Feykir - 19.06.2008, Blaðsíða 4
4 Feylcir 24/2008
Frá Hrefnu Aradóttur
Tálgað úr grænni grein
- til sjávar, til sveita
21. júní til 5. júlí 2008
Velkomin á sýninguna mína
í Listmunahorni
Árbæjarsafns.
Sýningin opnar laugardaginn 21.
júní kl. 14.00 og verður síðan opin
frá 10 til 17 alla daga.
Verkin sem ég sýni eru tré-
skurðarverk unnin eftir gömlum
myndum. Verkin tileinka ég
foreldrum mínum.
Til sjávar, tileinka ég pabba mínum
Ara Bergþórssyni f. 1913 d. 1986,
en hann var sjómaður á Norðfirði
alla sína tíð. Eftir að hann kom í
land vann hann við net hjá Netagerð
Friðriks Vilhjálmssonar eins lengi og
starfsgeta hans leyfði. Sögurnar hans
af sjónum og myndir frá þeim tíma
eru kveikjan að verkum í minningu
hans.
Til sveita, tileinka ég mömmu
minni Guðlaugu Ingibjörgu Aðal-
steinsdóttur f. 1925 d. 1991, en hún
ólst upp á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal
sem er 397 m yfir sjávarmáli og
næstum eins langt frá sjó og nokkur
byggð er á íslandi. þó svo að hún
hafi sest að í Neskaupstað og búið
öll sín fullorðinsár við sjóinn þá
var sveitin henni alltaf kær. Myndir
sem tengjast Vaðbrekku og sögur
sem mamma sagði eru kveikjan að
verkum í minningu hennar.
Annað, einnig sýni ég jólasveina
sem hafa verið aðalframleiðslan mín
síðan 1997. Síðastliðin 4 ár hef ég
líka unnið fermingarstyttur og aðrar
tækifærisstyttur eftir myndum og
eru nokkrar þeirra einnig hér til
sýnis.
Allir velkomnir.
Hrefna Amdóttir
Steinunn Arnljótsdóttir skrifar
Samstarf leik- og
grunnskóla
Sfðastliðið haust fóru
Varmahlíðarskóli, sem er
grunnskóli, og leikskólinn
Birkilundur í Varmahlíð af
stað með skemmtilegt
samstarfsverkefni.
Markmiðið með því er að auka
gagnkvæm samskipti á milli
skólanna, m.a. til þess að
auðvelda börnunum flutning á
milli skólastiga.
Þetta verkefni er hugsað sem
þróunarverkefni í tvö ár og verður
komið í heimsókn í Birkilund.
Byrjað var með hefðbundinni
heimsókn 1. bekkjar í garðinn
við Birkilund í haust. Nokkru
síðar komu þau á náttfataball með
elstu börnum Birkilundar. Á degi
íslenskrar tungu kom 7. bekkur
og las fyrir leikskólabörnin. í lok
nóvember kom 3. bekkur ásamt
bekkjarkennara og tónlistarkenn-
ara og þau spiluðu og sungu
fyrir börnin á eldri deildinni og
leikskólabörnin sungu með þeim. I
endurmetið að
þeim tíma liðnum.
Verkefninu hefur
verið úthlutaður
styrkur úr sjóðnum
„Sáttmáli til sóknar
í skólamálum í
Skagafirði”. Verk-
efnið hefur gengið
út á það að fjölga
heimsóknum á milli
skólanna og auka
þannig félagsleg
samskipti á milli eldri og yngri barna
og gefa leikskólabörnunum kost á
að kynnast bæði húsnæði og kenn-
urum Varmahlíðarskóla.
Elstu leikskólabörnin hafa farið
í heimsókn í Varmahlíðarskóla í
matreiðslu hjá 5. bekk, tölvuver
með 2. bekk, smíðar með 9.
bekk, myndmennt með 7. bekk
og í bekkjarstofu til Birgittu,
umsjónarkennara 1. bekkjar. Þau
fóru einnig í íþróttir með 1., 2. og
3. bekk og í sund með 8. bekk.
Grunnskólabörnin hafa einnig
desember kom 4. bekkur og lék og
söng kvæðið um 10 litla jólasveina
fyrir börnin á yngri deildinni en
5. bekkur las frumsamdar sögur
fyrir börnin á eldri deildinni.
Á þorranum kom 6. bekkur og
söng þorralög og þau spiluðu
með á ýmis hljóðfæri. Rétt fyrir
páskana kom 7. bekkurinn aftur
og las fyrir leikskólabörnin, enda
voru þau að æfa sig fyrir stóru
upplestrarkeppnina. í apríl kom 2.
bekkur í heimsókn til að leika við
leikskólabörnin. Allar voru þessar
heimsóknir mjög skemmtilegar og
helsti gallinn sá hvað tíminn var
fljótur að líða.
í byrjun maí fóru elstu börn
Birkilundar og 1. og 2. bekkur
Varmahlíðarskóla saman í gönguferð
niður að Húseyjarkvísl, þar sem þau
sáu meðal annars nýfætt folald og
svo hrafnshreiður í klettum. Elstu
börnum Birkilundar var boðið
á lokaæfmgu fyrir árshátíð 1.-6.
bekkjar Varmahlíðarskóla og 1.
bekk var boðið á lokaæfingu elstu
barna Birkilundar á leikriti um
Maximús, sem var lokaverkefni
þeirra í skólahópsvinnunni.
Allir þeir kennarar í Varma-
hlíðarskóla sem leitað hefúr verið til
hafa verið mjög jákvæðir. Vel hefur
verið staðið að því að taka á móti
leikskólabörnunum og heimsóknir
í leikskólann hafa einnig verið
vel undirbúnar. Þetta hefúr verið
mjög skemmtilegt og við erum
sannfærð um að börnin, sem eru
að ljúka leikskólagöngu sinni í
vor, komi til með að njóta þess við
upphaf grunnskólagöngu að vera
orðin kunnug bæði húsakynnum,
nemendum og kennurum skólans.
Tveir nemar í leikskólafræðum við
HA skrifuðu í vetur lokaritgerð
um samstarf leik- og grunnskóla.
Leituðu þær m.a. eftir efni í
þá ritgerð hjá þeim kennurum
við leik- og grunnskólann í
Varmahlíð sem staðið hafa að þessu
samstarfsverkefni. Er ánægjulegt að
okkar viðfangsefni hafi þannig vakið
áhuga utanaðkomandi aðila.
f.h. samstarfshópsins
Steinunn Arnljótsdóttir
leikskólastjóri.
Þjórtustuauglýsingar
Pjonustuauc
Bólsfrun
Gunnars
Leifssonar
Lækjargötu 3 530 Hvammstanga
Sími: 451 2367 / 865 2103 Netfang: gl@simnet.is
IIII III
II III* II
Plöntusala
kl. 13-18 alla daga
Laugarmýri ©453 8036/898 8036
SÉRSMÍÐI Á ELDHÚSUM,
SKÁPUM, INNIHURDUM,
0G ÖÐRUM SÉRHÖNNUDUM trésmiðjan
INNRÉTTINGUM
B0RGARMÝR11 550 SAUDARKRÚKI SIMI453 5170 tborg@tborg.is
Öll almenn jarðvinna
Flutningar og kranavinna
Allt verk og f lutningar ehf.
HVAMMSTANGA © 897 6597 / 895 2052
ÞJONUSTUAUGLYSING I FEYKI
MARG BORGARSIG!
Hafðu samband
© 455 7171
Þú hefur alltaf góða
ástæðu til að heimsækja
Norðurland vestra!
Á..
DOFINNI
20. JÚNÍ
Fimmtarþraut UM5S:: Sauðárkrókur
21. JÚNÍ
Knattspyrna á Króknum. M.fl. kvenna - l.deild,
Tindastóll - Höttur kl. 16:00 :: Sauðárkrókur
21. JÚNÍ
Norðvesturþrenna:: Blönduós
20.-22. JÚN(
Jónsmessuhátíð:: Hofsós
22. JÚNÍ
Hóladómkirkja, messa kl. 11:00:: Hólar
22. JÚNÍ
Tónleikar, kl. 14:00. Söngnemar úr Garðabæ flytja
Sabat Mater eftir Pergolesi undir stjórn Guðrúnar
Jóhönnu Jónsdóttur:: Hólar
23. JÚNÍ
Knattspyrna á Króknum. M.fl. karla - 2.deild,
Tindastóll - Hvöt, kl. 20:00:: Sauðárkrókur
24. JÚNÍ
Knattspyrna á Króknum. M.fl. kvenna - l.deild,
Tindastóll - Völsungur, kl. 20:00:: Sauðárkrókur.