Feykir


Feykir - 03.12.2009, Page 8

Feykir - 03.12.2009, Page 8
8 Feyklr 45/2009 ( TÖLVUPÓSTURINN ) Gerður Kristný Guðjónsdóttir rithöfundur er gift Kristjáni B. Jónassyni frá Syðri-Hofdölum í Skagafiröi í móðurætt og Skörðugili í föóurætt og hún segist því geta kallaó sig tengdadóttur Skagafjarðar. Geróur Kristný gefur út nú fyrirjólin bókina Prinsessan á Bessastöðum en í bókinni kemur m.a. íþróttafélagiö Tindastóll vió sögu. Feykir sendi Gerói línu. Vildi vinka til Skagfirskra barna Hvað er helst að frétta af þér? -Ég er nýkomin úr langri upp- lestrarferð sem hófst á Akureyri þar sem ég las upp úr Prinsessunni á Bessastöðum í níu barnaskólum en hélt síðan austur á land þar sem ég las upp á Skriðuklaustri, Egilsstöðum, Vopnafirði og Seyðisfirði. Um hvað fjallar Prinsessan á Bessastöðum? -Hún fjallar um forseta nokkurn sem fær skemmtilega prinsessu í heimsókn. Þau halda saman út á land til að koma kransaköku til skila en verða viðskila þegar prinsessan rýkur burt fyrstu nóttina. Lambaspörð leynast nefnilega undir tjalddýnunni og hún getur ekki sofið á neinni ójöfnu - enda ekta prinsessa. Hvernig hefur bókinni verið teklð? -Ekki verð ég vör við annað en að lesendur sé ánægðir og gagnrýnendur hafa líka verið kátir. Það er eitthvað við þennan uppdiktaða forseta sem börn kunna við, líklega hvað hann er líkur þeim. Svo heyrist mér bókin líka vera nokkuð foreldravæn. íþróttafélagið Tindastóll kemur fyrir í bókinni. Hvernig kom það til? -Börn hafa gaman af að sjá eitt- hvað kunnuglegt í barnabókum, hvort heldur sem það er nafnið þeirra eða systkina, hverfið, íþróttafélagið eða elliheimilið þar sem langamma þeirra býr. Með því að nefna Tindastól vildi ég auðvitað vinka til krakkanna í Skagafirðinum. Ertu eitthvað væntanlega í Skagafjörðinn til að kynna bókina þína? -Égverð í Kaupfélagi Skagfirðinga laugardaginn 5. desember, sama dag og fírað verður upp í jólatrénu. Þar ætla ég að árita bókina mína á milli kl. 14.00 og 15.00 og lesa upp úr henni. Kaupfélagið gefur ekta prinsessukórónu með hverju seldu eintaki. Mánudaginn 7. desember les ég síðan upp í barnaskólanum. Það verðurflör. Hvernig gengur að samræma jólaundirbúning með tvo litla gutta og bókaútgáfu en nú eruð þið hjónin bæði í útgáfu, Kristján í forlaginu Crymogeu og þú með bók? -Mér finnst jólin svo skemmtileg að ég byrja snemma að undirbúa þau. í ár gaf ég mér tíma til að föndra jólakortin aldrei þessu vant. Svo tók ég mér góðan tíma í að velja jólagjafirnar handa hverjum og einum. Ég vil gefa mínum nánustu fallegar gjafir og finnst líka gott að dreifa kostnaðinum. Ertu mikið jólabarn? -Ó, já, mér finnst jólin mjög skemmtileg og hátíðleg. Svo fæddust drengirnir mínir báðir um þetta leyti svo við höldum barnaafmæli á milli jóla og nýárs og aftur um miðjan janúar. Þau þarf auðvitað líka að undirbúa. Bakar þú fyrir jólin? -Nei, hún Valla, tengdamóðir mín, gaukar hins vegar að mér Ijúffengum smákökum. Ég sá henni fyrir sonarsonum og hún gefur mér smákökur. Eru það ekki góð og sanngjörn skipti? Í5 ]| ITIenningarráð m m I Norðurlands vestra Friður sé með yður var kveðjan sem fylgdi Ijðsinu á milli krakkanna. Óskar skólastjóri og krakkarnir bíða eltir Ijósinu á Kirkjustignum. Skemmtileg hefð hefur myndast við upphaf aðventu að kveikja á krossinum á Nöfum þegar krakkarnir i Árskóla fara íhina árlegu friðargöngu. Árleg Friðarganga nemenda Árskóla markar upphaf aóventu Friður sé meö yóur Friður sé með yður hljómaði mörg hundruð sinnum sl. föstudag er nemendur, starfsfólk og foreldrar nemenda við Árskóla mynduðu friðarkeðju upp eftir öllum Kirkjustignum við Nafirnar á Sauðárkróki. Er Friðargangan árleg hjá Árskóla og er hún gengin föstudaginn fyrir fyrsta sunnudag í aðventu. Gengur ljósalugt á milli barnanna frá 1. bekk og upp í 10. bekk og enda þau síðan með því að tendra ljósin á Krossinum sem stendur á Nöfunum á aðventu og fram á nýja árið. Friðargönguna enduðu nemendur síðan í Árskóla við Freyjugötu þar sem boðið var upp á piparkökur og heitt kakó sem kom sér vel í froststillunni.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.