Feykir - 19.06.2008, Page 5
24/2008 Feykir 5
Þaó er einhver rómantískur blær yfir nafni og staósetningu
veitingastaóarins Viö árbakkann á Blönduósi, en staöinn eiga og reka
hjónin Erla Evensen og Guðmundur Haraldsson.
Fyrirtæki vikunnar
Við árbakkann á Blönduósi
Listamenn sem halda sýningar skilja gjarnan eftireina mynd.
Barnabarn þeirra hjóna heillaði blaðakonu upp úrskónum.
Staðsetning veitinga-
staöarins er skemmtileg en
hann stendur uppi á hól og
blasir við er keyrt er
gegnum bæinn. Ekki er
útsýni út um glugga
staðarins verra og segja
þau hjón að á þeim nfu
árum sem staðurinn hefur
verið rekinn hafi þau
eignast stóran hóp
fastakúnna sem komi aftur
og aftur.
-Við erum að reka hér fyrst
og fremst kaffihús með gott
kaffi. Það hefur oft verið nefnt
við okkur að við séu eini alvöru
kaffistaðurinn sem hægt sér að
stoppa á þegar keyrt er milli
Akureyrar og Reykjavíkur. Við
höfum því mikinn metnað
fyrir okkar kaffi og leggjum
upp með að gera vel. Þá eru
terturnar okkar margar hverjar
orðnar vinsælar og eins höfum
við súpu dagsins, segir Erla.
Við árbakkann var opnaður
fyrst þann 4. júní 1999 en áður
höfðu þau hjón lagst í gagngerar
endurbætur á húsnæðinu.
Þetta var einhver skemmtileg
hugmynd sem kviknaði og
varð síðar að raunveruleika.
Guðmundur sér um íþróttahús,
sundlaug og skóla sem er eitt
starf, svo hann hefúr alltafverið
í fúllri vinnu annars staðar á
meðan ég hef þá meira staðið
vaktina hér, útskýrir Erla.
Eins og svo oft þegar
bryddað er upp á einhverju
nýju taldi fólk þau hjón hálf
klikkuð þegar framkvæmdir
hófust fyrir rúmum níu árum
síðan og flestir spáðu því að
þau yrðu fljót að fara á hausinn
með þetta. -En allt tókst þetta
nú samt með mikilli bindingu
og viðveru af okkar hálfú. Við
vorum svo heppin að halda
sama mannskap í vinnu hjá
okkur þrjú fyrstu árin auk þess
sem börnin okkar voru með
okkur í þessu. Síðan gerist það
að unga fólkið fer í burtu og
það hefur reynst erfitt að fá fólk
sem nennir að vinna svona
vinnu.
Fyrstu árin var líka rekinn
bar í húsinu en þau segjast
eiginlega alveg vera hætt
þannig rekstri. - Við erum
meira í að sinna þessu daglega
auk þess sem við höfúm hér
veisluþjónustu og höfum haft
mötuneyti fyrir skólann sl. 3
ár. Við sendum mat yfir á
skóladagheimilið en aðrir
koma annars bara yfir og borða
hér uppi á loftinu hjá okkur.
Það kemur því mikið líf í húsið
og off nötrar milliloftið
hreinlega þegar fjörið er sem
mest, segir Erla og Guðmundur
heldur áfram; -Síðan höfum
við alla tíð lagt upp með að
hafa hér í húsinu skemmtilegar
myndlistarsýningar og gerir
fólk hreinlega ráð fyrir því á
sumrin að geta komið við,
fengið sér kaffibolla, skoðað
skemmtilega sýningu og jafnvel
keypt sér mynd. Það hafa
margir listamenn verið að selja
vel hérna hjá okkur, það er ef
verkin eru á viðráðanlegu
verði. Síðan skilja þeir off eftir
eina mynd í þakklætisskyni
fyrir aðstöðuna.
Sumarið í sumar er engin
undantekning þegar kemur að
skemmtilegum uppákomum.
Nú um miðjan júní var opnuð
myndlistasýning Kristínar
Guðbrandsdóttur en hún sýnir
22 vatnslitamyndir (þið á
Sauðárkróki þekkið hana) og
um miðjan júlí opnar sýning
Auðar Ingu Ingvarsdóttur
myndlistarnema við Glasgow
School of Art en hún sýnir olíu
og akrílverk. Á Húnavöku
verður að venju boðið upp á
lifandi tónlist og í september
er síðan von á pólsk-íslensku
jassbandi en Menningarráð
Norðurlands vestra hefur styrkt
tónleika bandsins hér á landi.
Gaman að segja frá að í með
bandinu spilar sonur þeirra
hjóna, Haraldur Ægir.
Það er ljóst að enginn ætti
að verða svikinn af því að koma
við á Árbakkanum á Blönduósi,
fá sér ljúffengan kaffibolla og
jafnvel splæsa í tertusneið en
kökurnar hennar Erlu eru fyrir
löngu orðnar landsþekktar.
Fara þar fremstar meðal
jafningja draumtertan og
ostakökurnar sem hreinlega
bráðna í munni.
Veiðihornið___________________
Veiðisvæði Flókadals-
vatns, Rókadalsár neðri
og Hópsvatns í Rjótum
Hvar: Fljótum.
Fyrir hverja: Tilvalið fyrir alla
fjölskylduna.
Hvað veiðist: Bleikja og urriði
Veiðivon: Mikil, góð í bleikju
og urriða þó nokkur í laxi þegar
kemurfram íjúlí.
Á hvað: Maðk spún og flugu.
Besti staðurinn: Mesta veiðivon
í Dælisós.
Aðgengi á bíl: Hægt er að keyra
á bíl að veiðistöðum.
Veiðileyfi: Veiðileyfi er hægt
að fá keypt í Skagfirðingabúð,
Veiðarfæradeild.
Kostar: Verð frá kr. 3000,-
Gistimöguleikar: Hægt að
tjalda, einnig er bændagisting í
nágrenninu.
Annað: Bátar geta fylgt með
ef allar stengur eru teknar á
vötnunum.
Veiðisaga: Veiði fyrstu tvo
dagana var 43 bleikjur og 3
urriðar.