Feykir


Feykir - 04.12.2008, Page 6

Feykir - 04.12.2008, Page 6
6 Feykir 46/2008 Góður dagur í miðbænum Það var góó stemning í miöbæ Sauöárkróks sl. laugardag er Ijósin voru kveikt á jólatré bæjarins. Tréö var aó venju gjöf frá vinabæ Skagafjaröar, Kongsberg í Noregi. Smáar sem stórar uppákomur voru um allan bæ í tilefni dagsins og heimafólk lét slæmt veöur ekki skemma stemninguna heldur klæddi sig vel og naut dagsins. Jólaljósin tendruö í Minjahúsinu buðu Maddömurnar upp á kjötsúpu og í næsta húsi stóðu þær fyrir jólamarkaði þar sem gestir og gangandi gátu verslað ýmsan varning auk þess sem þær buðu upp á jólate og konfekt. Maddömurnar eru skipaðar hópi kvenna sem vinna í Árskóla en konurnar voru orðnar svo leiðar á krepputali og neikvæðni í þjóðfélaginu að þær ákváðu að láta gott af sér leiða og dreifa gleði um bæinn. Það tókst svo sannarlega og var staðsetningin góð og nutu bæjarbúar þess að skoða Minjahúsið á meðan þeir gæddu sér á kjötsúpunni. Jólasveinar og Hara-systur I blómabúðunum var boðið upp á kakó, te og piparkökur og í Landsbankanum voru skátar að venju og buðu upp á kakó og kökur. í safnahúsinu opnaði Lafleur myndlistasýningu og á torginu bauð Ingimar Pálsson upp á ferð í hestvagni. Þá gátu bæjarbúar borið ísbjörninn augum í Náttúrustofu Norður- lands vestra. Á pósthúströppunum söng Carmina hópurinn fyrir gesti og að loknu ávarpi sveitarstjóra voru ljósin tendruðu á trénu og jólasveinar dönsuðu í kringum tréð og gáfu börnunum mandarínur. Eftir jólaballið fóru margir á Abba skemmtun á Mælifelli með Spútnik og Hara-systrum og aðrir fóru í kaffihlaðborð í bakaríinu eða bara heim að njóta dagsins. Stelpurnar úrÁrskóla stóðu vaktina við söluborðin og seldu líkt og enginn væri morgundagurinn. Edda og Guðný gáfu jólate og konfekt. Hara systur fengu stelpurnar með sér a dansgólfið. Kristrún var fín í tilefni dagsins. Ingimar Páls bauð á rúntinn. ABBA eru æðl og það erswoooo gaman. Vá hvað Stjáni er flottur, nei ætli það hafí ekki verið Hara systur sem voru svona flottar. Carminahópurinn söng nokkur lög. Flott þrenning.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.