Feykir


Feykir - 22.05.2008, Blaðsíða 8

Feykir - 22.05.2008, Blaðsíða 8
8 Feyklr 20/2008 Biopol ehf. á Skagaströnd er sjávarlíftæknisetur sem stofnað var síðla sumars árið 2007. Hugmyndin af stofnun fyrirtækisins spratt eftir framboðsfund með Einari Oddi Kristjánssyni heitnum sl. vor, en Einar Oddur var þeirrar skoðunar að fólk ætti ekki að bíða eftir björgun heldur bjarga sér sjálft. Feykir settist niður með þeim Halldóri G Ólafssyni framkvæmda- stjóra og Ólafíu Lárusdóttur verkefnisstjóra BioPol ehf. Fyrírtæki vikunnar Biopolehf. á Skagaströnd Þegar blaóamann bar að garði voru þau Halldór og Ólaffa að kryfja seli sem drukknað höfðu í netum veiðimanna við Húnaflóa. Mismunandi sýni sem þau höfðu tekið fóru í poka og flát og bfða þess nú að vera tekin til rannsókna. En eins og áður hefur komið fram í Feyki er hlutverk BioPol ehf að verða rannsóknarsetur sem byggist á rannsóknum á iífnki Húnaflóa. Á heimasíðu fyrirtækisins segir að markmið rannsóknanna geti m.a. beinst að möguleikum á nýtingu sjávarfangs sem ekki hefur haft skilgreind not eða eiginleikar ekki verið þekktir. Einnig gæti rannsóknarstarfið beinst að umhverfisvöktun með sérstaka áherslu á að fylgjast með breytingum á lífríkinu, áhrifavöldum og afleiðingum. Á vettvangi lífríkisrannsókna verði byggt upp samstarfvið sambærilegar rannsóknarstofur bæði innan lands og utan. Með upp- setningu og skilgreiningu á varðveisluaðferðum og búnaði til varanlegrar og tryggrar gæslu lífsýna verði byggður upp lífsýnabanki fyrir sjávarlífverur í vistkerfi hafsins við ísland. Við rannsóknir á vettvangi sjávarlíftækni verði lögð áhersla á að kortleggja þau verðmæti sem þekkt eru ásamt því að leita nýrra verðmæta og leita nýsköpunar og nýrra möguleika til verðmætasköpunar úr sjávar- fangi t.d á vettvangi fæðu- bótaefna, snyrtivara, sem og íblöndunarvara fyrir mat- væla- og fóðuriðnað. Jafnframt segir að þess sé vænst að á næstu fimm árum muni fyrirtækið ná að byggja upp nauðsynlega færni með því að hafa 5-7 sérfræðinga auk aðstoðarfólks og meistara og doktorsnema þannig að fyrirtæki og sjóðir telji fýsilegt að fjárfesta enn frekar f rannsóknum og þróun á sviði líftækni. Þá er þess vænst að niðurstöður verkefna setursins „leiti út á markað" og að í framhaldinu myndist sprotafyrirtæki sem hefji framleiðslu á ýmsum vörum til neytenda eða til áframhaldandi vinnslu. Slík fyrirtæki yrðu ekki síst stofnuð á landsbyggðinni í nágrenni setursins. Þá er þess vænst að setrið tryggi forystu íslands á nýtingu verðmæta úr sjó og sjávarfangi og geri svæðið að nk. „Silicon Valley" á starfssviði sínu. Ekki bara þægileg skrifstofuvinna Hafandi kynnt sér fyrirtækið á netinu má reikna með að þar vinni starfsfólk í hvítum sloppum og þægilegri skrifstofuvinnu. Reyndin er önnur og síðasta mánuðinn hafa þau Halldór og Ólafía ásamt starfsfólki Norður- landsdeildar Veiðimálastofn- unar sótt sjó með grá- sleppuköllum, merkt hrognkelsi, krufið grásleppu og unnið almenna slorvinnu. -Nei, það er rétt þetta er alls ekki fínt skrifstofustarf eins og staðan er í dag en það gæti kannski breyst í það aftur að einhverju leyti ef við verðum fleiri hér, svarar Halldór spurningu blaðamanns og hlær. Hvers lags verkefni eruð þið að vinna að núna? -Við erum að vinna í þriþættu verkefni tengdu rannsóknum á hrognkelsum. Við erum að merkja hrognkelsi og sleppa aftur. Tilgangur merkinganna er að afla upplýsinga um hegðunarmynstur og farleiðir tegundarinnar hér við land, meta veiðiálag á ákveðnum svæðum og þá ekki síst að svara spurningum um hve svæðisbundin hrognkelsi eru. Leita þau til að mynda á sömu svæði til hrygningar ár eftir ár. Til að afla nánari upplýsinga um líffræði og lífshætti grásleppunnar hefur hún einnig verið veidd í sérstakar rannsóknatrossur með netum af mismunandi möskvastærð. Trossurnar hafa verið lagðar á valda staði við Húnaflóa og í Skagafirði til að fá þverskurð af stofnsamsetningu hrognkelsa á þessu svæði. Fylgst er með samsetningu í afla yfir veiðitímabilið.„Við viljum meðal annars fá úr því skorið hversu mikið og hvort hefðbundin veiðarfæri eru að velja ákveðna stærð af grásleppu. Spurningin er hvort stærri eða smærri grásleppur gangi hingað en komi ekki fram í veiðinni. Einnig er forvitnilegt að bera saman hugsanlegan mun á milli veiðisvæða,“ sagði Halldór. Margvíslegar mælingar og rannsóknir eru síðan framkvæmdar á aflanum úr rannsóknaveiðarfærunum til að grennslast fyrir um lífshætti þeirra. Gögnum er aflað urn þætti eins og vöxt, aldurssamsetningu og orkuforða. Gerðar eru ýmsar mælingar á hrognum, stærð og gæði þeirra eru skoðuð, áætlaður hrognafj öldi og mæld hrognafylling. Hræin eru síðan geymd en hrognin nýtt. Hræin verða notuð til rannsókna í tengslum við kolagen og gelatín framleiðslu og þar sem við komin að þriðja þætti rannsóknarinnar er snýr að frekari nýtingu þessarar fiskitegundar. Þau Halldór og Ólafía vinna hörðum höndum að því að merkja og sækja og vinna sýni úr grásleppu og njóta til þess liðsinnis Veiðimálastofnunnar á Norðurlandi. Segir Halldór að þau Kalli, Eik, Reynhildur og Bjarni taki beinan þátt í verkefninu. Verkefnið er samstarfsverkefni BioPol, Norðurlandsdeildar Veiði- málastofnunar, Landsambands smábátaeigenda og Háskólans á Akureyri. Mikilvægt að veitt sé úr sjálfbærum stofnun í vor hafa þau merkt 1400 grásleppur og hefur um 10% af þeim skilað sér aftur í net veiðimanna. En áætlað er að merkja 2000 stk nú á vertíðinni. Aðspurð segjaþau að það sem hingað til hafi komið þeim mest á óvart sé sú staðreynd hversu víðförul á hrygningartíma grásleppan virðist vera. -Við erurn svo sem ekkert farin að rýna ofan í gögnin en grásleppan hefur verið að fara alla leið austur fýrir Langanes og inn á Bakkaflóa á 14 dögum. Þá var ein merkt út af Hofsósi eða við Straumnes og kom hún í net upp við fjöru við Grímsey. Það er því ljóst að einhver dæmi þess eru hún er ekki aðeins að fara með ströndinni heldur einnig eitthvað út á dýpið. Hins vegar viturn við ekki hvort hún var þarna að leita til baka á sitt uppvaxtarsvæði eða hvort um tilviljun var að ræða, segir Ólafía. Gert er ráð fyrir að rannsókn eins og sú sem þau hafa nú þegar hafið vinnu við taki að lágmarki 2 - 4 ár og ljóst að framundan er mikil vinna. En hver skyldi ávinningur rannsóknar sem þessarar vera? -Þessar rannsóknir eru liður í því að geta nýtt auðlindirnar á sem bestan og umhverfisvænstan hátt. Það er allsstaðar gerð krafa um fólk geti sýnt fram á að veiðar séu stundaðar úr sjálfbærum stofnum og að stofnarnir standi undir þessum veiðum. Til þess að geta lagt mat á því hvort þessi sjálfbærni sé til staðar þurfum við að vita meira um líffræði gráslepp- unnar, útskýrir Ólafía. Hugmynd sem varð að veruleika BioPol lifir á styrkjum auk þess sem verkefnin sem nú er unnið að eru styrkt af verkefnasjóði sjávarútvegs á samkeppnissviði ásamt því að hafa notið styrks frá fjárlaganefnd Alþingis. Þá hlaut fyrirtækið 20 milljón króna fjárveitingu í tengslum við mótvægisaðgerðir ríkis- stjórnarinnar. -Þetta er það fjármagn sem við höfúm í hendi í dag. Við höfum í dag þessi 2 stöðugildi auk þess sem við höfum fengið styrki til þess að ráða til okkar 2 námsmenn til þess að vinna úr rannsóknum með okkur, segir Halldór og ljóst er að hugmynd sem kviknaði á framboðsfundi er orðin að veruleika og vel það. Gott dæmi um hve dýrmætt frumkvæði og þor heima- manna getur reynst.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.