfir 100 manns þátt í þeim
hátíðarhöldum.
Skemst er frá því að
segja að ferðin tókst í alla
staði frábærlega og skemmti
hópurinn sér konunglega. Allir
voru af vilja gerðir til að gera
dvölina sem ánægjulegasta og
eiga starfsmenn Playa Marina
II hótelsins sem og Bjarni og
Óli hjá Costablanca.is þakkir
skyldar fyrir.
Hópurinn vill einnig
korna á ffamfæri þökkum
til styrktaraðila sinna og
þá sérstaklega Kaupfélags
Skagfirðinga sem og annarra
fyrirtækj a og félagasamtaka sem
styrktu hópinn til ferðarinnar.
Þeim sem vilja leggja
hópnum frekara lið er bent
á reikning hans í KB Banka,
en nánari upplýsingar um
reikningsnúmer, sem og um
hópinn og Spánarferðina
(ferðasögur og myndir) er að
finna á http://www.thrki.net.