Feykir - 22.05.2008, Blaðsíða 6
6 Feyklr 20/2008
K YHNIHO 00 F0K8A0A !■■■■■
/ Vellunnin í HnfissctrU) ú llliintluósi
Blönduós___________
Nýr staifsmaður
Hafísseturs
Haffssetrió er að hefja
sitt þriðja starfsár nú
f sumar og er verið að
vinna í þvf að efla starfið
og markaðssetja það
frekar. Nýr starfsmaður
hefur verió ráðinn og
hans fyrsta verk er að
undirbúa ráðstefnu í
tilefni opnunar setursins.
Feykir forvitnaðist um
forstöðumanninn og
starfsemina framundan.
„Ég heiti Katharina
Angela Schneider og er frá
Þýskalandi. Ég kom til
íslands í fyrra og byrjaði að
vinna á bókasafninu en er
núna að taka við Hafíssetrinu.
Ég er reyndar ennþá að vinna
á bókasafninu og verð það
eitthvað áfram,“ segir nýi
forstöðumaðurinn á lýta-
lausri íslensku og blaðamað-
ur undrast hversu vel hún
hefur náð íslenskunni.
„Ég var í sveit á Guðlaugs-
stöðum árið '99 - 2000 og er
búin að vera hér af og til
síðan.“
Ástin hefur greinilega
blómstrað í sveitinni því
Katharina krækti í bónda-
soninn á bænum. Hann
heitir Guðmundur Halldór
Sigurðarson og er núna á
fullu í sauðburði, „hann sér
um lömbin en ég um
ísbjörninn."
En hefur hann fylgt þér á
skólagöngu þinni um
heiminn? „Nei, hann var
alltaf á íslandi í búskapnum
og svo vann hann sem
rafvirkiíReykjavík. Enhann
kom í heimsókn til Þýska-
lands og ég kom reglulega í
heimsókn til íslands og þetta
gekk ágætlega.“
Katharina er menntuð
sem sagnfræðingur og bók-
menntafræðingur og stund-
aði nám í háskólum í
Freiburg, Oxford og á íslandi.
Núna á hún lögheimili á
Eiðsstöðum í Blöndudal en
sækir vinnu á Blönduósi.
„Það leggst mjög vel í mig að
taka við Hafíssetrinu. Þetta
er mjög spennandi og gott
tækifæri fyrir mig að spreyta
mig á þessu. Mér finnst þetta
áhugavert setur og krefjandi
að efla það og markaðs-
setja.“
Ráðstefna undirbúin
„I tilefni opnunar
Hafíssetursins núna stöndum
við fyrir ráðstefnu sem ber
heitið -Norðurslóðir, náttúra
og mannlíf,- og fer fram 31.
maí. Þarna verða margir
áhugaverðir fyrirlestrar um
hafísrannsóknir, loftslags-
breytingar, sjóleiðina norður
til Kína og fleira. Þór
Jakobsson veðurfræðingur
segir svo frá ferð sem hann
fór, á rannsóknarskipinu
Explorer til Austur Græn-
lands árið 2006, í nýrri
heimildarmynd eftir Svein
M. Sveinsson sem við
munum frumsýna. Svo í
lokin opnar Arnar Þór
Sævarsson bæjarstjóri á
Blönduósi Hafíssetrið form-
lega þetta árið“.
Björninn unninn
Hafíssetrið er staðsett í
Hildebrandshúsinu sem er
eitt af elstu húsum landsins.
Þar innan dyra skartar setrið
m.a. uppstoppuðum ísbirni
sem setur sterkan svip á
sýninguna.
-,,Já, það er smá saga af
því hvernig hann kom
hingað. Þannig var að Jóna
Fanney, fyrrverandi
bæjarstjóri, sat f kaffi heima
hjá sér með bæjarstjóra
Seltjarnarness og voru þau
að spjalla um daginn og
veginn. Spurði hún svona í
hálfkæringi hvort hann vissi
nokkuð um ísbjörn sem gæti
verið á sýningunni. Hann
gat nú ekki svarað því þá en
nokkrum dögum seinna
fékk Jóna tölvupóst frá
bæjarstjóranum og
skilaboðin voru einföld,
-Björninn er unninn-. Það
var gerður samningur við
eigandann og björninn fær
að standa á setrinu meðan
það er opið.“
Á setrinu eru gömlu
veðurmælingatækin sem
Grímur Gíslason notaði
þegar hann tók veðrið fyrir
Veðurstofuna á árum áður.
-„Veðurstofan ánafnaði
Blönduósbæ mælitækin og
við ætlum að gefa fólki kost á
því að sjá hvernig tækin
virka,“ segir Katharina að
lokum full tilhlökkunar til
sumarsins og spennandi
verkefna.
Arsenal aðdáendur__
Kynslóðir
saman á leik
/; s#* ■
mt
Við sögðum frá því í vetur
að Jónas Svavarsson forseti
Kiwaniskiúbbs Sauðárkróks
hefði orðið sextugur í
febrúar s.l. í afmælisgjöf frá
fjölskyldunni fékk hann ferð
á leik Arsenal - Reading í
London 19. apríl.
Með Jónasi í för voru
tengdasynir hans þrír, þeir
Gísli Sigurðsson, Ólafur Rafn
Ólafsson, og Rúnar Rúnarsson.
Og til að bæta hópinn fóru
þeir líka, Fannar Freyr sonur
Gísla og tengdapabbi Svavars,
Haraldur Hermannsson frá
Mói, 85 ára.
-Mér bauðst að fara með,
það var ekki hægt að neita því,
þetta var hin ágætasta ferð,
segir Haraldur. Aðspurður um
upplifun hans á leiknum svarar
Haraldur. - Hann var afspyrnu
illa leikinn af mótherjunum
þ.e. Reading. Leikurinn fór
3-0 fyrir Arsenal. Þarna var
geysilega mikið mannhaf, alveg
gígantískt, öðruvísi en maður á
að venjast hérna á Króknum.
Fylgist þú mikið með enska
boltanum?
-Jú, ég geri það svona nokkuð
en Arsenal er ekkert endilega
liðið mitt. Á svo sem ekkert
uppáhalds lið en ég fylgist með
íslendingunum, þegar Eiður
var í Englandi og svo Hermann
Hreiðars náttúrulega.
En hvað er verið að fást við
fyrir utan boltann?
-Ég er í varpinu núna út í
Fljótum. Þarf reyndar að
koma hingað upp á Krók í
sjúkraþjálfun.nuddogeinhverja
helvítis vitleysu. Maður er víst
að eldast. En maður reynir að
hoppa þangað til maður stingst
ofan í gröfina. En ég er á leiðinni
núna út í Fljót, segir Haraldur
að lokum og er greinilega ekki
af baki dottinn.