Feykir - 15.05.2008, Síða 7
19/2008 Feyklr 7
Motocrossarar bera saman bækur sínar.
Svo er haldið af stað!
Mikill útbúnaður fyigir crossurunum.
stundað sína íþrótt löglega,
segir Ásta.
Síðan Sveitarfélagið
Skagafjörður úthlutaði
Vélhjólaklúbbi Skagaíjarðar
svæðinu á Gránu-Móum
fyrir 3 árum, hefur það
skipt sköpum í þróun
þessarar íþróttagreinar
í Skagafirði. -Svæðið
býður upp á fjölbreytta
motocrossbraut á mörgum
hæðum og er orðið eitt af
bestu motocrossbrautum
landsins. Þar verður meðal
annars haldið íslandsmót í
MX f6. ágúst og við stefnum
ótrauð á að halda áfram með
uppbygginguna meðal annars
með því að koma upp braut
fyrir yngstu iðkendurna sem
eru fjölmargir, segir Ásta að
lokum.
Erla segir aö kindurnar haidi sér ungri.
Á bara eina
hvíta kind
Erla Lárusdóttir
Ofar á Nöfunum eða f við
hlið golfvallarins má finna
Erlu Lárusdóttur en Erla
tók við myndarlegum fjár-
húsum eftir föður sinn fyrir
15 árum.
Þar býr hún með
myndarlegt sauðfé í félagsbúi
við Sigmund son sinn sem
heldur hesta. Kindurnar
hennar Erlu eru fallega
flekkóttar en hún á bara eina
hvíta kind, hana fékk hún
gefins.
-Þetta er kannski vitleysa í
gamalli kerlingu að halda í
þetta en ég hef ekki viljað
farga fénu. Ég legg mikinn
metnað í að hafa þetta fallegt
og vil gefa þeim vel sem ég vil
meina að skili sér í fallegri
lömbum, segir Erla og brosir
til blaðamanns. í einni stíunni
má finna gimbrina
Óskastjörnu en hún er stærsta
lamb sem fæðst hefur í
húsunum hjá Erlu og einnig
stærsta lamb sem blaðamaður
hefur séð. -Hún var svo
kröftug þegar hún fæddist að
þegar hún stóð upp og fór að
sjúga móður sína þá hreinlega
hentist ærin til, þvílíkur var
atgangurinn, segir Erla og
Óskastjarna sem greinilega
veit að verið er að tala um
hana kemur og vill fá klapp.
Fjárhúsinu hennar Erlu eru
björt og falleg og hún hefur
fjárfest í rafstöð til þess að geta
haff þar ljós. Inn af hlöðunni
er síðan kaffistofa þar sem
alltaf er hægt að fá kaffi og
með því. -Það er mikill
gestagangur hér hjá mér sem
er gott því bæði kann ég
félagsskapnum vel og eins þarf
ég stundum að fá aðstoð við
að draga lömbin úr ánum. Ég
kann ekki vel með það að fara
ef þetta ber eitthvað vitlaust að
og þá kemur hún Auðbjörg
mín mér oft til bjargar, segir
Erla. Gaman er að segja frá því
að blaðamaður kom í
heimsókn til Erlu daginn eftir
að viðtalið fór fram og gat þá
aðstoðað Erlu við að taka á
móti stærðarinnar einlembing
sem að sjálfsögðu fékk nafnið
Feykir.
Erla er með 25 kindur og fjórar
gimbrar sem hún lætur ekki
bera og segir að kindurnar
haldi sér ungri. -Hins vegar
finnst mér vorin hafa breyst
og það er erfitt að eiga við
þetta í svona kulda eins og nú
er en þá er bara að taka þetta
inn meðan versta hretið
gengur yfir, segir Erla að
lokum.
Hún Óskastjarna er engin smásmíði!
Þessi myndarlegi hrútur fékk nafnið Feykir eftir að biaðamaður hafði við
annan mann togað hann í heiminn. Árdís Eva heldur á hrútnum.