Feykir


Feykir - 22.05.2008, Blaðsíða 1

Feykir - 22.05.2008, Blaðsíða 1
■MÁUtíí 550 *SiCamáCMK *TRéiiútcf<vi * l'jái'.íuCoiuii DuPont Bílalakk Borgarröst 5, Sauðárkrókur Sími 453 6760 / 698 4342 Fax: 453 6761 Netfang: malverk550@simnet.is Siggi Doddi og Ellert í Von Hvað vita þeir hvor um annan f bítið, annar geisladiskur hljómsveitarinnar Vonar leit dagsins Ijós þann 1. maí sl. Diskurinn inniheldur fjölbreytt lagaval úr smiðju þeirra félaga. Rokk, ballöður popp og kántn. Hægt er að nálgast diskinn í allflestum hljómplötuverslunum auk þess sem hægt er að panta hann á netfanginu videosport@simnet.is. Feykir fékk þá félaga Sigga Dodda og Ellert til þess að taka létt próf til að sannreyna hversu mikið þeir í raun þekkja hvor annan. sjá bls. 7 Aðalfundur Ámundakinnar ehf. Hagnaður af rekstri samstæóu og moðurfelags Ámundakinnar ehf. eftir reiknaða skatta nam 39 milljónum króna á árinu 2007. Er þetta í fyrsta sinn sem félagið er rekið með hagnaði og segir Jóhannes Torfason, framkvæmdastjóri Ámundakinnar, að hagnaðurinn sé bein afleiðing réttra ákvarðanna síðustu ára. Ámundakinn ehf. er tækifæris- og framfarasinnað byggðafestufélag sem stofnað var í desember árið 2003. Félagið stundar údeigu, kaup, sölu og byggingu fasteigna á Blönduósi auk þess sem það á í og rekur trésmiðjuna Stíganda og Húnakaup hf. Samkvæmt rekstarreikningi námu rekstartekjur sam- stæðunnar 122,5 milljónum króna á árinu 2007 og rekstartekjur móðurfélagsins 63,8 millj. kr. Hagnaður af rekstri samstæðunnar og móðurfélagsins á árinu nam 39 millj. króna samkvæmt rekstarreikningi. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 364,5 millj. kr. og eignir móðurfélagsins 258,2 millj. kr. Eigið fé samstæðunnar og móðurfélagsins nam 172,6 millj. kr. í árslok. Þá nam hlutafé félagsins í árslok 116,8 millj. kr. og jókst það um 60 milljónir á árinu. í árslok skiptist hlutafé á þrjátíu hluthafa og hafði þeim fjölgað um fjórtán á árinu Þar af eiga fimm hluthafa yfir 10% eignahlut. Þeir eru: Byggðastofnun með 16,26%, Húnavatnshreppur með 13,64%, Blönduósbær með 12,32%, Sölufélag A-Húnvetninga svf. 12,07% og Straumur Burðarás hf. með 10,85%. Á fundinum var ákveðið að greiða hluthöfum 1% arð af nafnvirði hlutafjár vegna ársins 2007 og miðast arðgreiðslan við hlutaíjáreign á aðalfundi Ámundakinnar ehf. Sauðárkrókur Endurvinnsla Flokku Vaxandi áhugi er á þvf að flokka og skila rusli til endurvinnslu á Sauðár- króki. Fólk hefur tekið þvf fagnandi að fá að taka þátt í því verkefni að minnka urðun sorps umhverfi sfnu til heilla. „Fyrsti gámurinn af bylgjupappa, dagblöðum og plasti er að fara núna í vikunni til Hollands,“ segir Ómar Kjartansson forstjóri Flokku. Flokka sendir gámana milliliðalaust út til kaupenda og er þessi afurð eftirsótt út í hinum stóra heimi. Ómar segir að vel hafi gengið að fá fólk til að hugsa jákvætt um verkefnið og fyrirtækin séu farin að taka við sér varðandi flokkun á sínu rusli. Landbúnaðarplast er stór hluti af endurvinnanlegu efni og er annar gámurinn að fara út til Kína í næstu viku. í hverjum gámi eru tuttugu og sex tonn af endurvinnanlegu efni þannig að það sést hvaða þýðingu það hefur að flokka sitt rusl. „Byrjunin hefur gengið vel og allt að virka eins og á að gera,“ segir Ómar og heldur áfram að keyra pressaða pappabaggana í gáminn. Ixus 70 24.90ömh Ixus 75 27.4U(Imii —(CTengi!! ehjDI— TÖLVUDEILD TENGI LS BORGARFLÖT 27 SAUÐARKRÓKI / 4SS 7900 D»c itioii IKUS 75 VIÐ B0NUM 0G RÆSTUM! Daglegar ræstingar og reglubundið viðhald á bóni í fyrirtækjum og stofnunum Hringdu núna eða sendu tölvupóst Sími: 848 7007 * Netfang: siffo@hive.is Bílaviðgerðir hjólbarðaviðgerdir réttingar og sprautun *

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.