Feykir - 01.10.2009, Side 5
36/2009 Feyklr 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR
Golf
• •
Oflugt bama- og ungl-
inga golfsumar að baki
Stoltir verðlaunahafar með bikarana sína.
Golfklúbbur Sauðárkróks
hélt uppskeruhátíð vegna
barna- og unglingastarfs
sumarsins sunnudaginn 20.
september s.l. á Hlíðarenda-
velli. Hjörtur Geirmundsson
tók saman pistil frá starfi
sumarsins og eins frá
uppskeruhátíðinni og sendi
Feyki.
Iðkendur sumarsins mættu
ásamt a.m.k. einu foreldri og var
byrjað á þvi að spOa saman þrjár
holur með svokölluðu „green-
some“ fyrirkomulagi. Báðir
aðilar slógu upphafshögg og
síðan var betra upphafshöggið
valið og iðkandi og foreldri
slógu til skiptis eftir það. Fín
stemning var og alls voru þetta í
kringum 30 spilarar sem létu
rigninguna ekkert á sig fá. í
þessum létta leik voru það
mæðginin Arnar Geir Hjartar-
son og Katrín Gylfadóttir sem
að urðu hlutskörpust, þ.e. slógu
fæst högg.
Síðan var komið að sjálfri
uppskeruhátíðinni. Allir kylf-
ingar fengu viðurkenningar-
skjal íyrir sumarið og gjöf.
Þröstur Kárason og Jóhannes
Friðrik Ingimundarson fengu
verðlaun fyrir góðu ástundun
og áhuga. Þá fékk Jónas Már
Kristjánsson fékk sérstök
jákvæðniverðlaun.
Þá var í fyrsta skipti veittur
„Hugarfarsbikarinn" en þau fær
sá kylfmgur sem er til fyrir-
myndar golfíþróttinni og golf-
klúbbnum bæði innan vallar
sem utan. Þennan bikar hlaut
Arnar Geir Hjartarson.
Því næst voru veitt verðlaun
fyrir mestu ffamfarir sumarsins
í stelpu- og strákaflokkum. I
stelpnaflokknum hlaut Matt-
hildur Kemp Guðnadóttir þau
verðlaun en í strákaflokknum
var það Arnar Geir Hjartarson.
Þá var komið að því að veita
verðlaun fyrir besta kylfing
sumarsins. í stelpnaflokki varð
Helga Pétursdóttir fyrir valinu
og í strákaflokknum varð það
Ingvi Þór Óskarsson.
Að lokum þaklcaði Pétur
Friðjónsson formaður ungl-
ingaráðs öllum þeim fjölmörgu
sem að komið hafa að starfinu í
sumar fyrir gott starf, bæði Ólafi
Gylfasyni sem var kennari í
sumar og líka þeim fjölmörgu
foreldrum sem að hjálpuðu til,
hvort sem var við skipulagningu
og aðstoð í mótum eða við
fjáröflun s.s. kökubasar og
kleinubakstur. Þá þakkaði hann
einnig þeim fjölmörgu
fyrirækjum sem að studdu
dyggilega við bakið á starfinu í
sumar.
Mikið starf var hjá golf-
klúbbnum í sumar. Nýprents-
mótið var haldið í júlí og hefúr
það aldrei verið íjölmennara.
Unglingalandsmót var haldið í
golfinu um verslunarmanna-
helgina og hefur aldrei verið
meiri þátttaka í golfinu en á
mótinu í sumar. Krakkarnir
voru dugleg að mæta á mótin á
Norðurlandsmótaröðinni, bæði
á Dalvík, Ólafsfirði og á
Akureyri og náðu þau mjög
góðum árangri á þeim mótum
og unnu til fjölda verðlauna.
Við eignuðumst tvo Norður-
landsmeistara í þessari mótaröð,
áttum sigurvegara á Unglinga-
landsmótinu ásamt földa
annarra verðlauna þar einnig og
svo mætti lengi telja.
Það fóru keppendur frá
klúbbnum í Islandsmeistaramót
í höggleik sem að haldið var í
Hafnarfirði í júlí og náðu sér þar
í dýrmæta reynslu.
Svo má ekki gleyma þvi að
við sendum 2 Vi sveit í
sveitakeppni unglinga. Vorum
með strákasveit í sveita-keppni
16 ára á Kiðjabergi, stelpurnar í
sama aldursflokki kepptu hins
vegar á Flúðum. Þá vorum við
með tvo affj órumí sameiginlegri
sveit stráka 17-18 ára sem að
keppti einnig á Flúðum.
í byrjun september fjöl-
menntum við á Skagaströnd og
héldum þar bændaglímu og var
sú ferð mjög skemmtileg. Langt
og strangt sumar er því að baki
en það er enn hægt að spila golf
á Hlíðarenda og haustið búið að
vera flott til golfiðkunar. Stefnan
er að reyna að fá einhverja
inniaðstöðu þannig að byrjað
verði að sveifla aftur snemma á
nýju ári.
( MITT LIÐ )
Yes! Ég er ekki
lengur einn
Nafn: Árni Stefánsson
Heimili: Raftahlfð 29,
Sauðárkróki
Starf: íþróttakennari
Hvert er uppáhaldsliðið þitt í
enska boltanum og af hverju?
-Birmingham FC. Það er löng
saga á bak við það, sem nær
allt til þess tíma að leikir voru
sýndir viku gamlir og í svart
hvítu. Haustið '73 flutti ég til
Reykjavíkur og gekk til liðs við
Fram. Þegar ég mætti á mína
fyrstu æfingu hjá félaginu og
gékk inn í búningsherbergið
var þetta fyrsta spurningin
sem ég fékk: „Með hvaða liði
heldurðu í ensku?" Mér fannst
eins og það væri krafa að vera
snöggur til svars svo ég lét
vaða á Birmingham. Það datt
á dúnalogn í klefanum, en allt
í einu stóð einn leikmaðurinn
upp lengst inni í horni og
hrópaði upp „Yes! Ég er ekki
lengur einn“. Þarnavarkominn
Gunnar Guðmundsson eða
Gunni „Tappi" eins og hann var
kallaður, því hann var eins og
tappi á miðjunni. Gunnar lést
á sviplegan hátt í flugslysi við
Blönduós 1987. Það er mér
því Ijúft að segjast halda með
BFC.
Hefur þú einhvern tímann
lent í deilum vegna aðdáunar
þinnar á umræddu liði?
-Ekki eru þær nú teljandi.
Það er helst að félagar mínir
á Lagernum séu með glósur
en þær eru nú sjaldnast
það gáfulegar að þær séu
svaraverðar.
Hver er uppáhaldsleikmað-
urinn fyrr og síðar?
-Það væri allt of langt mál að
telja upp alla þá leikmenn sem
hafa glatt mig í gegnum tíðina,
en ef ég á að nefna einn sem
tengist Birmingham þá er það
Trevor Fransis.
Hefur þú farið á leik með
iiðinu þínu?
-Nei, og það er skömm frá
því að segja. Ég er þó búinn
að fara þrisvar á leiki í ensku
deildinni og er það æðisleg
upplifun. Þó að maður sé að
horfa á frönskumælandi lið
eins og Arsenal.
Áttu einhvern hlut sem tengist
liðinu?
-Maggi Toll færði mér eitt
sinn „lítið“ handklæði sem ég
hengdi upp á vegg á Lagernum
innan um United, Arsenal og
Liverpool veifur og flögg. Það
verður að segjast eins og er
að þetta er áberandi flottasti
hluturinn þarna inni.
Hvernig gengur að ala aðra
fjölskyldumeðlimi upp í
stuðningi við liðið?
-Það gengur illa, en ég sé
vonar-glætu í henni Herdísi
Höllu yngsta barnabarninu
mínu.
Hefur þú einhvern tímann
skipt um uppáhalds félag?
-Maður skiptir ekki um uppá-
haldsfélag.
Uppáhalds málsháttur?
-Enginn verður óbarinn biskup
Spurning frá Gunnari
Guðmundssyni. - Hvenær varð
Birmingham seinast enskur
meistari?
-Okkartími mun koma.
Hvem myndir þú vilja sjá svara
þessum spurningum?
-Hann Orra Hreinsa sem heldur
með Queens Park Rangers.
Hvaða spurningu viltu lauma
að viðkomandi?
-Ætti ekki líka að banna Briatori
að koma nálægt fótbolta?