Feykir - 04.12.2008, Blaðsíða 4
4 Feykir 46/2008
Sögufélag Skagfírðinga
Skagfirðingabók komin út
Skagfirðingabók,
rit Sögufélags
Skagfirðinga, er
nýkomin út. Þetta er
31. hefti bókarinnar
sem komið hefur út
með nokkrum hléum
sfðan árið 1966 þegar
þnr Skagfirðingar, þeir
Kristmundur Bjarnason,
Sigurjón Björnsson og
Hannes Pétursson hófu
útgáfu ritsins. Gáfu þeir
út á eigin reikning fimm
fyrstu heftin en afhentu
síðan Sögufélaginu
útgáfuna. Bókin hefur á
þessum rúmlega fjórum
áratugum flutt gnðarmikið
skagfirskt efni, fróðleik og
sögu á talsvert yfir 6000
blaðsíðum.
í tilefni þess að út voru
komin 30 hefti ákvað ritstjórn
bókarinnar að gera nokkur
skil í útgáfunni og breyta
formi hennar. Brotið var
stækkað lítið eitt, textinn
settur í tvídálk og myndefni
aukið verulega, auk þess sem
bókin er nú að að mestu leyti
litprentuð. Þá kemur hún nú
bundin í harðspjöld.
Efni bókarinnar er fjöl-
breytt að vanda og áhugavert.
Hún hefst á grein eft ir Sigurjón
Björnsson prófessor um
æviatriði og skáldsagnagerð
Guðrúnar frá Lundi. Alfreð
Jónsson frá Reykjarhóli í
Fljótum ritar endurminningar
frá mannskaðaveðrinu á
Nýfundnalandsmiðum
þegar hann var þar á
togaranum Norðlendingi.
Hannes Pétursson skáld
segir frá Húsafellssteini
í Goðdalakirkjugarði
og skrifar auk þess þrjá
smápistla. Guðný Zoéga
fornleifafræðingur skýrir
frá fornleifarannsóknum í
Keldudal og Árni Gunnarsson
frá Reykjúm á Reykjaströnd
Qallar um Hesta-Bjarna
frá Reykjum í Hjaltadal
sem tvímælalaust var
einhver kunnasti hesta- og
tamningamaður á íslandi á
fyrri hluta 20. aldar. Markús
Sigurjónsson frá Reykjarhóli
segir frá mæðiveikivörslu
á Vatnsskarði laust fyrir
1940. Jón Árni Friðjónsson
kennari hugar að örnefnum
í Kolbeinsdal tengdum Þórði
hreðu. Gunnar Sigurjónsson
frá Skefilsstöðum rekur
æskuminningu frá
frostavetrinum 1918 í Hóla-
koti á Reykjaströnd. Helga
Bjarnadóttir skólastjóri
ritar minningar frá námi
og kennslustörfum. Pétur
Jóhannsson frá Glæsibæ skráir
minningar ömmu sinnar úr
Sléttuhlíð ogHrolleifsdal í grein
sem hann nefnir Hún amma
mín það sagði mér. Bókinni
lýkur á grein Sigurjóns Páls
ísakssonar, Jarðfundnir gripir
frá Kálfsstöðum í Hjaltadal.
Allt eru þetta áhugaverðar
greinar, margar afbragðsgóðar
og skemmtilegar. Vel virðist
hafa tekist til um útlit
bókarinnar og uppsetningu
og er hún höfundum og
útgefanda til sóma.
Ritstjórn skipa Gísli
Magnússon, Hjalti Pálsson,
Sigurjón Páll ísaksson og Sölvi
Sveinsson.
Ný bók Axels Þorsteinssonar
frá Litlu Brekku
Heim með
sunnanblænum
í Jólablaöi Feykis er
birt saga eftir Axel
Þorsteinsson sem ber
heitið Þegar tröllið
kom. Ekki kom fram í
kynningu sögunnar að hún
er stytting af sögunni Jólin
hans afa, þegar tröllið kom
og birtist í nýútkominni bók
sem ber heitið Heim með
sunnanblænum. Það kann
að hafa valdið lesendum
nokkrum heilabrotum að
hvergi var minnst á tröllið í
Jólablaðsútgáfunni en það
er vegna þess að sú saga var
tröllaskert í styttingunni.
Heim með sunnanblænum
er gefin út af börnum höfundar
en umsjón með útgáfu hafði
Hjalti Pálsson. Um höfund
bókarinnar og bókina sjálfa,
hefur Hjalti ritað á bakhlið
hennar eftirfarandi:
Höfúndur þessarar bókar
er Axel Þorsteinsson bóndi í
Litlubrekku á Höfðaströnd á
árunum 1953 - 1987. Hann
fæddist á Vatni á Höfðaströnd
28. október 1927 og ólst þar
upp við störf til sjós og lands.
En hann markaði sér snemma
ævibraut sem beindist á götu
lífs og gróðurmoldar og sagði
eitt sinn: „Ég held ég hafi alltaf
verið með bóndann í mér. Mig
langaði ekki til neins annars“.
Bókin skiptist í þrjá
kafla: Kvæði, lausavísur og
þætti sem hvort tveggja eru
æskuminningar og gamlar
frásagnir úr næsta umhverfi.
Þetta er hluti, eða eins konar
úrval, þess sem Axel hefur
skrifað og samið á langri ævi.
Texti hans allur er mótaður af
sýn manns sem á sér djúpar
rætur í umhverfi sínu, fer um
það nærfærnum höndum og
umgengst samferðamenn af
hlýju og virðingu.
Hægt er að nálgast
bókina hjá eftirfarandi
aðilum: KS Skagfirðingabúð
og Varmahlíð, Pálma
Rögnvaldssyni Hofsósi,
Sögufélagi Skagfirðinga og
Dísu Axelsdóttur Hólum,
disa@holar.is, s- 8668503.
( ÁSKORENDAPENNINN 1
Haddý á Hvalshöfða skrifar úr Húnaþingi vestra
Augnablikió er núna en ekki seinna
Ég ætla ekki að skrifa um
kreppu eða bankahrun.
Eða hvort ísland sé
draumalandið eða hvort að
draumurinn hafi snúist f
martröð.
ísland þetta fagra land
sé enn eitt landið sem sé
ofurselt spillingu, éstjórn
og ofbeldi.
Það er verkefni mér meiri
manna.
Stundum velti ég því fyrir
mér hvort þetta jólatilstand
sé gjörsamlega komið úr
böndunum og séu í alvörunni
orðið að hátíð kaupmanna
og bankanna í stað þess
að vera hátíð Ijóss og friðar.
Þessu vilja sumir halda fram.
Þegar ég hugsa til baka í
bamæskuna koma upp í
hugann meðal margs annars
myndirfrá liðnum jólum.
Baksturinn á aðventunni,
hreingerningarnar, ferðin
í Kaupfélagið á Borðeyri
að kaupa jólagjafirnar á
jeppanum hans Trausta
frænda, því að við áttum
engan bil, skúffa af kóki í
gleri sem var geymt uppi
á háalofti, ilmurinn af
jólaeplunum sem voru geymd
á sama stað, svo jólaskrautið
sem foreldrarnir settu upp
þegarvið krakkarnirvorum
farin að sofa á Þorláksmessu.
Og að sjálfsögðu gamla
góða gervijólatréð sem var
svo á aðfangadag skreytt
með glerkúlum sem hver og
ein varvafinn inn í pappír
og voru geymdar í skókassa
í efriskápunum austur í
herbergi eins og sagt var.
Aðfangadagur með sinni
spennu og biðin eftir því að
blessuð klukkan drattaðist
áfram og yrði sex. Biðin eftir
að Trausti kæmi á jeppanum
sínum og borðaði með
okkurjólamatinn, messan í
útvarpinu og loksins, loksins
kom svo hin langþráða
stund þegar jólagjafirnar
voru opnaðar. Svo að lokum
þegar var skriðið upp í rúm
í nýjum náttfötum undir
rennisléttum straujuðum
rúmfötum eftir að hafa raðað
í sig kökum og kakói við
eldhúsborðið sem var líka
komið íjólafötin. Dúkað með
hvíta damask dúknum og
kerti í gamla þriggja arma
kertastjakanum sem alltaf
hafði verið til.
Núna velti ég því fyrir mér
í hverju jólastemningin sé
fólgin í dag?
Égveitaðminningar
minna barna verða nú
líklega ekki um rennislétt
rúmföt eða ofurbakstur eða
hreingemingu ársins fyrir
jólin.
En ég vona mjög innilega
að þær verði ekki um
ergelsi við að finna stæði
við verslunarmiðstöðvar
höfuðborgarinnar. pirring
yfir að vera ekki búin að
koma skikki á geymsluna
eða angur og áhyggjur yfir
skuldahala eftir jólagjafa
flippið.
Ég hef þá trú að flestar
minningar okkar séu vegna
frávika við hversdagsleikann.
Þess vegna leyfi ég mér að
draga þá ályktun að nú sem
aldrei fyrr séu jólin og eigi
að vera hátíð Ijóss og friðar
í margfaldri merkingu þeirra
orða.
í hraða nútímans, tímaleysi
og streitu sé það orðið
okkur afar mikilvægt að
nota þessa hátíð sem
ástæðu til að stoppa við og
njóta samvista við vini og
fjölskyldu og ekki síst að
eiga stund með sjálfum sér.
Búa til frávik og fá smá frið
íhugann og sálina, Ijós
samveru og samskipta í
hversdagsleikann.
Láta verða af því að spila
við kallinn þó hann sé
ógeðslega tapsár, kitla
krakkana og kíkja í kaffi hjá
vinafólkinu.
Vinur minn sagði í fyna
að hann þyrfti svei mér
þá að fara á eitthvað
námskeið sem var kallað
"Stoppið tímann’’ og kostaði
örugglega a.m.k. lOþúsund
kall. Allur hans frftfmi væri
farinn að fara í keyrslu með
unglinginn á íþróttamót og
æfingar og litlu krakkana í
tómstundastarf, afmælisboð
oghittog þetta. Égbauðst
strax til að hirða af honum
peninginn ef hann segði mér
frá því hvað væri notalegasta
minningin sem hann ætti
frá því hann var bam. Hann
varð dálítið undarlegurá
svipinn og sagði svo eftir
smá umhugsun. “Það var
þegarpabbi varaðleggja
sig eftir matinn og ég var að
brölta í dívaninum fyrir ofan
hann eða þegar ég paufaðist
í fjárhúsunum með afa.”
Mín notalegasta minning
er þegar mamma var inni
í stofu að prjóna og ég var
einhversstaðar í kring að
leika mér, eða að rölta með
pabba heim úrfjósinu á
kvöldin hangandi íhaidinu á
mjólkurbrúsanum glápandi
upp í stjörnubjartan
vetrarhimininn.
Semsagt ekki dýrar gjafir
heldursamvera og nálægð
við þá sem stóðu hjarta
mínu næst.
Njótum hátíðanna saman,
og allra þessara litlu hluta.
Höfum gaman af því að
velja gjöf fyrir þá sem okkur
finnstvænt um.skrifum
hlýja kveðju á jólakortin þó
svo að jólakortið sé kannski
einu samskipti ársins við
þann einstaklings, brosum
til hvers annars og drögum
svo bara djúpt andann ef
við finnum ekki stæði hjá
Smáralindinni. Augnablikið
ernúna en ekki seinna.
Megið þið eiga ánægjulega
aðventu ogjólahátíð.
Með bestu kveðju úr
firðinum fagra
Ég skora á yngismær
sem heitir Guðrún ósk
Steinbjörnsdóttir og býrá
Hvammstanga að koma
með næsta pistil.