Feykir


Feykir - 04.12.2008, Page 8

Feykir - 04.12.2008, Page 8
8 Feykir 46/2008 keppninnar í ár var framtíðin og áttu liðin að vinna út frá þeirri hugmynd. Sýna þurfti vinnuferli og myndir á flíkum, hár og förðun, auk útskýringa, hvaða efni er verið að nýta og hvaða hugmynd er á bakvið flíkina. Eftir undankeppnina sem haldin var heima fengu stelpurnar það verkefni að sauma kjólinn og þróa hugmyndina að förðuninni betur fyrir aðalkeppnina. Verkefnið kölluðu þær Fram- tíðin er heimsendir. -Við hugsuðum svo langt fram í tímann að veröldin er komin að endimörkum. Módelið sýnir að mannkynið hefur tekið stökkbreytingu. Gríman í andlitinu er úr gifsi og sýnir að hún er að afmyndast. Sandur á löppunum á að sýna að hún er að grotna niður. Við settum kamba á bakið á henni sem sýnir stökkbreytinguna sem hún hefur orðið fyrir. Fyrst gerðum við til gifskamba, bjuggum svo til mót með þeim og notuðum svo pappamassa í endanlegu kambana. Á höfðinu hafði hún gifskórónu. Önnur hliðin á henni er eins og hún sé að hrynja niður og skemmast. Þetta táknar að einu sinni var hún fín og falleg áður en hún byrjaði að afmyndast. Hvernig upplifun var það að keppa? -Alveg stórkostleg upplifun. Það var smá stress í sumum og sérstaklega með glóstykkið. Það átti að notast í förðuninni en vildi ekki opnast og einungis tuttugu sekúndur eftir af tímanum, en klukkan sex þurftu allir að hætta. En sem betur fer náðist þetta á endanum. Svo jókst stressið heldur þegar atriðið okkar var kynnt vitlaust. Það var þannig að atriði sem var þar næst á undan okkur datt út en kynningin á því hélst áfram inni. Því fór það þannig að kynningin á okkar atriði var röng og átti alls ekki við frekar en þau atriði sem kom á eftir sem líka voru vitlaust kynnt. Hver voru verðlaunin? -Verðlaunin voru margvísleg. Við fáum að heimsækja förðunardeild RÚV og hitta þar menntaða förðunarfræðinga. Bók um förðun sem er nýkomin út, make up tösku, maskara og bol frá Gosh, út að borða á kjúklingastað, snakk og að endingu stóra viðurkenningu í myndaramma. Hvað er svo framundan? -Þetta var ofsalega gaman og stefnan er að taka þátt í body paint í Fjölbraut á næsta ári. „En þá þurfa þær að finna sér annað módel“, segir Ólöf Elísabet og brosir. ÓlöfElísabet á endimörkum heimsendis. Sveinn Rúnar Gunnarsson tók þátt í rímnaflæðinu sem fulltrúifélagsmiðstöðvarinnar Friðar á Sauðárkróki. Sveinn Rúnar flutti atriðið sitt það vel að hann hlaut fyrsta sætið fyrir. Dabbi T, einn dómaranna hafði það á orði, að Sveinn væri mesta rapparaefni sem hann hefði séð lengi. Það voru fimmtán atriði alls í keppninni, allt strákar, en aðeins ein stelpa var þarna í bakröddunum. Atriðin voru dæmd eftir flæði, stíl og rími. Sveinn Rúnar samdi sjálfur atriðið sem hann flutti. -Það heitir Draumar og fjallar um drauma og líf drengs, segir Sveinn sem segist semja mikið af tónlist. -Ég sem allskonar tónlist, ekki bara rapp. Ég er einn að semja, er ekki í hljómsveit, spila mest á gítar en líka á trommur. Ég er að vinna í því að taka upp lög hjá Helga Sæmundi en hann vann einmitt rímnaflæðið árið 2002. Helgi er líka að leiðbeina okkur í tónlistarklúbbnum hjá Friði og er alveg magnaður. Hver voru verðlaunin fyrir fyrsta sætið? -Það var bikar, fimmtánþúsund króna úttekt Framtíöin er heimsendir Fyrstu verölaun fyrir föröun Þær Sunneva Jónsdóttir, tslandi í hárgreiðslu, förðun og Snæbjört Pálsdóttir, Herdís fatahönnun og gerðu það gott. Steinsdóttir og Elísabet Ólöf Aðalkeppnin fór fram í Ólafsdóttir tóku þátt í Stílnum, Kópavogi og fimmtíu og sjö keppni félagsmiðstöðva á hópar tóku þátt. Þema Sveinn Rúnar syngur sigurlagið. hjá Exodus, medalía, diskur með 32C, stúdíótímar held ég og rapptaktur sem Jóhann Dagur semur en hann er þekktur sem rapparinn Ofvirkni. Var eitthvað sérstakt við þitt atriði sem var öðruvísi en hinna keppendanna? -Kannski það að ég var sá eini sem var með buxurnar fyrir ofan rassinn. Mér finnst það ekki kúl að vera með glansandi píparaskoru. Fleiri söngkeppnir eru á döfinni hjá Sveini því hann ætlar að taka þátt í söngvakeppni Samfés sem fram fer á næstunni. -Þann 12. des verður forkeppni fyrir Skagafjörð í Árgarði. Sá sem kemst áfram þaðan keppir á Hvammstanga 23. janúar fyrir Norðurland og sá sem sigrar þar er komin í úrslitakeppnina sem verður fyrir sunnan 20.- 21. febrúar. Sveinn Rúnar tekur við fyrstu verðlaunum i Rímnaflæði. í nóvember var haldin í Kópavogi keppni á vegum Samfés, samtaka félagsmióstöóva víös vegar af landinu, þar sem ungt fólk á grunnskólaaldri leiddi saman hesta sína, annars vegar í Stílnum og hins vegar í rímnaflæöi. Unglingar gera þaö gott

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.