Feykir


Feykir - 17.12.2009, Page 4

Feykir - 17.12.2009, Page 4
4 Feykir 47/2009 AÐSEND GREIN Örn Ragnarsson skrifar Af niðurskurði á Heilbrigðis- stofnuninni Sauðárkróki Fyrir fáeinum vikum birtist á sfðum Feykis svar Álfheiðar Ingadóttur heilbrigðisráðherra við spurningum blaðamanns um niðurskurð á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki (HS). Athygli vekur að ráðherrann reynir þar að slá ryki í augu lesenda blaðsins með því að fullyrða að þegar tekið sé tillit til íbúafjölda séu fjárframlög hæst til HS miðað við aðrar stofnanir sem hann nefnir. Eins og fram hefur komið hjá Hafsteini Sæmundssyni forstjóra HS í Feyki fer ráðherra með rangt mál og segir ekki allan sannleikann. Því ráðherrann tiltekur einungis fjárframlög frá heilbrigðisráðuneytinu til stofnana en nefnir ekki það sem veitt er til ýmissa öldrunarstofnana frá félagsmálaráðuneytinu. Það er svolítið misjafnt hvernig öldrunarstofnanir eru reknar á íslandi. í Skagafirði eru þær eingöngu undir HS en viða annars staðar eru þær aðeins að hluta reknar af heilbrigðisstofnunum en annars af sveitarfélögum með íjárveitingu frá félagsmálaráðuneytinu. Þegar þetta er reiknað saman kemur í ljós, á þeim svæðum sem samanburðurinn nær til, að fjárveiting frá ríkinu á hvern íbúa er ekki hæst heldur lægst til HS. Ef við berum okkur saman við Austur-Húnavatnssýslu vantar okkur um 106 milljónir til að standa þeim jafnfætis í íjárframlögum frá ríkinu í fjárlagafrumvarpi ársins 2010 og upphæðin er svipuð ef við miðum við Þingeyinga. Þessi tala verður 160 milljónir sem okkur vantar í fjárframlögum næsta árs til að fá sömu upphæð á íbúa og á starfssvæði nýstofnaðrar Heilbrigðisstofnunar Vesturlands. Það er hins vegar ósann- gjarnt að bera saman stofnanir án þess að taka tillit til aðstæðna og þeirrar þjónustu sem þær veita og þvi afar undarlegt að ráðherra skuli grípa til þess ráðs. Fjarlægð milli staða, milli starfsstöðva eins ogí Þingeyjarsýslum og á Vesturlandi valda sjálfsagt einhverjum aukakostnaðiþóttheilbrigðisráðuneytið hafi talið sparnað geta hlotist af sameiningu t.d. á Norðurlandi. Einnig er þjónusta stofnana mismunandi. Á HS er fæðingarþjónusta sem víða hefur verið lögð af. Henni fylgir augljóslega kostnaður vegna vakta o.fl. Einnig er hér öflug sérfræðiþjónusta og mun meiri en á sambærilegum stöðum. Þegar sérfræðingar frá FSA eru hér hjá okkur borgum við þeim laun. Ef þeir kæmu ekki, heldur héldu sínu striki á FSA, færðust þær laungreiðslur þangað. Því yrði enginn sparnaður fyrir ríkið, laun þeirra koma þaðan þegar allt kemur til alls hvort sem þeir vinna á Sauðárkróki eða Akureyri. í dag fáum við enga sérstaka fjárveitingu vegna þessarar sérfræðiþjónustu. Hins vegar spörum við umtalsverða fjármuni fyrir ríkið, Sjúkratryggingar íslands, því ef þessi þjónusta væri sótt t.d. til Akureyrar þyrfti sú stofnun að greiða sennilega nokkrar milljónir á ári í ferðakostnað fyrir fólk héðan af svæðinu. Og þá á eftir að reikna inn ýmsa fleiri þætti eins og vinnutap, eldsneytisbrennslu og mengun. Þessi sérfræðiþjónusta er því hagkvæm fyrir þjóðarbúið þótt hún kosti okkur talsverða upphæð. Því er þessi samanburður ráðherrans afskaplega ósanngjarn og beinlínis rangur. Svíar eru um það bil 25 sinnum fleiri en við íslendingar. Þar er einn heilbrigðisráðherra. Það væri á sama hátt ósanngjarnt að halda því fram að þá væri nóg að hafa heilbrigðisráðherra í 0,04% stöðugildi á Islandi. Reiknilíkan þeirra ráðuneytismanna gerir ráð fyrir ákveðnum rúmafjölda á stofnuninni sem miðað var við fyrir mörgum árum en ekki er gert ráð fyrir að í öllum niðurskurði síðustu ára hafi þeim verið fækkað. Því er niðurstaðan að við séum með mörg ónýtt pláss. Það hefur verið yfirlýst stefna stjórnvalda að fækka skuli tvíbýlum, fjölga einbýlum og auka heimahjúkrun þannig að fólk geti sem lengst verið heima. Þetta höfum við gert. Þegar einbýlum fjölgar, fækkar inniliggjandi fólki. Heimahjúkrun höfum við aukið þannig að hún er einnig veitt um helgar og ef við gerðum það ekki væru nokkrir einstaklingar sem þyrftu að leggjast inn þar sem þeir þurfa daglega aðstoð. En þá fjölgaði inniliggjandi sjúklingum og framlagið myndi þá væntanlega hækka. Eða hvað? Við höfum ekki fengið viðbótaraukafjárframlag vegna aukinnar heimahjúkrunar. En eigum við ekki að geta fækkað starfsfólki á deildum ef við fækkum inniliggjandi sjúklingum? Jú, að sjálfsögðu og það hefur verið gert, stöðugildum hefur fækkað. En það er ekki hægt endalaust og á þeim tímapunkti þegar fækkar úr einum f ekki neinn hlýtur starfsemin að leggjast af. Þótt ráðherra segi það ekki berum orðum finnst mér það liggja nokkuð augljóslega í svörum hans að það er verið að refsa okkur fyrir góðan rekstur og að vilja ekki sameinast í eina stofnun á Norðurlandi. Hann segir Ögmund Jónasson forvera sinn hafa afturkallað sameininguna að okkar óskum sem er rétt og að við hefðum sagt að við gætum mætt niðurskurðarkröfum á annan hátt en með sameiningu sem er líka rétt. Það hefur hvergi verið sýnt fram á sparað með sameiningu heilbrigðisstofnana á fslandi á undanförnum árum. Margir telja að kostnaður aukist við sameiningu, sérstaldega í byrjun. Það var því álit okkar að hver og ein stofnun ætti auðveldara með að draga eitthvað úr útgjöldum en ný og illa ígrunduð sameinuð stofnun sem næði yfir allt Norðurland. Það hvarflaði þó aldrei að okkur að oldcur yrði gert að skera niður umtalsvert meira en flestir aðrir. Þótt ráðherrar komi og fari blundar sameiningarþráhyggjan í ráðuneyti heilbrigðismála og sprettur fram annað slagið og virðast menn þar á bæ ætla sér að láta af sameiningu verða, einhvern tíman, einhvern veginn og hvað sem það kostar. Kannsld er hér um undirbúning að sameiningu að ræða. Að gera okkur svo lftil og vanmáttug að við eigum oklcur ekki viðreisnar von og verðum hreinlega neydd í faðm FSA með öðrum stofnunum á Norðurlandi. Ráðherra segir einnig í svari sínu að þar sem stofnanirnar hafi sldlað jákvæðum árangri í rekstri eigi þær auðveldara með að draga saman seglin. Við álcváðum í fyrra, vitandi að um meiri niðurskurð yrði að ræða á næsta ári, að sýna fyrrihyggju, búa í haginn fyrir okkur og sldla einhverjum afgangi í ár. Fyrir það er refsað. Hefðum við verið svolítið séðari og skilað halla hefði þá væntanlega ekld verið gengið svona hart að okkur. Það átti kannski að vera klókt hjá ráðherra að reyna að plata okkur Skagfirðinga á þennan hátt, láta olckur halda að eyðslusemin hér væri með allra versta móti og að við ættum eldd annað skilið en kröftugan niðurskurð. Kannski var þetta matreitt ofan í ráðherrann í ráðuneytinu og kannsld vissi þetta fólk elcki betur, vissi ekld hvernig heilbrigðisþjónustan er rekin á íslandi. Hvort hins vegar er skárra að segja ósatt eða vita ekld betur skal ég eldd um segja. Að ráðherra fullyrði þetta og leiðrétti ekki þegar honum er bent á að rangt er með farið er lítilsvirðing við það starfsfólk á HS sem hefur í gegnum árin unnið sín störf þrátt fyrir stöðugar sparnaðar- og niðurskurðarkröfur og þannig teldð á sig aulcna ábyrgð og álag og jafnvel kjaraskerðingu til þess að reka megi stofnunina hallalausa. Það er rétt að benda á að ráðuneytið og ráðherra hefur alræðisvald f stjórnun heilbrigðisstofnana. Fyrir noldcrum árum var lögum breytt á Alþingi, þannig að stjórnir heilbrigðisstofnana voru lagðar niður. Þær voru áður kosnar af sveitastjórnum en ráðherra sldpaði formann. Starfsmenn stofnunar áttu einn fulltrúa. Þessar stjórnir réðu forstjóra. Þá höfðu sveitastjórnir ítök í stofnununum. Eftir lagabreytingarnar eru engar stjórnir og forstjóri skipaður af ráðherra og er í raun starfsmaður ráðuneytisins og framlenging þess út í stofnanirnar og í allt annarri aðstöðu til að beita sér í málefnum stofnunar gagnvart ráðuneytinu. Það skal tekið fram að Sveitarstjórn Skagafjarðar hefur stutt við baldð á stofnuninni og reynt að styðja hana. Hér áður áttum við einnig þingmenn sem þekJctu vel til á svæðinu og litu á það sem skyldu sína að vinna með okkur. Þeir eru fáir nú. Flestir eru búsettir vestur á landi eða vestur á fjörðum og þar eru líka vandamál sem þeim finnst væntanlega standa sér nær að reyna að leysa. Af þessu má ljóst vera að niður- slcurður hér á HS er mun meiri en annars staðar og afar ósanngjarn. Hér er í raun um aðför að stofhuninni að ræða. Við finnum olckur ósköp vanmáttug í baráttunni við heilbrigðisyfirvöld sem taka ekki rökum eða hlusta ekki þegar við höfum reynt að útskýra olckar sjónarmið. Við gerum oldcur fulla grein fyrir því að það þarf að spara og skera niður vegna þeirra stöðu sem þjóðin er í í dag og við erum tilbúin að taka olckar skammt en sættum okkur ekki við þá framkomu sem okkur er sýnd. Vinnubrögð heilbrigðisráðuneytis- ins eru ófagleg og ósanngjörn og uppsagnir starfsfóllcs og sú skerðing á þjónustu sem við blasir er í boði þess. Örn Ragnarsson, lœknir

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.