Feykir - 21.12.2009, Blaðsíða 8
8 Feykir 48/2009
Skagfiróingar í WipeOut
Drullan er helvíti!
Sigurfinnur Sigurjónsson og Silja Rut Sigurfmnsdóttir i Argentínu.
Stöð 2 sýnir hina geysivinsælu
þáttaröð WipeOut þar sem
þekktir og óþekktir
fslendingar reyna með sér í
heldur óvenjulegum þrautum.
Keppnin fór fram í Argentínu
og eiga Skagfirðingar nokkra
þátttakendur í þáttunum og
þar á meðal þrjár frænkur
sem rekja ættir sínar til Ellerts
og Ingibjargar í Holtsmúla.
Ein af þeim er Silja Rut
Sigurfinnsdóttir, Sigurjónssonar
og Valgerðar Friðriksdóttur en
þau feðgin Silja og Finnur tóku
þátt og sendi Feykir henni póst
og forvitnaðist aðeins um
keppnina.
Hvernig stóð á því að þið
feðginin tókuð þátt í þessari
keppni?
-Ja, það var nú eiginlega bara í
einhverju bríaríi sem við sóttum
um. Við fylgdumst með
amerísku útgáfunni sem sýnd
var á Stöð 2 síðasta vetur og
höfðum gaman af, svo þegar
auglýst var eftir keppendum í
íslensku þáttaröðina spurði ég
pabba í gríni hvort við ættum
ekki að sækja um. Hann tók
sem sagt betur í það en ég hafði
búist við.
Voruð þið saman í liði? Var
samkeppni á milli ykkar
feðgina?
-Hreint ekki! Þetta er einstakl-
ingskeppni og var samkeppnin
mikil okkar í milli. Fólkið í
kringum okkur hérna heima
virtist allt hafa meiri trú á pabba
en við það rauk keppnisskapið í
mér auðvitað upp. Ég skyldi sko
sýna þeim hvað í mig er spunnið
og léti ekki háaldraðan karlinn
vinna mig!
Út á hvað gengur keppnin?
Keppnin skiptist í fjórar
þrautabrautir og gengur hún út
á að komast í gegnum hverja
braut á sem bestum tíma. Fyrsta
brautin er alltaf mjög svipuð; í
henni eru m.a. rauðu boltarnir
sem flestir kannast við og box-
veggurinn. Fljótustu tólf
keppendurnir í gegnum fyrstu
brautina fara í braut númer tvö
sem er „sópurinn". Hann er lika
alltaf mjög svipaður. Keppendur
standa þá uppá þriggja metra
háum súlum sem mynda hring
og eiga þeir að reyna að hoppa
yfir bólstraða stöng sem snýst
hring eftir hring og alltaf hærra
og hraðar. Þeir sex keppendur
sem ná að standa lengst á
súlunum komast áfram í þriðju
þrautina sem er annað hvort
þeytivindan svokallaða eða
risastórt hlaupabretti. Þeyti-
vindan er mjög mismunandi
eftir þáttum en gengur í
aðalatriðum út á það að
keppendum er snúið í hringi á
ógnarhraða í u.þ.b. mínútu og
eiga þeir síðan að hlaupa yfir
uppblásnar slöngur, veltibretti
eða þvíumlíkt. Á hlaupabrettinu
er ekki nóg með að það fari
alltaf hraðar og hraðar heldur
henda þeir líka alls konar drasli,
s.s. tennisboltum eða upp-
blásnum sundleikföngum á það.
Fljótustu þrír úr þeytivindunni
eða þeir þrír sem ná að halda sér
lengst á hlaupabrettinu komast
svo í úrslitaþrautina sem ég held
að sé alltaf eins. Umgjörðin á
henni er svakalega flott! Ljós og
flugeldar og alles! Hún er
náttúrlega langerfiðust en sá
sem klárar hana á besta tímanum
stendur uppi sem sigurvegari
þáttarins.
Telur þú þig hafa verið
Skagfirðingum til sóma í
keppninni?
Það ætla ég að vona. Ég gerði
mitt besta og verð að segja að ég
er bara mjög sátt við árangurinn.
Það er engin lygi sem menn eins
og Auddi, Sveppi og meira að
segja Gillz hafa verið að segja,
þetta er það erfiðasta sem ég hef
nokkurn tímann gert og mér
hefur aldrei liðið jafn illa
líkamlega eins og eftir fyrstu
brautina! Hún lítur sakleysislega
út, ég meina hver getur ekki
skoppað á risastórum rauðum
boltum?? En drullan er helvíti!
Viltu kvarta yfir hinum
Skagfirðingunum?
Nei, ég hef ekki yfir neinu að
kvarta, enda aðeins toppfólk
sem Skagafjörðurinn elur af sér.
Við vorum nokkrir Skagfirð-
ingarnir en auk okkar pabba
voru Auðunn Blöndal og
frænkur mínar tvær, Sandra
Ellertsdóttir, Sigurðar Ellerts-
sonar í Holtsmúla og Sigurlína
Guðjónsdóttir, dóttir Hönnu
Svavars Ellertssonar í Holtsmúla,
en við erum allar fjórmenningar
ættaðar frá Holtsmúla en
móðuramma mín er Alda
Ellertsdóttir í Holtsmúla. Við
áttuðum okkur reyndar ekki á
því strax en það var gaman að
hittast svona óvænt við þessar
óvenjulegu aðstæður.
Er það satt að þú hafir staðið
uppi sem sigurvegari. Ef ekki
hver þá?
Ja, ef ég vann þá má ég ekki segja
það, svo það verður bara að
koma í ljós.
Kom eitthvað skemmtilegt
fyrir við gerð þáttanna sem þú
getur sagt olckur frá?
Ég man nú ekki eftir neinu
ákveðnu atviki en það var alltaf
gaman að heyra hvaða vitleysu
fólk lét út úr sér bæði í viðtölum
og efst í brautinni, áður en það
lagði af stað, eftir að búið var að
espa alla upp og allir orðnir
hálfbilaðir af stressi/spenningi
eftir að komast í brautina. Ég verð
að segja að ég er fegin að fá að
halda kúlinu ff am yfir jól allavega,
en okkar þáttur verður ekki
sýndur fýrr en eftir áramót. Svo
var náttúrlega frábært að fá að
fara til Argentínu og að kynnast
öllu þessu skemmtilega fólki.
Eitthvað að lokum?
Eitt er víst að það eru frábær
föstudagskvöld framundan og
hvet ég alla til að poppa og
smala fjölskyldunni framan við
kassann tímanlega svo þeir
missi nú örugglega ekki af
neinu. Annars þakka ég kærlega
fyrir mig og óska öllum
Skagfirðingum gleðilegra jóla.