Feykir - 21.12.2009, Síða 11
48/2009 Feykir 11
Lúsíurog fylgdarsveinar syng/'a fyrírviðskiptavini Skagfírðingabúðar.
Lúsíuganga Árskóla
80 barna Lúsíukór
Lúsíudagurinn er alltaf
haldinn hátíðlegur í Árskóla,
undanfarin ár hefur 7.
bekkur haldið Lúsíuna en í ár
hefur 6. bekkur bæst í
hópinn, þar sem í framtíðinni
á 6. bekkur að taka við
Lúsíusprotanum.
Lúsíudagurinn í Árskóla var
haldinn 10. desember en
sjálfur Lúsíudagurinn er
þann 13. desember.
Sögurnar um heilaga Lúsíu
eru þekktar allt frá 5. öld og var
hún í miklum metum í
kirkjunni. Til marks um það þá
er hún ein fárra kvenna sem
nefndar eru í dýrlingatali
kirkjunnar þegar á 7. öld.
Messudagur hennar er 13.
desember - á myrkasta tíma
ársins. Dagurinn er haldinn
sem ljósahátíð, sérstaklega í
Svíþjóð og í seinni tíð víðar á
Norðurlöndum. Tengingin við
ljósið er vegna nafns hennar
sem dregið er af latneska orðinu
Lux, sem merkir ljós.
Samkvæmt hefðinni gengur
Lúsía fremst, klædd hvítum
kyrtli og ber krans með logandi
kertum á höfði. Það er
meyjarkransinn, sem minnir á
að heilög Lúsía gaf líf sitt Guði
sem brúður Krists. Hún vildi
frekar deyja en að rjúfa það
heit. Lúsíurnar voru tvær í ár,
önnur úr 6. og hin úr 7. bekk.
Þær ásamt þernum þeirra,
stjörnudrengjum, piparköku-
strákum og jólasveinum
ferðuðust um bæinn og sungu
jólasöngva fyrir gesti og
gangandi. Umsjónarkennarar
bekkjanna, ásamt þeim Irisi
Baldvinsdóttur og Rögnvaldi
Valbergssyni, höfðu veg og
vanda af Lúsíudeginum.
Krakkarnir æfðu stíft í margar
vikur fyrir stóru stundina. Um
morguninn heimsóttu Lúsí-
urnar nemendur í Árskóla við
Freyjugötu, en eftir hádegi
heimsóttu þau Heilbrigðis-
stofnunina á Sauðárkróki,
Byggðastofnun, Skagfirðinga-
búð og enduðu daginn í
Iþróttahúsinu á Sauðárkróki.
Texti og myndir:
Fjölmiðladeild Árskóla.
Rúnar Kristjánsson
Þú lyftir mér
Er lágt égfer og sál niín þunga þreytist,
erþrautir vaxa og hjartað kvíði sker,
íþögn ég dvel - en allt til bóta breytist
er birtist Þú ogsest itin stund hjá mér.
Þii lyftir mér
s\’o lífs ég stend áfjölluin,
Þú lyftir mér áför itin storinahöf.
Og ég finn Ijós
á leiðum iníiiuni ölluni,
Þú lyftir niér - svo dýrðleg er Þin gjöf
Það finnst ei líf - ei lífsein Þú ei ncerir,
en langtfrá hvíld inargt þjakað lijarta slœr.
Er iiin í hfinitt undur Þín Þúfœrir,
Þin eilífð keinur litiga iníiium nœr.
Þú lyftir mér
svo lífs égstend á fjölluiii,
Þú lyftir inér á för uin stormahöf.
Og ég finn Ijós
íj leiðuni inínuin ölluin,
Þú lyftir mér - svo dýrðleg er Þín gjöf
( Ljóðið er ort út frá sálniiintin
You Raise Me Up )