Feykir


Feykir - 03.12.2009, Qupperneq 11

Feykir - 03.12.2009, Qupperneq 11
45/2009 Feykir 11 ( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) Þórunn ogjakob kokka Hver stenst tví- lita ostaköku? Það eru þau Þórunn Jónsdóttir og Jakob Jóhannsson sem eiga uppskriftir vikunnar að þessu sinni. Rækjur og ýsa er aðaluppistaðan í uppskriftum þeirra og gómsæt tvflit ostakaka í restina til að fullkomna sæluna. Þórunn og Jakob skora á Malin Maria Persson og Ingvar Friðrik Ragnarsson að koma með næstu uppskriftir. Rœkjuréttur 400 gr. rœkjur 300gr. majones 1 msk. Knorr Prowencale 2 tsk. karrý 1 grœn paprika 1 rauð paprika 1 poki að hrísgrjónum (suðu poki) eða 2 bollar hrísgrjón ki dós gular baunir Aðferð: Hrísgrjónin soðin og kæld. Majones, krydd og karrý sett í skál og rækjum, papriku, gulum baunum og hrísgrjónum bætt út i og allt hrært vel saman. Sósa: 250gr. majones 1 msk. sætt sinnep 1 msk. hunang 1 tsk. dill Saltogpipar Matarlitur Aðferð: Öllu blandað saman og fer þetta ofan á ristað brauð. Lúxúsfiskréttur ‘A tsk. sítrónupipar ‘A -1 tsk. salt ‘A tsk. paprikuduft 1 tsk karrý 1 ‘A tsk. kjötkraftur 1 rauð paprika (sneidd) 1 grœnpaprika (sneidd) 1 laukur (saxaður) 2 stk. gulrætur (sneiddar) ‘A dós ananaskurl 1 ‘A dl. rjómi 150gr. rjómaostur 200gr. sveppir 300 - 400gr. ýsa Aðferð: Setjið smá klípu af smjöri í pott eða pönnu og bræðið. Paprika, laukur, gulrætur, ananaskurl og sveppir er sett í pottinn eða pönnuna og steikt lítið án þess að brúnast. Síðan er rjómaosturinn, ýsan og kryddið sett út í. Að lokum er rjóminn settur í og hrært varlega í. Látið krauma við lágan hita þangað rjómaosturinn er bráðinn. Með þessu er gott að hafa hrásalat, kartöflur eða ristað brauð. Tvílit ostakaka Skel: 250gr. hafrakex 100 gr. suðusúkkulaði 75 gr. brœtt smjörlíki Aðferð: Skel sett í klemmuform og kexinu þrýst upp að börmunum. Kælið á meðan fyllingin er búin til. Fylling. 300 gr. hreinn rjómaostur 100 gr. sykur 3 tsk. matarlímsduft eða 6 matarlímsblöð 2 egg 1 ‘A dl. mjólk 1 tsk. vanilludropar 2 ‘A dl. þeyttur rjómi 2-3 möndludropar Grænn matarlitur Aðferð: Hrærið rjómaostinn mjúkan. Setjið matarlímsduft og helminginn af sykrinum í pott. Léttþeytið eggjarauður og mjólk og hellið í pottinn. Hitið að suðu og hrærið í allan tímann. Takið af hitanum. Hrærið þessu saman við rjómaostinn smátt og smátt. Kælið blönduna þar til hún verður ylvolg. Þeytið eggjahvítur með vanilludropumogbætiðsykrinum sem eftir er út í og stífþeytið. Mýkið rjómaosthræruna með 2 msk. af eggjahvítum og setjið eggjahvítur sem eftir eru varlega saman við með sleif. Blandið þeyttum rjóma varlega saman við. Skiptið hrærunni í tvennt. Blandið möndludropum og matarlit í annan hlutann og jafhið honum yfir skelina og setjið síðan hinn helminngin yfir allt. Kælið í minnst 6 tíma. Verði ykkur aðgóðu! ( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) Vísnaþáttur 511 Heilir og sælir iesendur góðir. Um það leiti er ónefndur bankastjóri settist í ritstjórnarstól í Hádegismóum orti Ingólfur Ómar svo. Stolturþar við stöðu tók í stólinn gekk að halda. Kominn er hjá konungsbók kóngurinn til valda. Þá er til þess að taka að tryggur vinur þessa þáttar sendir tvær vísur sem hann langar til að séu birtar. Er meira en sjálfsagt að verða við því. Segir hann vísurnar vera eftir séra Gunnar Árnason prest á Æsustöðum, hér í Húnaþingi. Mun eitt af störfum hans hér hafa verið að skira undirritaðan. Kemur það reyndar þessu máli ekki við, að öðru leiti en því að klerkur sá virtist jafnvígur á embættisverk og yrkingar. Segir þessi vinur þáttarins að visurnar séu ortar um reiðhest prests sem hét Sörli, telur hann að þær muni vera fleiri og væri gaman að heyra frá lesendum ef þeir kannast við þær. Oftfœr Sörli muna mýkt minnir hann á vorið. Það er draumi og Ijóði líkt Ijúfa hýrusporið. Herra, þegar heimifrá held á dauðavaðið. Sendu mér hann Sörla þá sit ég hann best í hlaðið. Hef lengi kunnað seinni vísuna en man ekki eftir að hafa heyrt hina. Endurtek að upplýsingar þar um eru vel þegnar. Hressum okkur næst með þessari ágætu hringhendu, eftir Vestur-Húnvetninginn Rögnvald Rögnvaldsson. Granninn átti gómsætt vín gamanþátt svo kíminn. Langra nátta geymist grín gleymist háttatíminn. Þegar hér var komið sögu í samsetningu þessa þáttar, sofnaði undirritaður við skrifborðið. Næsta dag fór ég að spyrja föður minn um Sörlavísur séra Gunnars. Kannaðist hann vel við þær án þess að muna fyrir vist hvað þær voru margar. Sörli var ættaður frá Geitaskarði í Langadal og hafði alist upp í fjallgarðinum þar fyrir ofan. Sætti hann alla tíð lagi með að strjúka þangað úteftir og stöðvaðist þá ekki fyrr en út í Tröllabotnum. Kannaðist pabbi við þær vísur sem ég skráði fyrr og mundi eftir einni í viðbót, sem lítur að stroki Sörla á æskustöðvar. Vil því óska vini þeim þó viti að beinin grotna. Að hannfmni í andaheim aðra Tröllabotna. Bið lesendur enn og aftur að hafa samband geti þeir gefið upplýsingar um þessar vísur séra Gunnars. Engum dylst i nútímanum að kreppa er í fjármálum okkar þjóðar. Svo hefur verið áður og allflestir lifað það af. Minnir að það hafi verið veturinn '84 sem Böðvar Guðlaugsson var svo heppinn að sleppa út úr sér þessari. Mörg eru á lofti mæðuský mikið er handapatið. Nú þarf að troða tappa í tveggja milljarða gatið. Ef ég man rétt komst þessi einnig á kreik veturinn '84. Hatm harmar þetta og harmar hitt. Hann harmar Dagsbrúnarkaupið mitt. Hann harmar Blazer og grjónavelling. Hans harmagrátur er þjóðinni hrelling. Bjarni M. Jónsson mun á þessu sama ári hafa ort svo. Vinstri sinnarsjá hvað setur segja á stjórnina frat. Albert kom og bætti um betur boraði áfjárlögin gat. Einni vísu enn man ég eftir sem kom á kreik um þetta leyti, man elcki hver höfundur er. Allt er ípati enn á ný enginn bati á sinni. Stóra gatið stœkkar í stjórnarflatsœnginni. Gott verður að enda þennan þátt olckar visnavina með ágætum vísum Jóns í Víðimýrarseli. Til ferskeytlunnar yrkir hann svo. Oft éggeng um vísna veg vert er mjög að þakk 'ann. Ferskeytluna faðma ég fram á grafarbakkann. Önnur kemur hér í svipuðum dúr. Þegar loks mitt þrýtur skeið og þrengir lífs aðfuna. Áfram vil ég eiga leið innan umferskeytluna. Gaman að fá frá ykkur lesendur góðir jóla eða áramótavísur, eða eitthvað annað. Verið þar með sœl að sinni. Guðmundur Valtýsson Eiríksstöðurn 541 Blönduósi Sími 452 7154

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.