Feykir - 22.05.2008, Qupperneq 2
2 Feykir 20/2008
Fornleifarannsóknir í Skagafirði Sauðárkrókur
Blönduós
3,8 milljónir í styrk
Stjórn fornleifasjóós hefur nýverió lokið úthlutun styrkja
úr sjóðnum fyrir árið 2008. Fjárveitingar til sjóðsins í ár
voru 25 milljónir króna og bárust alls 38 umsóknir að
fjárhæð tæplega 74 milljónir króna. Að þessu sinni hlutu
þrjú Skagfirsk verkefni styrk úr sjóðnum að upphæð 3,8
milljónir króna.
Guðný Zoega íyrir hönd
Byggðasafns Skagfirðinga
hlaut 800 þúsund króna styrk
til framhalds fornleifa-
rannsókna á kirkjum í
Skagafirði. Einnig fékk
Hólarannsóknin og Ragn-
heiður Traustadóttir eina
milljón króna fyrir rann-
sóknina Jarðfundnir gripir frá
Hólum í Hjaltadal 2002-2007
og Háskólinn á Hólum,
Ragnheiður Traustadóttir
tvær milljónir í styrk fyrir
rannsókn á Kolkuóshöfn í
Skagafirði.
Leiðari
Húrrajyrir Halldóru Jónsdóttur
Halldóra Jónsdóttir, 24 óra stúlka með Downs syndrom
segirfró lífsgildum sínum grein í Morgunblaðinu í síðustu
viku. Gagnrýnir Halldóra þar þci umræðu sem verið
hefur umfósturskimun og að eyða berifóstrum með
Down syndrom. Lestur þessarar greinar hafði mikil óhrif
ó mig ekki sist að í Ijósiþess að ó menntaskólaórunum
vann ég bæði á Sólborg sálugu á Akureyri svo og
skammtímavistun fyrirfótluð börn. Ein góð vinkona mín,
fædd með Downs syndrom og alvarlegan hjartagalla
lést 12 ára gömul, ekki löngu fyrir andlát hennar vorum
við að ræða saman um lífið og tilveruna. Hún sagði mér
að hún ættiþá ósk heitasta að losna við hjartamein sitt
svo hún þyrfti ekki að deyja. -Ég veit að ég verð aldrei
fullorðin en ég vildi óska að ég gæti orðiðfullorðin, tekið
bílprófog eignast kærasta, ég vildi að ég væri eins og
þú, sagði hún. Þessi vinkona mín var læs og skrifandi og
eldklár miðað við sína fótlun. Hún var alltafjákvæð og
lífsglöð og það var ekki hægt annað en líða vel í návist
hennar. Fleiri einstaklingum með Downs syndrom
kynntist ég og einum vini mínumfylgdi ég í hansfyrstu
sporum út á vinnumarkaðinn. Ég veit ekki hvort okkar
var stoltara þegar hann fékk sinnfyrsta launaseðil. Hann
spjarar sig bara nokkuð vel i dag.
Mín skoðun er sú að með því að taka þá ákvörðun að
verða ófrísk taki hjón þá ákvörðun að þau séu reiðubúin
að verðaforeldrar. Börnin okkar geta orðiðfyrir slysum
eða veikindum á lífsleiðinni og við erum aldrei “trygg”
með “heilbrigði”þeirra. Efleyfa á þessa skimun með það
fyrir augum að eyða þeimfóstrum sem ekki standast
kröfurforeldra þarfþá ekki um leið að koma upp
skilalúgum fyrir veik böm?Mig langar því að taka undir
orð Halldóru og gera þau að mínum lokaorðum. -Hver
getur sagtþað að við með Downs heilkennið séum minna
virði en einhver annar.
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
sími 898 2597
Oháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
Útgefandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Blaðstjórn:
Árni Gunnarsson,
Áskell Heiðar Ásgeirsson,
Herdís Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og Páll
Dagbjartsson.
Ritstjóri & ábyrgdarmaðun
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is © 455 7176
Blaðamenn:
Páll Friðriksson
palli@nyprent.is © 8619842
Óli Arnar Brynjarsson
oli@nyprent.is
Lausapenni:
Örn Þórarinsson.
Prófarkalestur:
Karl Jónsson
Askriftarverð:
275 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
325 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ehf.
Simi 455 7171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Ingimar Hólm, Raggi Skíöi, Jónas Svavars og Hermann Agnars raða
í ráðstefnumöppur.
Umdæmisþing
Kiwanis
Kiwanisklúbburinn Drangey
á Sauðárkróki skipuleggur
nú umdæmisþing Kiwanis
fyrir ísland og Færeyjar sem
haldið verður 30. maí - 1.
júni.
„Umdæmisþingið er haldið
einu sinni á ári, oftast á
Reykjavíkursvæðinu en reynt
er að koma því út á land af og
til,“ segir Ingimar Hólm
formaður þingnefndar. „Þetta
er það stórt í sniðum og
vandamálið er að finna
gistingu fyrir alla. Það verður
gist út um allan fjörð,
Varmahlíð, Steinsstöðum,
Löngumýri og á Króknum.“
Þingið sjálft verður haldið í
Bóknámshúsinu á laugar-
deginum og lokahófið um
kvöldið í íþróttahúsinu. „Á
föstudeginum verður fræðslu-
fundur í Bóknámshúsinu og
um kvöldið höldum við upp á
30áraafmæliKiwanisklúbbsins
Drangeyjar í Reiðhöllinni
Svaðastöðum,“ segir Ingimar
að lokum og væntir þess að
eiga góða helgi um
mánaðarmótin.
Húnaþing vestra
Selaskoðun og æðarvarp
Nú þegar vorið er komið og grundirnar gróa og varp
fugla er í hámarki þarf að gæta þess að styggja ekki
vængjaða gesti okkar að óþörfu.
Selaskoðunarstaðurinn við
Illugastaði á Vatnsnesi er
lokaður frá 1. maí til 20. júní,
meðan á varptíma stendur.
Þetta er gert þar sem
æðarvarpið er friðlýst. Bent er
á selaskoðunarstaði við
Svalbarð og á Ósum. Á Ósum
liggur gönguleið frá
farfuglaheimilinu að strönd-
Skagafjörður
Nýtt merki Grunn-
skólans austan Vatna
Á fundi fræðslunefndar
Skagafjarðar s.l. mánudag
voru lagðarframtværtillögur
að merki Grunnskólans
austan Vatna.
Tillaga A hefur Þórðar-
höfðann sem meginstef og þrjá
stuðla sem vísa til skólanna.
Tillaga B er með þrjár öldur
sem merkja skólana og ör sem
vísar til norðurs og afmarkar
öldurnar austan megin til að
staðsetja skólann austan Vatna.
í kosningu meðal nemenda
hlaut tillaga A 2/3 atkvæða.
Meðal starfsmanna hlaut tillaga
B 12 atkvæði en tillaga A 11
atkvæði.
í valnefnd um merki skólans
hlaut tillaga B 5 atkvæði en
tillaga A 4 atkvæði. Fræðslu-
nefnd samþykkir tillögu
valnefndar.
44Grunnskólinn
•/t/i/LaustanVatna
Vökulögín
2008
Nú fer hver að verða
sfðastur að senda inn
lög í keppnina Vökulögin
2008 sem fram fer á
Blönduósi á flölskyldu-
og menningarhátíðinni
Húnavöku á Blönduósi
11.-13. júí.
Lögunum skal skila
á geisladiski ásamt
texta fyrir 23. maí til
Menningarmálanefndar
Blönduósbæjar, Hnjúka-
byggð 33, 540 Blönduósi,
merkt „Vökulögin 2008”.
Upplýsingar um höfundana
þurfa að fylgja með í lokuðu
umslagi. Sjö lög verða
valin í úrslitakeppnina
og fá eigendur laganna
sjötíuþúsund krónur til
að búa það til opinbers
flutnings.
Kvenfélag Sauðárkr.
Komufær-
andi hendi
Félags- og tómstunda-
nefnd Skagafjarðar
óskaði f vetur eftir
þvf við Byggðarráð
Skagafjarðar að keypt
yrðu þrjú hjartastuðtæki
í sundlaugar og
fþróttamannvirki í eigu
sveitarfélagsins.
Nú hefur Kvenfélag
Sauðárkróks af höfðings-
skap, gefið tvö tæki til
íþróttamannvirkjanna á
Sauðárkróki. Byggðarráð
samþykkir að keypt verði
eitt tæki til viðbótar
fyrir íþróttamiðstöðina í
Varmahlíð.
Húnavatnssýslur
Lestrar-
greining
Umsjónarmenn sér-
kennslu grunnskólanna í
Húnavatnssýslum og
sérkennari Grunnskólans
á Borðeyri eru um þessar
mundir að læra að nota
nýtt greiningartæki í
lestri.
Greiningartækið heitir
LOGOS og er eftir Torleiv
Hoien einn þekktasta og
virtasta sérffæðing á þessu
sviði.