Feykir - 04.12.2008, Síða 9
46/2008 Feykir 9
( TÖLVUPÓSTURINN )
Menningarráó Noróurlands vestra úthlutaói í lok október
verkefnastyrkjum til fjölmargra aöila sem hafa eóa hyggjast setja
upp menningartengda atburói á Norðurlandi vestra. Alls fengu 33
aóilar styrki og var heildarupphæó þeirra 18.85 milljónir. Feykir
sendi styrkþegum spurningar í tölvupósti og forvitnaóist um hvaö
þeir hafa á prjónunum.
Dansaó á fáksspori
Árni Gunnarsson (annarfrá hægri) tekurvið styrk frá Menningarráði Norðuriands vestra.
íþróttafréttir
Tindastóll 70-96 KR
Stólarnir frábærir
í 25 mínútur
Ámi Gunnarsson er stjómar-
formaður Skottu kvikmyndafél-
ags. - Skotta kvikmyndafélag var
stofnað fyrirverkefnið í Austurdal,
og heitir í höfuðið á Ábæjarskottu
sem þekkt er í dalnum. Starfeemi
Skottu hefur verið mjög farsælt
þó einhverjir töldu í upphafi að
Ábæjarskotta myndi stnða okkur
á einhvem hátt.
Hvað nefnist verkefnið?
Verkefnið heitir "Dansað á
fáksspori" og er óbein tilvitnun
í Fáka hið ódauðlega kvæði
Einars Ben. "Sá drekkur hvern
gleðinnar dropa í grunn/ sem
dansar á fáksspori yfir grund"
Hverjir standa að verkefninu?
Þeir sem standa að verkefninu
eru Kvikmyndafélagið Skotta í
samvinnu við Spákonusetrið á
Skagaströnd eða réttara sagt
Spákonuarf ehf og Forsvar ehf
á Flvammstanga.
Hvers eðlis er verkefnið?
Verkefnið snýst um gerð fjögurra
til fimm þátta fyrir sjónvarp um
hestamenn og hestamenningu
á Norðurlandi vestra og upp-
setningu á efninu fyrir Netið.
Þættirnir snúast að hluta til
um Meistaradeild KS sem fram
fer í Reiðhöllinni Svaðastöðum
í vetur og byrjar í febrúar og
endar í apríl. Spákonurnar
á Dalvík spá fyrir um úrslit
en að auki verða tekin fyrir
þemu um hestamenninguna á
Norðurlandi vestra og teygir sú
umfjöllun síðan eins og vera
ber um heimsborgara anga
sína út fyrir landsteinana.
Er þetta þitt fyrsta verkefni á
þessum nótum?
Ég hef áður gert þrjár heim-
ildamyndir sem sýndar hafa
verið í sjónvarpi. í Austurdal
sem sýnd var í sjónvarpi á
Páskum 2005 en hún er orðin
nokkurs konar klassík. Hana
gerðum við saman ég, Ingimar
á Ytra-Skörðugili og Þorvarður
Björgúlfsson, kvikmyndagerða-
maður.
Aðra heimildarmynd gerði
ég sem fjallar um líf fólks í
flóttamannabúðum á Balkan-
skaga og heitir Að komast í
flugvél og var sýnd árið 2006.
Þessa mynd gerði ég einnig
með Þorvarði Björgúlfssyni.
Rauði krossinn notar hana til
sýninga m.a. á ráðstefnum
og námskeiðum á þeirra
vegum og þriðja myndin var
um íbúðalánasjóð og hún
var sýnd hjá Ingva Hrafni á
sjónvarpsstöðinni ÍNN. Skotta
er með tvær heimildamyndir í
vinnslu núna,sem heita "Kraftur"
og "Laufskálarétt" og fleiri
verkefni á fjármögnunarstigi.
Hvenær hefst verkefnið og
hvenær lýkur því?
Við erum byrjuð á verkefninu
og gerum ráð fyrir að því Ijúki
næsta vor. Búið er að gera
handrit og er það í skoðun hjá
á
Sjónvarpinu. Búið er að taka
upp nokkuó af efni og svo
hef ég verið að viða að mér
heimildum héðan og þaðan.
Hversu háa fjárhæð fékk
verkefnið frá Menningarráði
Norðurlands vestra?
Dansað á fáksspori fékk eina
milljón króna í styrk frá Menn-
ingarráði Norðurlands vestra.
Hversu miklu máli skiptir
það verkefnið að hafa fengið
úthlutað styrknum?
Styrkurinn skiptir miklu máli.
Hann gerir okkur kleyft að fara
af stað með verkefnið og er
einnig mikilvæg viðurkenning
fyrir okkur sem vonandi hjálpar
til við fjármögnun annarsstaðar
frá.
Eru önnur verkefni á
teikniborðinu?
Viðerumaðvinnaaðfjármögnun
á tveimur heimildamyndum
fyrir sjónvarp hér heima og
erlendis. Hvort af þeim verður
er of snemmt að segja til nú.
Einnig erum við að vinna að
mjög spennandi verkefni í
samvinnu við Sveitarfélagið
Skagafiörð og fleiri sem
gengur undir vinnuheitinu
"Location North" og snýst um
að kynna þennan landshluta
erlendis sem heppilegan
stað til kvikmyndatöku og
auglýsingagerðar.
Í5 ifl tTlenningarráð
m 11 Norðuriands vestra
Topplió KR sótti á
sunnudag heim lið
Tindastóls sem vermdi
þriója sæti deildarinnar. KR
án taps í deildinni, en
Stólarnir taplausir á
heimavelli. Gestirnir
byrjuöu inn á með Jason,
Fannar, Jakob, Jón Arnór
og Helga. Heimamenn
tefldu fram í byrjun þeim
Darrell, Svavari, ísaki, Allan
og svo fékk fyrirliðinn Helgi
Rafn að byrja.
Liðin byrjuðu leikinn rólega
sóknarlega, allavega var hittnin
nokkuð slök í upphafi leiks og
þegar fyrsti leikhlutinn var
hálfnaður stóð taflan í 6 - 6.
Siðan fór hittnin að skána og í
lok íjórðungsins munaði
tveimur stigum heimamönnum
í hag, 18 - 16. Stólarnir beittu
framan af maður á mann vörn
og gekk hún vel og náðu þá sex
stiga forskoti 13-7 sem þvingaði
Benna KR þjálfara til að taka
leikhlé. Eftir hléið breyttu
Stólarnir í svæðisvörn sem
hleypti skyttum KR-inga í gang
og á skömmum tíma komu þrír
þristar í röð frá þeim. Þristur frá
Allan Fall tryggði tveggja stiga
forskot að loknum fyrsta
fjórðungi eins og áður segir.
Helgi Rafn fór mikinn í skorinu
fyrir Tindastóll og var kominn
með átta stig. Jakob var kominn
með 6 stig fyrir gestina.
Stólarnir hófu annan leik-
hluta ágætlega og náðu aftur
smá forskoti, en KR kom svo til
baka og náði að jafna í stöðunni
26 - 26. Þá náðu heimamenn
góðum spretti og flest virtist
ganga upp hjá þeim og til að
mynda setti Svavar ævintýra-
legan þrist af færi sem Kiddi
Gun hefði verið stoltur af, en
hann var þekktur fyrir að skjóta
stundum rétt kominn yfir
miðju. Tindastólsmenn skor-
uðu 11 - 0 á gestina og byggðu
upp gott forskot fyrir hálfleik-
Tveir ungir Tindstælingar
hafa verið valdir til að æfa
með bestu unglingum
landsins í fótbolta.
Það er Arnar Skúli Atlason
sem valinn var til úrtaksæfinga
með U19 og Rakel Svala
inn. Stólarnir leiddu svo með tíu
stigum í pásunni á meðan
sóknarleikur KR-inga var á
köflum slakur, en varnarleikur
beggja liða var öflugur. Staðan
40 - 30 í hálfleik og heimamenn
gátu verið bjartsýnir fyrir seinni
hálfleikinn.
Stólarnir héldu svipuðu
forskoti framan af þriðja
leikhlutanum og eftir tæpar
fimm mínútur var staðan 52 -
45. Það voru þó kominn
greinileg vandræðamerki á leik
Hðsins því þeir höfðu mikið fyrir
hverri körfú og leikurinn var
nokkuð harður og dómarnir
leyfðu töluvert. KR náði svo
forystunni í stöðunni 53 - 54,
mest fyrir stórleik Jóns Arnórs,
en hann skoraði 12 stig í
leikLilutanum. Næstu mínút-
urnar var leikurinn í járnum, en
þristur frá Jóni Arnóri tryggði
KR tveggja stiga forskot og einn
leikhluti eftir. Staðan 60 - 62 og
miki] spenna enn í leiknum.
Ef heimamenn hafi gert sér
vonir um að hrella KR-inga
áffam þá hvarf sú von á fyrstu
mínútum fjórða leikhluta.
Stólarnir skoruðu ekki stig
fyrstu fimm mínúturleikhlutans
á meðan KRkláraði leikinn með
21 stigi i röð. Staðan breyttist úr
60 - 62 í 60 - 83. Ekki bætti úr
skák að Svavar fékk tvær
tæknivillur og þar með útilokun
ffá leiknum. Allan Fall náði að
brjóta ísinn fyrir heimamenn
með tveimur vítum, en leikur
Stólanna skánaði lítið ög KR lét
þetta forskot ekki frá sér. Nýttu
bæði liðin síðustu mínúturnar
til að gefa minni spámönnum
tækifæri, þó ekki séu þeir margir
hjáKR.
Lokatölur urðu svo 70 - 96 í
leik sem lengi vel leit út fyrir að
verða spennandi, en Stólarnir
sprungu á limminu að þessu
sinni og KR innbyrti enn einn
sigurinn og eru greinilega með
besta liðið í dag.
Gísladóttir var valin til að æfa
með landsliði íslands U16.
Þau Rakel Svala og Arnar
Skúli er mjög efnileg og eiga
eftir að ná langt ef fram heldur
sem horfir.
Fótbolti
Rakel og Arnar í úrtakshóp