Feykir - 19.06.2008, Page 9
24/2008 Feykir 9
Hestaumfjöllun Feykis
Úrtaka fyrir Landsmót
Úrtaka hestamanna-
félaganna Þyts og Neista
í Húnavatnssýslum
fyrir Landsmót 2008
fór fram 7. júní s.l. á
Kirkjuhvammsvelli við
Hvammstanga.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Hestamannafélagið
Þytur
A- FLOKKUR
1. Johnny frá Hala og Svavar
Örn Hreiðarsson eink. 8,52
2. Eldurfrá Sauðadalsá og
Fanney Dögg Indriðadóttir
eink. 8,41
B-FLOKKUR
1. Skáti frá Skáney og ísólfur
Líndal Þórisson eink. 8,49
2. Akkurfrá Brautarholti og
Tryggvi Björnsson eink. 8,46
UNGMENNAFLOKKUR
1. Helga Una Björnsdóttir og
Gammurfrá Steinnesi eink.
8,19
2. Helga Rós Níelsdóttir og
Villimey frá Snjallsteinshöfða
1 eink. 7,88
UNGLINGAFLOKKUR
1. Rakel Rún Garðarsdóttir og
Landerfrá Bergsstöðum eink.
8,13
2. Aðalheiður Einarsdóttir og
Moli frá Reykjum eink. 7,97
BARNAFLOKKUR
1. Róbert Arnar Sigurðsson
og Kjarnorka frá Fremri-Fitjum
eink. 7,44
Hestamannafélagið
Neisti
A - FLOKKUR:
Birta frá Flögu 6v. /knapi
Helga Una / einkunn 8,18
Fregn frá Gýgjarhóli 7v. /
knapi:Ólafur Magnússon/
einkunn 7,86
B - FLOKKUR:
Gáski frá Sveinsstöðum 10v/
knapi:Ólafur Magnússon/
einkunn 8,49
Gola frá Leysingjastöðum
8v/ knapi:Þórir ísólfsson /
einkunn 8,19
UNGMENNAFLOKKUR:
Snótfrá Sveinsstöðum 6v/
knapi:Anna F. Jonasson /
einkunn 7,86
UNGLINGAFLOKKUR:
Móheiður frá Helguhvammi
II 8v / knapi: Elín Hulda
Harðardóttir / einkunn 8,05
Kládíus frá Kollaleiru 7v /
knapi: Harpa Birgisdóttir /
einkunn 8,04
BARNAFLOKKUR:
Þróttur frá Húsavík 12v /
knapi: Aron Orri Tryggvason /
meðaleinkunn 8,07
Leiðrétting
í síðasta Feyki gerði blaða-
maður sig sekan um
mistök við upptalningu á
landsmótshestum úr Skaga-
firði og leiðréttist það hér
með. í B FLOKKI fer hestur
númer eitt:
Mette Mannseth
/ Ösp frá Minni-Reykjum
8,27
Hestamannafélagið Stígandi
hefúr stækkað að umfangi
síðustu misseri og telja nú
yfir tvöhundruð og fimmtíu
manns. Þau félög sem það
gera, hafa rétt tO þess að
senda þrjá hesta á Landsmót.
Blaðamaður Feykis áttaði sig
ekki á því hversu fjölmennir
þeir eru og hafði þriðja
hest á Landsmót ekki með.
Leiðréttist það hér með.
A-FLOKKUR
Páll Bjarki Pálsson
/ Boði frá Flugumýri 8,32
B-FLOKKUR
Björn Fr. Jónsson
/ Ábóti frá Vatnsleysu 8,21
UNGMENNAFLOKKUR
Heiða Guðbjörg
Sigtryggsdóttir / Blanda frá
Þorsteinsstöðum 7,26
UNGLINGAFLOKKUR
Elinborg Bessadóttir
/ Meistari frá Hofsstaðaseli
7,66
BARNAFLOKKUR
Ásdís Ósk Elvarsdóttir
/ Dreki frá Syðra-Skörðugili
8,07
Málfríður Finnbogadóttir er markaðs- og
kynningarfulltrúi Hólaskóla, Háskólans á Hólum
auk þess sem Málfríóur sér um kynningarmál
fyrir dómkirkjuna á Hólum. Aó venju veróur
glæsileg sumardagskrá í dómkirkjunni og engin
fróóari um hana en Málfríður.
Menningarveisla
á Hólum í sumar
Heil og sæl Málfríður, hvað er
nú helst að frétta frá Hólastað?
-Það er kominn sumarbragur á
Hólum - heyskapur er hafinn
og ferðamenn komnir á stjá.
Mannlífið setur sterkan svip á
Hólastað og eru sumamemendur
og fræðimenn hluti af því. Hópur
nemenda er á sumamámskeiði
í hrossarækt og annar í
vettvangsskóla í fornleifafræði.
Að auki eru erlendir fræðimenn
að vinna að rannsóknum f
samvinnu við fiskeldis- og
fiskalíffræðideild skólans.
En af þér sjálfri? -Allt gott af mér að
frétta, fór í frí til Parísar um daginn
og skrapp með eiginmanninum
í Gvendarskál á laugardaginn og
skrifuðum við í gestabókina. Annars
er nóg að gera í menningarstarfinu
á Hólum. Ég sýni gjaman einleikinn
minn um konumar á Hólum -
Teboð Hólamaddömunnar - ef
óskað er. Annars er ég að Ijúka við
meistararitgerðímenningarstjómun
og hef því nóg að gera.
Er spennandi sumardagskrá í
Hóladómkirkju? -Já það má með
sanni segja það. Á sumardag-
skránni eru fjórtán tónleikar með
mjög fjölbreyttri tónlist. Um helgina
voru hjá okkur frábærir djassarar
frá Ástralíu og um næstu helgi
flytja söngnemar Stabat Mater
undir stjórn Guðrúnar Jóhönnu
Jónsdóttur. Við bjóðum uppá kóra,
einleiki og alls konar samleik og
samsöng. Meðal þeirra þekktari
er kór Baselkirkjunnar í Moskvu.
Að auki eru messur alla sunnu-
daga og bænastundir aðra daga
vikunnar.
Hvað með Hólahátið? Er komin
mynd á hana þetta árið?
-Hólahátíð verður 15. - 17.
ágúst og er að fá á sig glæsilega
mynd. Sú hefð hefur skapast að
byrja á föstudagskvöldi með
ráðstefnu eða málþingi og í þetta
sinn verður það um kirkjutextfl
með áherslu á Hólatextílinn. Á
laugardeginum verður helgiganga
í Gvendarskál og pílagrímagöngur
sem hafa notið aukinna vinsælda.
Á sunnudeginum verða síðan
hátíðarmessa og hátíðarsamkoma.
Fljótlega getum við upplýst hver
predikar í messunni og hver verður
ræðumaðurdagsins.
Geta þeir sem sækja Hóla heim f
sumar fengið að skoða kirkjuna
og staðinn? -Já, að sjálfsögðu.
Hóladómkirkja er opin frá 10 - 18
og Stokkastofan í Auðunarstofu
á sama tíma. Nýibær er opinn
frá 10 á morgnana. Einnig eru
nokkrar sýningar sem gestir
geta skoðað - biskupasýning
í íþróttahúsinu, sýning um
Theodór Arnbjörnsson hrossa-
ræktarráðunaut, í Auðunarstofu
er sýning á verkfærum sem
notuð voru við smíði stofunnar og
margmiðlunarefni um Hólaprentið.
Svo er auðvitað ómissandi að
skoða hvað er um að vera f
fomleifauppgreftrinum. Við höfum
bæklinga sem leiðbeina fólki um
staðinn og aðra um húsin. Boðið
er uppá leiðsögn fyrir hópa sem
panta fyrirfram f sfma 8996303.
Eitthvað að lokum? -Sumarið
leggst vel í mig og margt
skemmtilegt framundan sem nærir
sálina.
> >