Feykir - 21.12.2009, Page 14
14 Feykir 48/2009
Skagfirðingar voru meðal fjögurra flottustu taparanna í fyrstu
umferð í Útsvari þetta haustió og komast því áfram. Gráglettni
örlaganna er sú aó lióió mun á ný mæta Hornfiróingum og veröur
þátturinn á dagskrá þann 29. janúar næstkomandi. Feykir hafói spurnir
af því aó liðió æfói aó kappi, hver í sínu horni, og ákvaó því aó senda
nokkrar laufléttar jólaspurningar á liósmenn.
Spurningarnar eru í formi hraöaspurninga og er óskaó eftir því aó
liósmenn svari því sem fyrst kemur upp í hugann er spurningin er lesin.
Jólahraóaspurningar
í anda Útsvars
Útsvarsliðið einbeitt I sjónvarpssal. Frá vinstri: Ólafur, Kristján og Inga Maria.
INGA MARÍA BALDURSDÓTTIR, NEMI
Þráir fría viku á hótel mömmu
Ert þú mikið jólabarn?
-Já ég held það sé svo
sannarlega óhætt að segja
það.
Hvernig brýst það út?
-Þegar mandarínurnar fara
að koma í búðirnar og
jólalögin í útvarpið.
Hvað borðar þú á
aðfanga-dagskvöld?
-Svínahamborgarhrygg og
allt það góða sem honum
fylgir.
En í eftirrétt?
-Súkkulaði - Shoufflé og
mömmuís.
Uppáhalds smáköku-
sortin?
- Sörur
Hvað langar þig að fá í
jólagjöf?
-Fría viku á hótel mömmu
með öllu inniföldu.
Hvað gafstu maka þfnum
í jólagjöf í fyrra?
-Hann fékk enga jólagjöf
frá mér þá en fær rosalega
fínan pakka í ár.
Hvað gaf hann þér?
-Hann gaf mér ekkert
heldur, en það stefnir í
eitthvað stórbrotið í ár.
Hvaða jólalag er í mestu
uppáhaldi hjá þér?
-Það heitir Handa þér.
Hvaða jólamynd kemur
þér í rétta jólaskapið?
-f ár var það A Christmas
Carol með Jim Carrey í
aðalhlutverki.
Ferðu 1 kirkju á
jólunum?
-Nei ég hef aldrei gert
það.
Hvaða jólaboðskap villt
þú senda lesendum
Feykis?
-Njóta þess að borða,
spjalla, hlæja og hafa
gaman með þeim sem þér
þykir vænst um, það er
svo sannarlega það sem
égætlaaðgera -gleðileg
jól!
Ætlar þú að vinna
Hornfirðinga í Útsvari á
árinu 2010?
-Já það kemur svo
sannarlega ekki annað til
greina ;) legg til að allir
Skagfirðingar sameinist
fyrir framan skjáinn 29.
janúar 2009.
KRISTJÁN B JÓNASSON, BÓKAÚTGEFANDI
Geröur mín sú eina sem þorir aö gefa mér bók
Ert þú mikið jólabarn?
-Ég er hættur að vera barn, en jólin
koma á hverju ári.
Hvernig brýst það út?
-Jólin eru alltaf á sama stað í
almanakinu. Ég fæ engu um það
breytt.
Hvað borðar þú á aðfangadags-
kvöld?
-Það hefur engin regla verið á því
síðustu 20 árin eða svo. Ég hef meira
að segja borðað þurra brauðsneið og
lifrakæfu á aðfangadagskvöld og
skolað því niður með jurtatei. í ár er
ég að hugsa um að borða önd.
En í eftirrétt?
-Ég hef reynt að hafa hrísgrjónagraut
með möndlukurli í eftirmat á mínu
heimili en er sá eini sem borðar það
svo ég sleppi þessum eftirmat héðan
ífrá.
Uppáhalds smákökusortin?
-Haframjölskossarnir hennar mömmu
eru bestir. Eitt sinn fékk sé sendan
bauk af þeim fyrir jólin og komst að
því að þeir eru ávanabindandi því vinir
mínir átu þá alla upp á einu kvöldi.
ÓLAFUR SIGURGEIRSSON, LÍFFRÆÐINGUR
Kroppar í grísinn
aegar dregur úr
<vioþrýstingi
Ert þú mikið jólabarn?
-Nei.
Hvernig brýst það út?
-Ég fæ ekki útbrot.
Hvað borðar þú á aðfangadags-
kvöld?
-Hún Systa mín splæsir fyrst á mig
humri. Ég held hún matreiði hann
með svipuðum hætti og Guðmundur
fyrrum bóndi á Fjalli matreiddi
kótelettur, reynir að kenna honum
sundtökin í smjörbaði. Síðan
höggvum við feðgarnir stór skörð í
reyktan grísahrygg en mæðgurnar
eru skikkanlegri.
En í eftirrétt?
-Eftir það sem á undan er gengið
hef ég enga þörf fyrir eftirrétt og að
jafnaði ekki ginkeyptur fyrir þeim.
Það væri þá helst að kroppa aðeins
meira í grísinn þegar dregur úr
kviðþrýstingi. Svo þarf auðvitað
umtalsvert magn af Egils malti og
appelsíni til að verjast þessari aðför
að stjórnun blóðþrýstingsins. Líklega
væri réttara að kalla það eftirstöðvar
fremur en eftirrétt.
Uppáhalds smákökusortin?
-Ég er ákaflega iila að mér í
nafnakerfi smákaka enda hef ég
mjög takmarkaðan áhuga á að éta
þær. Stangast það ekki á við
jafnréttisbaráttu smákaka að fara
að hampa einhverri tegund umfram
aðrar? Mætti ég þá heldur biðja um
harðfisk!
Hvað langar þig að fá í jólagjöf?
-Ég er svolítið veikur fyrir bókum. Á
reyndar slatta og ekki enn búinn að
lesa allar sem ég fékk í fyrra. Það
sýnir í hvert óefni er komið eða hvað
ég er orðinn seinlæs. Ég þarf að lesa
bókina um Snorra Sturluson og því
væri slægur í henni. Eins eru nokkrar
nýjar bækur álitlegar þó ég sé
fremur sérvitur á lesningu. Sneiði
helst hjá meintum skáldskap sem
virðist aðallega framleiddur til að
renna með jólabókaflóðinu. Hvað
segir Kristján B. um það?
Hvað gafstu maka þínum í jólagjöf
í fyrra?
-Minnið er ónýtt og því get ég ekki
rifjað það upp. Líklega hefur það
verið fremur andlaust eða eftir
hennar ábendingu. Sennilega þó
innihaldið bók sem mig langaði að
lesa.
Hvað gaf hann þér?
-Man það ekki heldur að
undanskilinni bókinni um Grím
Jónsson amtmann eftir Kristmund á
Sjávarborg. Sú er á almennilegri
íslensku en heldur löng.
Hvaða jólalag er í mestu uppáhaldi
hjá þér?
-Ekkert sérstakt jólalag en þegar ég
syng "Nú árið er liðið í aldanna
skaut" á gamlárskvöld fyllist ég
jafnan trega vegna liðins tíma.
Hvaða jólamynd kemur þér 1' rétta
jélaskapið?
-Égverðönugurviðsvonaspurningar
og ef átt er við "jólakvikmyndir" er
það eins og að klappa kettinum
andhæris. Skil ekki fyrirbærið og
átta mig heldur ekki á hvað er að
vera í "réttu jólaskapi"!
Ferðu í kirkju á jólunum?
-Jú ég hef baulað bassann í kirkjukór
Hólakirkju um árabil.
Eftirminnilegasta jólamessan er þó í
Viðvíkurkirkju á jóladagfyrir nokkrum
árum. Þá gekk á með verulega
snörpum laufvindum svo kirkjan
skalf og nötraði, Ijósakrónur
sveifluðust eins og í sjóræningjaskipi
í stórsjó og presturinn stundi "óttist
eigi" (sem kemur reyndar fyrir í
jólaguðspjallinu), en þá litu
kirkjugestir hverjir á aðra.
Hvaða jólaboðskap villt þú senda
lesendum Feykis ?
-Ætli ég noti bara ekki orð Valdimars
Briem: - og góðar og frjósamar tíðir.
Ætlar þú að vinna Hornfirðinga í
Útsvari á árinu 2010 ?
-Jú líklega væri það nú ekki svo
vitlaus hugmynd, ef heppnin verður
þarna einhversstaðar.
Hvað langar þig að fá í jólagjöf?
-Kyrrð og gleði.
Hvað gafstu maka þinum í jólagjöf í
fyrra?
-Buðk með vellyktandi.
Hvað gaf hann þér?
-Bók, einu bækurnar sem ég fæ í
jólagjöf eru frá henni Gerði minni,
það er langt síðan fólk hætti að þora
að gefa mér bækur.
Hvaða jólalag er í mestu uppáhaldi
hjá þér?
-Grýlukvæði Stefáns Ólafssonar í
flutningi Þriggja á palli. Verst að þau
fara bara með hluta kvæðisins og
sleppa því þegar Grýla étur
fjósamanninn á Víðivöllum á Héraði.
Hvaða jólamynd kemur þér í rétta
jélaskapið?
-Jólamyndir koma mér alls ekki í
jólaskap og ég forðast þær eins og
heitan eldinn.
Ferðu í kirkju á jólunum?
-Það kemurfyrir.
Hvaða jólaboðskap villt þú senda
lesendum Feykis ?
-Ekki hugsa um lcesave um jólin.
Gefið beiskjunni grið.
Ætlar þú að vinna Hornfirðinga í
Útsvari á árinu 2010?
-Mér stendur fullur hugur til að fara
með siguraf hólmi.