Feykir - 15.05.2008, Blaðsíða 2
2 Feykir 19/2008
Húnavatnshreppur
Sauðárkrókur
Viðgerðaráætlun kynnt
Hreppsnefnd Húnavatnshrepps hefur samþykkt að fara í
viðgerðir á þaki íþróttahússins á Húnavöllum en viðgerð
á þaki kjarnabyggingar Húnavallaskóla er þegar lokið en
kostnaður við það verk var meiri en áætlaður hafði verið.
Á fundi hreppsnefhdar var verkfræðistoíunniLínuhönnun.
kynnt skýrsla um ástandsmat Skýrslan varðar viðhalds- og
og viðhaldsáædun á kostnaðaráædunvegnaviðgerða
Húnavallaskóla tímabilið 2008- utanhúss á skóla- og íþróttahúsi
2023, sem unnin er af á Húnavöllum.
Fljót
Félagsheimilið Ketilás
A fundi Byggðarráðs
Skagafjaróar var lögð fram
áiyktun aðalfundar
Kvenfélagsins
Framtíðarinnar í Fljótum frá
13. apríl sl. varðandi viðhald
og ástand Félagsheimilisins
Ketiláss.
Óskað er viðbragða og
samstarfs frá sveitarfélaginu
sem aðal eiganda hússins.
Byggðarráð tekur undir
áhyggjur kvenfélagsins um
ástand hússins og samþykkir að
fela sveitarstjóra að skoða málið.
f þriggja ára áædun
Sveitarfélagsins er reiknað með
fjárhæðum til viðhalds á
félagsheimilinu árin 2009 og
2010.
Er eitthvað að frétta?
Feykir
Hafðu samband - Síminn er 455 7 7 76
Leiðari
Ég vildi að ég væri bóndi
Ég hreinlega elska lífið á Nöfunum fyrir ofan heimili mitt
á Sauðárkróki og þá ekki síst á vorin. Um helginafórum
við Páll Friðriksson blaðamaður íferð um Nafirnar og
þá var ég svo heppin að komast í kynni við hana Erlu
Lárusdóttur nágrannakonu mína og stórbónda. Erla var
svo elskuleg að bjóða mig og börnin velkomin í húsin og
tvo daga í röð höfum við misnotað það boð hennar. Ég
gatþó eitthvað gang gert, vafið einn fót og tekið á móti
hrút. Ég hefalltafverið mikil sveitakerling og sérstaklega
er ég veikJyrir sauðkindinni. Sú veiki hefur versnað til
muna og auglýsi ég hér með eftir plássifyrirfjórar til
fimm kindur næsta vetur. Er nokkuð þrifaleg og skrambi
góð Ijósmóðir þegar að sauðkindinni kemur.
Þar sem ég veit að leiðarinn er lesinn misnota ég hér með
tækifærði gróflega og auglýsi eftirplássi.
Mig langar svo að verða bóndijafnvel bara
frístundabóndi.
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
sími 898 2597
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
Útgefandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Blaðstjórn:
Árni Gunnarsson,
Áskell Heiðar Ásgeirsson,
Herdís Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og Páll
Dagbjartsson.
Ritstjóri & ábyrgðarmaðun
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is © 455 7176
Blaðamenn:
Páll Friðriksson
palli@nyprent.is © 8619842
Óli Arnar Brynjarsson
oli@nyprent.is
Lausapenni:
Öm Þórarinsson.
Prófarkalestur:
KarlJónsson
Askriftarverð:
275 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
325krónurmeð vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ehf.
Sími 455 7171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Góðgjöftil
Sauðarkrókskirigu
í messu á degi aldraðra á
uppstigningardag, var
gefinn og afhentur
Sauðárkrókskirkju, altaris-
dúkur er saumaður var af
Sigurlaugu Guðmunds-
dóttir.
Gjöfm er til minningar um
foreldra hennar Þóreyju
Ólafsdóttir sem var fædd að
Höfnum á Skaga 23.ágúst 1895
og Guðmund M.Björnsson,
fæddan 20. júlí 1894 að
Veðramóti í Gönguskörðum.
Sigurlaug er handavinnu-
kennari, fædd 1924 og búsett í
Reykjavík.
Skagafjörður
Vilja ULM 2010
í Skagafjörð
Ungmennasamband Skagafjarðar með stuðningi
Sveitarstjórnar Skagafjarðar, hefur sótt um að halda
unglingalandsmót UMFÍ árið 2010 á Sauðárkróki. Á
þvf ári verður UMSS 100 ára og er umsóknin í tilefni
af því.
Tvö önnur sambönd hafa
einnig sótt um að halda mótið,
þau eru HSB í Bolungarvík og
HSK á Suðurlandi.
Næsta unglingalandsmót
verður haldið í Þorlákshöfn í
sumar um verslunarmanna-
helgina og er óhætt að hvetja
fólk til að fjölmenna með alla
fjölskylduna á góða
skemmtun.
Lögreglan með umferðarátak
Bömin stoppuð séu
þau hjálmlaus
Lögreglan á Sauðárkróki er
með umferðarátak innan
bæjar á Sauðárkróki þar
sem sérstaklega verður
fylgst með umferðarhraða
svo og
reiðhjólahjálmanotkun
barna og ungmenna.
-Með hækkandi sól hættir
ökumönnum til þess að stíga
fastar á bensíngjöfina en á sama
tima eru börnin farin að vera
meira úti að leika á hjólum,
hjólaskautum og öllu því sem
vorinu fylgir, segir Stefán Vagn
Stefánsson, yfirlögregluþjónn á
Sauðárkróki.Aukhraðamælinga
ædar lögreglan að brydda upp á
þeirri nýjung að vera með átak í
að fá börnin til þess að nota
reiðhjólahjálma. Þau börn sem
ekki verða með hjálma verða
stoppuð, spurð nafns og nafns
forráðamanns sem síðan mun
fá bréf þess efnis að lögreglan
hafi haft afskipti af barni þeirra.
- Auk þess sem að sjálfsögðu við
munum brýna fyrir börnunum
að vera með hjálm, segir Stefán
Vagn.
Lögreglan á Blönduósi
Freyja fann
fikniefhi
Lögreglan á Blönduósi
gerði upptækt mikið
magn fíkniefría eða á
annað hundrað grömm af
amfétamini og kókafni.
Það var lögregluhundurinn
Freyja sem fann efríin en
áður hafði maðurinn verið
stöðvaður fyrir of hraðan
akstur í Víðidal.
Freyja er nýkomin úr
starfsleyfisúttektarprófi
hjá ríkislögreglustjóranum
og eiga þau Freyja og
Höskuldur lögregla, fóstri
hennar, heiður skilinn fyrir
góð störf.
Blönduós
Hugsað
umbam
Grunnskólinn á Blönduósi
hefur lýst áhuga á að
fara í forvarnarverkefni á
vordögum sem
kallast „Hugsað um
barn“.
Verkefnið snýst um það
að unglingum er falin umsjá
tölvustýrðar dúkkur sem
eru forritaðar eins og um
raunveruleg börn séu að
ræða. Unglingarnir þurfa að
sinna öllum þeirra þörfum
jafnt að nóttu sem degi.
Bæjarráð samþykkir kr.
70.000 styrk í verkefnið.
Húnaþing vestra
Viðhald
heiðagirð-
inga
Á fundi Landbúnaðarráðs
Húnaþings vestra var lagt
til að kr. 1.570.000- sem
eru til ráðstöfunar á árinu
2008 verði notað til
viðhalds og endurnýjunar
heiðagirðinga.
Ákveðið var að skipting
fjármunanna verði með
eftirfarandi hætti:
í Hrútafirði kr. 350.000-
ÍMiðfirðikr. 470.000-
í Víðidal kr. 750.000-
Formenn fjallskiladeilda
hafa eftirlit um ástand
heiðagirðinga á sinni könnu
og farið er fram á að þeir skili
yfirliti um ástand girðinganna
þegar viðhaldi er lokið.